Læknablaðið - 01.02.1968, Síða 56
26
LÆKNABLAÐIÐ
2. tafla
nokkun á 83þús. ormum úr vinstur og
mjógörn úrlOdi/kum frá Hestisiátr.2.okt.65.
Ormoheiti fannst a/ts i i /ömbum at/OO Ormatatan. at/s \afiOO Ormata atts /o íþúseœttkv. aftÖO
O.circumcincta 7 70\ \3ooo 4% 4 5Vo
Otrifurcota 3 30- 8oo /-
Taxei 5 50- Hoo /- 7 8°/o
Tcapricoia 7 70- 54oo 7-
T vitrinus / /O- 3oo
N. fi/ico/iis 8 80- 679oo 82 72 87 °/.
N.spathiqer 3 30- 44oo 5
B. triaonoceDhat- 8 80- 22
um.
mjög viðkvæmar fyrir frosti. Flest egg þeirra eru dauð við 5°C
frost, og þau geta drepizt á 2 klst. í 12°C frosti. Egg og lirfur bit-
ormsins þola því ekki þurrk og kulda nema í fáa daga.
Mótefnamyndun og ormajafnvægi
Ormarnir valda mótefnamyndun í blóði dýrsins, sem þeir
lifa í, á svipaðan hátt og sýklar og veirur (immunologisk re-
action). Það er álitið, að mótefni myndist fyrir áhrif frá lirf-
unum, einkum meðan þær eru í slímhúð eða öðrum vefjum dýrs-
ins, en að fullþroskaðir ormar orsaki ekki mótefnamyndun.
Talið er, að lömb geti farið að vinna sér mótefni um fjögurra
mánaða gömul, en að mótstaða þeirra aukist smám saman, þar
til þau eru um eins árs, en þá eru þau talin hafa náð fyllstu mót-
stöðuhæfni.
Meginskilyrði þess, að mótefni geti myndazt í fénu, eru auk
aldurs og upptöku ormalirfa, að kindin hafi góða næringu og
fóðrist vel. Hin áunna mótstaða hjá fullorðna fénu er tímabund-
in og helzt ekki örugglega, nema eitthvað berist stöðugt að af
lirfum í kindina og þrif hennar versni ekki. Mótstaðan minnkar
auðveldlega og getur jafnvel horfið, ef fóðrið verður lélegt. Á
sama hátt verka sjúkdómar. 1 lambám minnkar mótstaðan vegna
álagsins af mjólkurframleiðslunni. Mest ormahætta er fyrir lömb-