Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1958, Blaðsíða 20

Læknablaðið - 01.12.1958, Blaðsíða 20
122 LÆKNABLAÐIÐ með augnvökvanum og ráðast á n)'r svæði í augunum. Bólgan byrjar í retina, sem síðar breið- ist niður i chorioidea. Bólgu- blettirnir eru misstórir, oftast meðfram æðunum og í regio macularis. Bráða (akúta) stigið stendur 2—3 mánuði. Bólgan hjaðnar og skilur eftir sig ljós- leita skellu með litarefni á jöðr- unum eða einungis svarta litar- skellu. „Pseudocystur" geta fundizt i nágrenni við gróna bólgubletti, þar sem snýldarnir liggja í dróma og eru umlukt- ir bimnu, sem litast með silfur- samböndum. Toxoplasmosis í augum eldri barna uppgötvast í fyrsta lagi ef barnið fær strabismus, sem orsakazt hefur af bólgu i ma- cula lutea og nágrenni. Skarpa sjón augans dofnar mjög, og geta augun af þeim sökum ekki unnið saman. Sjást bólgubreyt- ingarnar auðveldlega við augn- speglun. í öðru lagi þekk- ist sjúkdómurinn í sambandi við minnkaða sjón á öðru eða báðum augum, er uppgötvast, þegar barnið fer að ganga i skóla. Gamlar bólgubreytingar sjást í augnbotnunum. í þriðja lagi við sjóntap, sem smá eykst hjá börnum og unglingum. Bannsókn leiðir í ljós gamla og nýja bólgubletti í retina. Tíðum kemur bólgan á þá staði í aug- unum, sem bindra ekki sjón, og viðkomandi veit e.t.v. ekki, að hann hafi nokkurn tírna fengið bólgu í augun. Gamlir bólgu- blettir uppgötvast þá síðar í lif- inu við augnspeglun. TOXOPLASMOSIS ACQUI- SITA. Eins og að framan get- ur, er stundum erfitt að greina, hvort um nýja smitun er að ræða, eða meðfædd smitun lief- ur tekið sig upp, og á það eink- um við um augnsjúkdóma, er litil mótefnamyndun á sér stað i blóðinu. Toxoplasmosis acqui- sita getur komið fram í ýms- um myndum, og eru þessar belztar: Toxoplasmosis acquisita lym- phonodosa er sú sjúkdóms- mynd, sem er algengust í þess- um flokki. Samkvæmt rann- sóknum frá Danmörku (Siim)5) á rúmlega 100 tilfellum af þess- um sjúkdómi, er liægt að flokka liann í a. lympliadenitis með liita, b. lymphadenitis án hita og c. subclinical mynd. Aðalein- kenni eru eitlastækkun og slen. Hiti getur verið 38—40° í nokkr- ar vikur. Eitlarnir eru vanalega ekki aumir viðkomu. Eitla- stækkun er stundum almenn, en stundum aðeins eitlastækkanir í einstaka svæðum líkamans. Sjúkdómur þessí er fremur meinlítill (benign) og lætur sig alltaf án meðferðar og án nokk- urra fvlgikvilla. Siim gat ein- angrað toxoplasma-snýkla frá eitlum í mörgum sjúkdóms- tilfellunum. Augnbólgur eru mjög sjaldgæfur fylgikvilli með þessum sjúkdómi.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.