Læknablaðið - 01.02.1949, Qupperneq 13
LÆKNABLAÐIÐ
3
Röntgenstofunnar vænkaðist
mjög, er hún flutti í hús Nathan
& Olsens, en þar tók hún til
starfa í jan. 1918. Fyrstu árin
var aðaláherzlan lögð á röntgen-
skoðun, en sérstök vél til
röntgenlækninga var sett upp í
júní 1919. Síðar (1921) komu
l)Ogaljós, og má þá segja, að
komin hafi verið upp fullkomin
röntgen- og ljóslækningadeild.
Vafalítið má telja, að rönt-
genstörf hafi hafizt hér á landi
vonum fyrr. Fyrstu árin eftir
aldamótin var notkun röntgen-
tækja mjög á tilraunastigi, sí-
felldar breytingar og endurbæt-
ur, svo að erfitt hefði verið að
fylgjast með því af fjárhags-
ástæðum. Þegar Röntgenstofn-
unin tók til starfa (1914) sýndi
sig hrátt að hún fékk töluvert
að starfa, þrátt fyrir erfið
vinnuskilyrði. Auk gegnlýsinga
og myndatöku, var einnig unn-
ið að röntgenlækningum með
sama tæki, þ. e. aðallega grunn-
geislanir við húðsjúkdóma,
þótt geislun væri einnig beitt
við lymphadenit. tuh. og tum-
ora. —
Dr. Claessen var stórhuga og
framsækinn. Hann sá að þörf
var fyrir stærri og hetri vélar,
en þar var við ramman reip að
draga, — húsnæðisleysi, raf-
magnsvandræði og fjárskort.
Það liðu því nokkur ár, áður
en stofnunin eignaðist sérstök
geislalækningatæki, og fengust
þau fyrir sérstaka lagni dr.
Claessens, að koma áhugamál-
um sínum fram. Honum var
sýnna um það en flestum öðrum
að útvega nauðsynleg tæki og
endurbæta það sem úrelt var
orðið. Það var happ að það féll
í hans hlut að koma fótum
undir röntgenfræðina hér á
landi. Nýjar greinar vísindanna
í læknisfræði, sem á öðrum
sviðum, eiga alla jafna erfitt
uppdráttar, og því mikið komið
undir mannvalinu í byrjun. Dr.
Claessen hefir ætíð kappkostað
að Röntgendeildin stæði ekki að
haki liliðstæðum stofnunum er-
lendis, og liefir honum tekizt
það. Röntgentæki eru dýr, og
því erfitt að fygjast með kröf-
um tímans. Hins vegar er nú
svo komið að hver dugandi og
sannleiksleitandi læknir lætur
sér ekki nægja annað en það
hezta í röntgenþjónustu, og er
það ómetanlegur hagur fyrir
þá, sem vinna störfin.
A síðustu árum hefir töluvert
verið aukið við vélaútbúnað
röntgendeildarinnar. I undir-
búningi er að afla enn nýrra
tækja til röntgenskoðana, öfl-
ugri en þeirra, sem fyrir eru
(þrífasa tæki), og höfum við
þar notið framsýni dr. Claes-
sens. 1 byrjun þótti húsrými
deildarinnar ríflegt, en fer þó
að verða af skornum skammti,
vegna þess hve þróunin hefir
verið ör í röntgentækni. Nú er
aðeins eitt röntgenlækningatæki
til í landinu, en það er ékki