Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.1958, Side 20

Læknablaðið - 01.03.1958, Side 20
24 LÆKNABLAÐIÐ an með kanylu í 2 mánuði, vegnar nú vel, en hefur barka- fistil ennþá. Um gang sjúkdómsins og epi- demiologiu er eklci mikið ann- að að segja en það venjulega. Gastroenteritis gekk ekki sam- tímis, en töluvert var um catarr- lialia. Á deildinni var myalgia epidemica greind hjáð sjúkling- um, kliniskt, en ekki virologiskt. Byrjunareinkennin voru þau venj ulegu, hiti, höfuðverkur, oft uppsala, vöðvaverkir og meningitis-einkenni. Difasiskur gangur var aðeins lijá 3 sjúk- lingum. Kontakt tilfelli voru engin. Algengt var að eitt syst- kyni af mörgum veiktist, eins voru 3 fullorðnir, sem veiktust alvarlega, en börn þeirra ekki, voru þó 2—4 börn á heimilun- um. Utan af landi komu t. d. 2 sjúklingar, annar frá Laugar- vatnsskóla en hinn frá Mennta- skóla Akureyrar. Aðrir veiktust elcki, a. m. k. kliniskt, í þessum skólum. Þetta eru engin eins- dæmi úr poliomyelitis farsótt- um. Á skýrslur landlæknis komu frá Reykjavík og nágrenni alls 421 sjúklingar með poliomye- litis, þar af 68 lamaðir. Af þess- um f j ölda voru alls 89 sj úkling- ar vistaðir á spítala vegna polio- myelitis, þ. e. 21%. Þetta er lág innlagningartala, óhugnanlega lág„ að mínum dómi. Til sam- anburðar skal þess getið, að í farsóttinni iKaupmannahöfn ár- ið 1952, voru 2899 sjúkl. skráð- ir, og 2830 voru vistaðir á Bleg- damshospitalet, eða nærri 100%. Þetta sýnir, að Hafnar- læknarnir liafa litið sína farsótt töluvert alvarlegri augum en við okkar. Vonandi eigum við ekki að mæta svona farsótt aft- ur, en við getum alltaf átt von á einstökum tilfellum. Nú vil ég ekki lialda þvi fram, að það sé lífsnauðsynlegt að leggja alla sjúklinga á spítala, en ég vil vekja athygli á því, að í byrjun er afar erfitt að átta sig á því, hvaða gang sjúkdómurinn ætl- ar að taka. Ég rak mig illa á það í fyrra. 1 hyrjun október hringdi kvöldlæknirinn til mín og bað mig um að líta á sjúkling, sem hefði byrjandi poliomyelitis. Þetta var 8 ára gamall drengur, ekki mikið veikur að sjá, hnakkastífur, með vöðvaverki og vafasama lömun á öðrum liandlegg. Þetta var seint um kvöld, mér fannst ekki bráð þörf á sjúkrahúsvist strax og ákvað að lofa drengnum að sofa rólega heima um nóttina. — Snemma næsta morgun leit ég til lians. Þá var hann lífshættu- lega veikur. Báðir liandleggir voru lamaðir, hann liafði önd- unarerfiðleika, var gráblár í andliti og með rök lungu. Hann var vistaður á spítala og dó þar næsta dag. Nú vilja menn fá að vita,

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.