Læknablaðið - 01.02.1968, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ
11
Paceing
Paceing getur verið þrenns konar, og eru því P-M gerðir
með þrennu móti. Ég ætla nú í stórum dráttum að skýra frá þeim.
1) Asynchron P-g. P-M af þessari gerð hafa ákveðinn
straumstyrkleika og fjölda ertinga (stimuli). Sumar gerðir, t. d.
Medtronic (Chardack-Greatbatch), eru þó þannig, að hægt er
að breyta hvoru tveggja með „percutan“-aðferð. Skrúfjárni, sem
er svipað og nál í laginu, er stungið inn í P-M á ákveðnum stöð-
um, og með því að skrúfa á venjulegan hátt, má hækka eða lækka
straumstyrkleikann og fjölda ertinganna. Á oscilloscopi og
hjartarafriti má fylgjast með þessu. Breytingu á straumstyrk-
leika er þó aðeins hægt að dæma í stórum dráttum.
Þessa gerð P-M rná nota t. d. við algjöra A-V stöðvun með
S-A köstum, en ekki þegar skiptist á sinushjartsláttur og hjart-
sláttarköst (t. d. ventrikular tachycardia eða fibrillation).
2) Synchron P-g. Þar stjórnast P-M ertingarnar af afturhólf-
unum (atria cordis, P á Ekg.). Þetta mætti ef til vill álíta beztu
aðferð við P-g. Á henni er þó stór galli, en hann er sá, að P-M
stjórnast einnig af sjúklegum slætti í afturhólfunum. Þessa P-M
má nota hjá sjúklingum, þegar hjartavöðvinn er ekki mjög
skemmdur og sláttur afturhólfanna er reglulegur, en sláttur fram-
hólfanna óreglulegur; einnig hjá sjúklingum með A-V stöðvun
sem afleiðingu hjartaskurðaðgerðar.
3) Demand P-g (sem einnig er kallað í ritsmíðum á ensku
„stand by“, „ventrikular inhibited“, „R. top“). Segja má, að þessi
gerð P-g sé einnig asynchron, en er þó háð slætti framhólfanna.
Ertingartíðni hvers P-M tækis er ákveðinn, en framleiðendurnir
hafa hana ekki alltaf þá sömu. T. d. hafa Medtronick og Elema
hana 60/mín., en Ventricor 70/mín.°
Ef sláttur framhólfanna fer fram úr ertingartíðni P-M,
stöðvar þetta P-M ertinguna og kemur á þann hátt í veg fvrir,
að hún valdi samdrætti hjá framhólfunum. Þessa P-M er sjálf-
sagt að nota, þegar skiptist á A-V stöðvun og sinushjartsláttur.
Þetta á einkum við hjá sjúklingum með A-V stöðvun eftir krans-
æðastíflu, en þessum sjúklingum hættir mjög til óreglubundins
hjartsláttar vegna lágs ertingarþröskulds. Asynchron eða syn-
chron P-g geta í þessum tilfellum haft hættur í för með sér.
Ytri (external) P-g. Ekki er hægt að láta hjá líða að minn-
ast á ytri P-g, sem oft þarf að grípa til í fyrstu, meðan verið er
að undirbúa skurðaðgerð og innleggingu (implantation) innri
P-M.