Læknablaðið - 01.10.1968, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ
191
flest, ef ekki öll tilfelli af leghálskrabbameini, þróist frá minni
háttar frumubreytingum yfir í staðbundið mein, sem loks verði,
ef ekkert er að gert, ífarandi. Og vil ég í því sambandi nefna
eftirfarandi atriði:
1. Línurit yfir aldurskiptingu og tíðni er mjög svipað bæði
fyrir staðbundið mein og ífarandi. En mesla tíðni fyrir stað-
bundið mein kemur 8—10 árum fyrr en við leghálskrabbamein,
samanber mynd frá „Gynekologisk cancer“ eftir Kjellgren
(1. mynd).
CANCER COLLI UTERI
2. Heildartíðnin (prevalence), reiknuð út fyrir heila aldurs-
flokka eða allar konur á ákveðnu svæði, er svipuð bæði fyrir
staðbundið mein og leghálskrabbamein. Þetta kemur meðal ann-
ars fram í hópskoðun í Memphis og Shelby-fylki i Tennesee. Þar
voru skoðaðar 108 þús. konur og heildartíðni fyrir staðbundið
mein reyndist 360 af 100 þúsund. Tilsvarandi tala fyrir legháls-
krabbamein var 310.
3. öruggast leiðin til að ganga úr skugga um þetta oi-saka-
samband, er að láta tilfelli með staðbundnu meini, sem staðfest
hefur verið með vefjarannsókn, vera án meðferðar og sjá, hversu
mikill hluti þeirra breytist með tímanum yfir í leghálskrabba-