Læknablaðið - 01.10.1968, Qupperneq 27
LÆKNABLAÐIÐ
193
Norðurlöndum er hæsta tíðni leghálskrabbameins í Danmörku
eða 35.5 af 100 þúsund konum. Svíþjóð kemur næst, og koma
þar fyrir árlega 800—900 tilfelli, sem eru 20—25 af 100 þúsund
konum. Island er greinilega lægst að þessu leyti. Samkvæmt rit-
gerð Ólafs Bjarnasonar prófessors var tíðnin hér 1946—1955
12.2 af 100 þúsund konum. Við athugun á 10 ára tímabilinu
1955—1964 voru skráðar hér 142 konur með leghálskrabbamein,
og verður það 16.5 af hverjum 100 þúsund konum.
Orsök
Það gildir um leghálskrabbamein eins og allflesta illkynja
sjúkdóma, að orsökin er óþekkt. Þegar litið er um öxl yfir sið-
ustu 10 árin, virðist fátt nýtt hafa komið fram, sem sé aðgengileg
skýring á ástæðu þessa sjúkdóms. Talsvert mikið hefur þó verið
unnið að rannsóknum á þessu sviði. I því sambandi ætla ég að-
eins að minnast á nokkur atriði.
í. Erfðir
Gengur leghálskrahhamein í erfðir? I flestum athugunum, sem
gerðar hafa verið um þetta efni, er miðað við legkrabbamein og
ekki gerður greinarmunur á legháls- og legbolskrabhameini.
Brolæck athugaði j)ó árið 1949 ættingja 200 kvenna með legháls-
krabbamein. Hann fann mun hærri tíðni i fyrsta ættlið, sérstak-
lega meðal systra, en hjá samanburðarhópi (1.4—2% á móti
0.2% hjá samanburðarhópi). Aftur á móti reyndist tíðni annarra
illkynja sjúkdóma hjá þessum hópum hin sama.
2. Smitun
Á seinni árum hefur talsvert verið rætt um veirur sem orsök
illkynja sjúkdóma. Þótt tekizt hafi með jæim að framkalla ill-
kynja æxli í tilraunadýrum, er enn ekki með vissu vitað um veir-
ur, sem valda slíkum breytingum í mönnum. Af smitunum, sem
einkum hafa verið nefndar sem hugsanleg orsök leghálskrabba-
meins, er „trichomonas vaginalis“. Við hópskoðanir finnst
trichomonas hjá 10—15% kvenna. Samkvæmt Bergren er
trichomonas vaginalis fjórum sinnum algengari meðal kvenna
með staðbundið mein eða leghálskrabbamein. Rússneskur kven-
læknir, Kasanowska, telur sig með langvarandi trichomonassýk-
ingu hafa fengið fram hreytingar á flögujækjunni á legháls-
inum í naggrísum, sem verði eklci greindar frá krahbanieini. En
þessar naggrísir höfðu áður hlotið oestrogen-meðferð.