Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.1949, Síða 19

Læknablaðið - 01.02.1949, Síða 19
LÆKNABLAÐIÐ 9 bæði í ræðu og riti. Hann hafði tekið að erfðum þann hæfileika íslenzkra forfeðra sinna, að fela mikla vizku og reynslu í stuttu máli, og oft lífgaði hann frá- sögn sína um alvarleg efni með hógværri kímni. Málakunnátta hans var undraverð og honum var mjög létt um að láta í ljós hugsanir sínar á framandi tung- um. Auk móðurmáls síns, tal- aði hann og ritaði leikandi dönsku, sænsku, ensku, þýzku og l'rönsku. Eftir 1941 þjáðist Claessen af asthma, sem hann fékk í svæsn- um köstum. 1 veikindaköflum sínum, sem oft gátu staðið mán- uðum saman, var hann ekki fær um að sinna spítalastörl'um, en notaði þá málakunnáttu sína til þess að þýða á íslenzku nokkrar erlendar bækur um alþýðlega læknisfræði eða önn- ur fræðandi efni. Með aðstoð Dr. McLaren frá London, er á stríðsárunum var í þjónustu brezka setuliðsins á Isl., undirbjó Claessen enska út- gáfu kennslubókar sinnar í röntgenfræðum (Diagnostic Radiology for Practioners and Students), sem hann lauk og jók við síðustu nýjungum í röntgenfræðum, áður en hann féll frá. Til þess að meta Gunnlaug Claessen réttilega, verður að skoða störf hans í ljósi fram- farabaráttu íslenzku þjóðarinn- ar, sem hann helgaði æfistarf sitt. Hann vann störf sín á þeim tíma, er ættland hans átti í hcitastri baráttu að rífa sig upp úr kyrrstöðu tímabili og öðlast l'járhagslegt og stjórnarfarslegt sjálfstæði. Það féll í hlut Claessens, að byggja upp frá grunni röntgen- fræðina á Islandi, og þetta framkvæmdi hann á slíkan hátt, að röntgenstofnun lians varð máttarstoð í islenzkri læknisfræði og hann sjálfur varð fyrirmynd allra annarra röntgenfræðinga á Norðurlönd- um. Hann tók einnig þátt í því með mikluin áhuga og árangri, að byggja upp nokkrar aðrar greinar nútíma læknisfræði á Islandi. A margan hátt var hann fræðari þjóðar sinnar. Það fer ekki hjá því að lífsferill hans og brautryðjanda starf, minni oss á frásagnir úr íslenzku fornritunum. Gunnlaugur Claessen var mikilhæf og heillandi persóna. Hinn karlmannlegi og hlýji hugur hans vann vináttu vora, og vér dáðum starf hans. (Próf. Forsell þakkar að lok- uin Dr. G. Fr. Petersen fyrir upplýsingar um ritstörf Claes- sens á islenzku, og Önnu La Cour, fædd Claessen, fyrir vitn- eskju um æviatriði föður liennar og aðstoð við þýðingu minning- argreinarinnar á ensku).

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.