Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 37

Læknablaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 37
LÆKNABLADIÐ 89 cold mist vaporizers. ]. Allergy Clin. Immunol. 1974, vol 54, pp 222-228. 27. Sosman, T. A. Schlueter, D. P. Fink, J. N. Barboriak, J. J. Hypersensitivity to wood dust. New Eng. J. Med. 1969, vol 281, pp 977-980. 28. Standford, R. E. Salvaggio, J. E. Experimental granulomatous pneumonitis: Immunologic, hi- stologic and ultrastructural correlations. Chest, supplement, 1976, vol 69, pp 288-290. 29. Van Assendelft, A. Forsén, K. O. Keskinen, H. Alanko, K. Humidifierassociated extrinsic aller- gic alveolitis. Scand. J. Work Environ. & Health, 1979, vol 5, pp 35-41. 30. Voorhorst, R. Spicksman, F. T. M. Varekamp, H. Leupen, M. T. Lyklema, A. V. The house dust mite (Dermatophagoides pteronyssinus) and the allergens it produces. J. Allergy, 1967, vol 39, pp 325-329. 31. Wenzel, F. J. Gray, R. L. Roberts, R. C. Emanuel, D. A. Serological studies in farmer’s lung. Preclpitins to thermophilic actinomycetes. Amer. Rev. Resp. Dis. 1974, vol 109, pp 464-468. Ólafur Ólafsson, Margrét Guðnadóttir, Skúli Johnsen og Sævar Halldórsson VARNIR GEGN RAUÐUM HUNDUM Verðandi mæður er sýkjast af rauðum hund- um á fyrstu 3 mánuðum meðgöngutímans eru í mikilli hættu að ala vansköpuð börn (congeni- tal rubella). Þessi börn hafa oft skerta sjón og heyrn, hjartagalla, miðtauga- og heilaskemm- dir. Með bólusetningu er því m.a. hægt að lækka kostnað þjóðfélagsins vegna sjúkra- húsdvalar, trygginga og sérkennslu barna er fæðast með congenital rubella. Beinn kostnað- ur þjóðfélagsins vegna sérhvers sem fæðist með 50 % heyrnarskerðingu af völdum rauðra hunda er um 65 millj. króna. Síðan 1920 hafa 8 sinnum geisað rauðu hunda faraldrar hér á landi, sá síðasti 1978- 1979. í rauðu hunda faraldri 1964 fæddust 33 börn með congenital rubella og í minni far- aldri 1972-1973 fæddust 6 vansköpuð börn. Kerfisbundnar mótefnamælingar gegn rauð- um hundum hófust hér á landi árið 1975, og 1976 var farið að bólusetja 12 ára stúlkur gegn rauðum hundum. Skipulögð bólusetningarher- ferð meðal kvenna sem ekki hafa ónæmi gegn rauðum hundum hófst sumarið 1979 og fékkst sérstök fjárveiting frá Alþingi til þessa verk- efnis. Svæsinn rauðu hunda faraldur gekk hér á landi 1978-1979. Við athugun 1 '/2 ári eftir að faraldri lauk hafa ekki enn fundist börn með Landlæknisembættið. merki um congenital rubella, en um 90 konur sem reyndust sýktar af rauðum hundum á fyrstu 3 mánuðum meðgöngutímans gengust undir fóstureyðingu. Með kerfisbundinni bólu- setningu er þannig hægt að koma í veg fyrir fóstureyðingar af þessum sökurn í framtíðinni. Beinn kostnaður við framangreinda bólusetn- ingaherferð var um 40 milljónir króna. Rauöir hundar á íslandi Fjöldi Fjöldi skráðra vanskapaðra tilfella bama 1964 .................. 3763 33 1972-73 ............... 2776 6 1976-77 ........................ mótefnamæling og bólusetning 1978-79 ............... 6568 0 Nú er langt komið að safna og greina blóðsýni meðal 12-45 ára kvenna utan Reykjavíkur. Þær konur er hafa reynst neikvæðar hafa þegar verið bólusettar. Veturinn 1980-81 verð- ur lokið við blóðsýnasöfnun og greiningu á Reykjavíkur- og Suðurnesjasvæðinu. Nokkur hópur kvenna hefur ekki sinnt kalli og verður unnið að því í vetur að fá fleiri konur til þátttöku.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.