Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1958, Page 19

Læknablaðið - 01.12.1958, Page 19
LÆKNABL AÐ IÐ 121 Sjúkdómsmyndir. Toxoplasmosis kemur fram í margvíslegum myndum5), sem líkjast mjög ýmsum öðrum sjúkdómum, og gengur því oft illa að greina sjúkdóminn, ef læknar hafa hann ekki sérstak- lega í huga. Venjulega er sjúk- dómnum skipt í tvær myndir: Meðfædda smitun og smitun eft- ir fæðingu. Oft er erfitt að greina þar á milli. TOXOPLASMOSIS CONGE- NITA getur komið fram sem bráður sjúkdómur þegar eftir fæðingu, eða dulin smitun, sem getur algjörlega legið niðri eða komið fram sem sjúkdómur síð- ar í lifinu og þá sérstaklega sem augnsj úkdómur. Álitið er, að mæður, sem fæða hörn með toxoplasmosis, smit- ist á meðgöngutímanum án þess að verða veikar. Smitunarleiðin til fóstursins mun vera gegnum fylgjuna (placenta). Mæður, sem fætt hafa börn með toxo- plasmosis, fæða eklci síðar sýkt hörn. Þetta bendir á ónæmi hjá móðurinni, sem ver fóstrið sýk- ingu. Smitun, sem á sér stað snemnia á meðgöngutímanum, orsakar dauða hjá fóstrinu. Smitun á miðjum meðgöngu- tímanum getur orsakað dauða hjá fóstrinu og fósturlát eða sjúkdóm í augum og miðtauga- kerfi, sem getur leitt til hvdro- cephalus, micropthalmos og fleiri afleiðinga sjúkdómsins s.s. andlegs sljóleika, krampa, ým- issa lamana, nystagmus o. fl. Smitun síðast á meðgöngutím- anum orsakar sjaldnar encep- halomyelitis og chorioretinitis, en einkum sjúkdóm í innri líf- færum, t. d. hepatosplenome- gali með útbrotum og gulu. Þessi hörn lifa þó oft ekki nema skamma stund eftir fæðingu. Oftar er það, að hörn, er fæð- ast með toxoplasmosis, eru ekki veik við fæðingu og verða e.t.v. aldrei veik, en geta síðar fengið enceplialitis, lymphadenitis eða hólgur í augun. Oft er erfitt eða ómögulegt að segja til um, livort um er að ræða meðfædda smit- un, sem liefur tekið sig upp, eða smitun, sem átt hefur sér stað eftir fæðingu. Þar sem chorioretinitis er ein algengasta sjúkdómsmyndin og einna auðveldust að greina, verður þessari sjúkdómsmynd að nokkru lýst hér. Chorioretinitis acuta, sem finnst hjá hörnum skömmu eft- ir fæðingu, er stundum samfara encephaloniyelitis. Oftast er þó eina mynd sjúkdómsins chorio- retinitis, sem þarf ekki að koma fram fyrr en nokkrum vikum, mánuðum eða árum eftir fæð- ingu. Bólgan i augunum getur tekið sig upp livað eftir annað á nýjum og nýjum stað í augn- botnunum, með löngu millihili. Er orsökin talin vera, að „pseu- docystur“ rofna og leysa úr fjötrum snýkla, sem flytjast

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.