Læknablaðið - 01.10.1968, Page 40
204
LÆKNABLAÐIÐ
CANCER CERVICI9 UTERI
19 5 5 -19 64
sem lengst eru komnir í þessu efni, átti að vera kleift að bjarga
tveimur af hverjum þremur konum með þennan sjúkdóm.
Árangur meðferðar á leghálskrabbameini, sem og á öðrum
krabbameinum í getnaðarfærum kvenna, er að mínum dómi aðal-
lega kominn undir eftirfarandi grundvallaratriðum:
1) að sjúkdómurinn sé greindur snemma eða á byrjunarstigi,
2) að sjúklingurinn fái þá ábrifamestu eða beztu meðferð,
sem völ er á hverju sinni,
3) að með nákvæmari eftirskoðun sé möguleiki á að upp-
götva og meðhöndla þau endursýkingartilfelli, sem kunna
að koma fram.
I öllum þessum atriðum hefur okkur verið og er ábótavant.
Varðandi fyrsta atriðið, hefur tilkoma Leitarstöðvar-B valdið
þegar mikilli breytingu til batnaðar. Á fyrstu þremur árum stöðv-
arinnar voru greind 130 tilfelli af staðbundnu meini í leghálsi
og 36 af leghálskrabbameini, en af þeim voru 80—90% á I.
stigi (35% á árunum 1955—1964).
Níunda mynd sýnir tíðni leghálskrabbameins á árunum
1955—1966. Sú greinilega aukning, sem hefur orðið frá og með