Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1958, Page 8

Læknablaðið - 01.12.1958, Page 8
114 LÆKNABLAÐIÐ sjúklingum, enda er þar oft um bjúg eða vökvarikan vef að ræða. Einkenni. Fyrstu einkennin eru nála- dofi og stingir í sensoriska svæði nervus medianus, þ. e. a. s. vísi- fingri, löngutöng og hálfum baugfingri ásamt stórum liluta lófans. Áberandi er, að sjúk- lingarnir eru verstir á næturn- ar og eftir erfiðan vinnudag, enda er þá mestur bjúgur í lík- amanum og lielzt liætt við þrengslum, þar sem þröngt er fyrir. Einnig gæti það valdið bjúg, að sjúklingur hefur legið á handleggnum og einkennin þá aukizt. Síðan fer að bera meira á dofatilfinningu og sársauka á sama svæði og áður. Konurnar hætta að geta haldið á nál og eiga erfitt með að leysa af liendi nákvæmari störf. Að lokum fer svo að bera á máttleysi í thenar- vöðvunum, svo að sjúklingur missir gjarnan hluti úr hendi sér og er þá lika komin greini- leg rýrnun á vöðvum lófans þumalfingursmegin. Algjört til- finningarleysi (anæstesi) á svæði n.med. er svo síðasta ein- kennið. Greining. Fyrst þarf að gera sér ljóst, að um sjúkdóm í nerv. median- us sé að ræða. Ennfremur að einkennin séu bundin við ])á laugaþræði, sem fara i gegnum canalis carpalis volare. Nervus medianus gefur frá sér greinar á framhandlegg til flexora fingranna og ætti þá að fylgja einkenni frá þeim, ef sjúk- dómsins væri að leita ofar í taugakerfinu. Vel þarf að at- huga, að sjúkl. séu ekki með byrjandi sjúkdóma í miðtauga- kerfinu, svo sem sclerosis dis- seminata, eða þá scalenus synd- rom, disc-prolaps í hálsliðum, blóðsjúkdóm o. s. frv., sem of langt yrði upp að telja. Nauð- synlegt er að gæta vel að ein- kennum um sykursýki. Meðferð. Til greina kemur lielzt tvenns konar meðferð, konservatív og kírurgisk. Konservativ meðferð: Með því að leggja gipsspelku á hönd og framhandlegg sjúkhngsins, sem liann gengur með fvrst, en hefur síðan aðeins á nóttunni um nokkurn tíma, niá ná góð- um árangri í vægari tilfellum. Svo góð áhrif hefur spelkan á líðan sjúkl., að þetta hefur líka þýðingu að því leyti, að það styður mjög, að sjúkdómsgrein- ing sé rétt, subjectiv einkenni hverfa. — Er þá lögð dorsal- spelka, sem nær frá hnúum handarinnar og upp undir oln- boga. Kirurgisk meðferð: Ilún til- einkast þeim sjúkl., sem hafa meiri einkenni, svo sem vöðva- rýrnun og þeim sem ekki dug-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.