Læknablaðið - 01.10.1968, Blaðsíða 30
196
LÆKNABL AÐIÐ
yfirborðinu. Það virðist sem þekjan í kringum ytra leghálsopið
hafi mikla tilhneigingu til illkynja breytinga. Æxlið getur hér
tekið á sig mjög ólíkar myndir, allt frá því, að leghálsinn sé án
sýnilegra breytinga, og til þess, að um sé að ræða eyðandi æxli,
sem hefur étið upp leghálsinn og skilið el tir djúpa sárholu. 'Stund-
um er æxlið hlómkálslaga og hverfist fram í leggöngin. Er næsta
ótrúlegt, hversu sjúkdómurinn getur verið kominn á hátt stig,
án þess að einkenna verði vart.
Stigaskipting
1 sambandi við meðferð á leghálskrabbameini er mikilvægt
að gera sér grein fyrir útbreiðslu og stærð æxlisins. Eigi að l)era
saman árangur af mismunandi meðferð, er nauðsynlegt að flokka
sjúklingana niður með tilliti til þessa. Áður en radíum-meðferðin
hafði náð fótfestu, var leghálskrabbameininu skipt í tvo flokka,
þ. e. a. s. skurðtæk og ekki skurðtæk æxli. Eftir því sem radíum-
meðferðin vann á, varð nauðsynlegt að koma á nákvæmari stiga-
skiptingu. Ýmsar slíkar hafa verið notaðar.
Árið 1929 var skipuð nefnd til þess að koma á samræmi í
þessum hlutum. En það var ekki fyrr en 1961, að almennt var
viðurkennd hin svokallaða alþjóðastigaskipting leghálskrabba-
meins. Samkvæmt henni eru tilfellin flokkuð niður í fjóra höfuð-
flokka eða fimm, ef með er talið staðbundið mein (ca. in situ
eða stadium 0).
Stadium 0: Breytingarnar hundnar við þekjuna (intra
epithelial).
Stadium I: Æxlið eingöngu bundið við leghálsinn.
IA: Ekki greinanlegt við skoðun (preclinical).
— IB: önnur fyrsta stigs æxli.
Stadium II: Æxli, sem nær út fyrir leghálsinn, en ekki að
grindarveggnum, nær niður i leggöngin, þó
ekki niður í neðsta þriðjung þeirra.
IIA: Breytingin nær ekki út í legbeðinn
(parametrium).
— IIB: „Parametrial infiltration.“
Stadium III: Æxli, sem nær út að grindarveggnum. Við
endaþarmsskoðun ekkert frítt svæði á milli
upphaflega æxlisins og grindarveggsins. Æxli,
sem nær neðsta þriðjung legganga.
Stadium IV: Æxli, sem nær út fyrir minna grindarholið, eða
æxlisvöxtur í slímhúð hlöðru eða endaþarms.