Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Síða 2
Valt út í hraun
Ungur maður missti stjórn
á bíl sínum í fljúgandi hálku á
Reykjanesbrautinni seinni-
partinn á miðvikudag. Mað-
urinn er fæddur 1979 og var
að fikta við útvarpið þegar
bíllinn rann til á lítilli ferð og
hafnaði harkalega utan vegar.
Ökumanninn sakaði ekki en
bíllinn er mikið skemmdur eft-
ir nokkrar veltur í hrauninu og
var dreginn burt.
föstudagur 9. mars 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Burðardýrið Sigurður Þórsson var dæmdur í tæplega fjögurra ára fangelsi fyrir að reyna
að smygla þremur kílóum af kókaíni til landsins. Sjálfur segist hann hafa verið hand-
rukkaður til þess að smygla dópinu til landsins. Hann segir að handrukkararnir hafi
verið svo ófyrirleitnir að þeir hafi hótað að senda barnaníðing á son hans.
„ég var laminn og sett-
ur í skott á bíl, þar fékk
ég að dúsa í heila nótt.“
„Þeir hótuðu að senda barnaperra
á soninn minn,“ segir Sigurður Þórs-
son í dómsorði en hann var dæmdur
í tæplega fjögura ára fangelsi fyrir að
flytja inn rétt tæp þrjú kíló af kókaíni
til landsins. Hann segist hafa verið
neyddur af handrukkurum til þess
að flytja efnin inn til landsins. Hann
hafi lent í hrikalegum barsmíðum
vegna fíkniefnaskuldar og að auki
var barninu hans hótað kynferðis-
legri misnotkun. Hann sá sér ekk-
ert annað fært en að fara í hina ör-
lagaríku sendiferð sem endaði með
þriggja ára fangelsi.
Það var í nóvember á síðasta
ári sem Sigurður var handtekinn á
Leifsstöð. Hann hafði fyrst farið til
Svíþjóðar og þaðan til Kaupmanna-
hafnar. Hann dvaldi á hóteli þar sem
maður hafið við hann samband. Sig-
urður vildi ekki nafngreina hann né
neinn annan sem málinu tengist af
ótta um eigin velferð og fjölskyldu.
Maðurinn lét hann hafa ferðatösku
en sjálfur segir Sigurður að hann hafi
aðeins vonað að efnin væru væg en
hann vissi ekki hverrar tegundar efn-
in væru sem falinn voru í töskunni.
Þegar hann sneri aftur til Íslands
frá Kaupmannahöfn var hann stöðv-
aður í tollinum. Lögreglan fann þrjár
pakkningar á botni töskunar en allar
innihéldu þær kókaín.
Skuldaði dópsölum
„Ég hafði reykt hass og feng-
ið mér kókaín reglulega,“ segir Sig-
urður í dómsorði en hann var sjálf-
ur fíkniefnaneytandi. Hann skuldaði
fíkniefnasölum talsvert fé en skuld-
in hækkaði í sífellu. Að lokum réði
hann ekki við aðstæður og upphæð-
in var kominn upp í eina milljón. Þá
flúði hann til Svíþjóðar því hann vissi
að hættulegir handrukkarar væru á
eftir honum. Milljón gleymist ekki
svo glatt.
Hann sneri þó aftur að lokum.
Ástæðan voru áhyggjur af velferð
fjölskyldu hans og aðstandenda.
Handrukkaður í smygl
„Ég var laminn og settur í skott á
bíl, þar fékk ég að dúsa í heila nótt,“
segir Sigurður um óblíðar mótttökur
sem hann fékk þegar heim var kom-
ið. Að auki var farið með hann út í
hraun en hann vissi þó ekki hvar.
Þar var honum misþyrmt hrotta-
lega af handrukkurum sem vildu fá
skuld sína greidda. Sigurður segir
frá því að einn handrukkarinn hafi
lagst ofan á hann, borið hníf að hálsi
hans og hótað að senda barnaperra
á barnið hans ef hann borgaði ekki
skuld sína.
Það var þá sem Sigurður ákvað að
fara til Svíþjóðar og leggja eigið frelsi
að veði. Hann varð að bjarga fjöl-
skyldunni.
Engra kosta völ
Að sögn Sigurðar átti hann engra
kosta völ. Undirheimarnir verða
harðari með hverjum deginum og
því fór hann þá leið sem hann fór.
Það eina sem hann vonaði áður en
hann kom til landsins, var að efnin
væru ekki sterk. Ástæðan var sú að
hann bjóst allt eins við því að vera
handtekinn á flugvellinum. Hon-
um varð þó ekki að ósk sinni enda
var hann með þrjú kíló af kókaíni
en það er eitt mesta magn af kókaíni
sem reynt hefur verið að flytja inn til
landsins í einu lagi.
Héraðsdómur Reykjavíkur tekur
mark á sögu hans um handrukkar-
ana og einnig er til þess litið að hann
hefur ekki gerst sekur um glæpi áður.
Því dæmir héraðsdómur hann í 44
mánaða fangelsi eða tæp fjögur ár.
valur grEttiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Þrjú kíló af kókaíni
magnið sem sigurður reyndi að smygla til landsins er eitt það mesta sem
reynt hefur verið að smygla í einu lagi.
Hótuðu að misnota
barn burðardýrs
Héraðsdómur reykjavíkur
tekur mark á frásöng sigurðar um að hann hafi
verið neyddur til þess að smygla fíkniefnum.
Nefbraut
samfanga sinn
Börkur Birgisson, sem sló mann með öxi
í höfuðið, braut af sér í fangelsinu:
Börkur Birgisson, sem dæmur
var í sjö og hálfs árs fangelsi meðal
annars fyrir tilraun til manndráps, er
kominn í kast við lögin enn á ný og nú
innan fangelsisveggja.
Börkur hefur nú verið ákærður af
sýslumanninum á Selfossi fyrir að
kýla samfanga sinn ,á Litla-hrauni,
hnefahögg í andlitið með þeim af-
leiðingum að hann nefbrotnaði,
hlaut þrjá skurði og marðist á nefi.
Átti árásin sér stað á fótaboltavelli
fangelsisins á útvistartíma fanga í júlí
síðasta sumar. Þá er Börkur einnig
ákærður fyrir að hafa fíkniefni í fór-
um sínum í fangelsinu en um fimm
og hálft gramm af hassi sem fannst í
leðurjakka hans. Sá sem Börkur nef-
braut krefst nærri 250 þúsund króna
í skaðabætur.
Börkur var dæmdur í Hæstarétti í
júní árið 2005 en þá hafði hann set-
ið í gæsluvarðhaldi frá byrjun sept-
ember árið 2004. Börkur var fundinn
sekur um að hafa slegið mann nokkr-
um sinnum með exi í höfuðið og var
hann því dæmdur fyrir tilraun til
manndráps. Eins var hann sakfelldur
fyrir umferðarlagabrot, vopnalaga-
brot og tvær aðrar líkamsárásir.
hrs@dv.is
Börkur Birgisson
Börkur heldur áfram að brjóta af sér á Litla-hrauni.
Ammoníak-
mengun
Fosfat og ammoníak höfðu
áhrif á fiskidauða í Grundar-
firði í janúar síðastliðnum. Við
nýjar rannsóknir á efnainnihaldi
sjávar kom hins vegar ýmislegt
fleira í ljós. Í sjónum reyndist
magn fosfats og ammoníaks mun
hærra en eðlilegt getur talist við
þá byggð sem er í Grundarfirði. Í
Grundarfirði búa um 950 manns
en magn fosfats og ammoníaks
benti til þess að þar byggju um
80 þúsund manns en í þeim út-
reikningi eru nokkur skekkju-
mörk. Hátt innihald þessara efna
í sjó getur haft áhrif á þörunga-
blóma og síðar súrefnisinnihalds
sjávar. Skessuhorn greindi frá í
gær.
Kynningarskrif-
stofa opnuð
Sól í Straumi opnar kynning-
arskrifstofu sína á sunnudaginn
klukkan fjögur en hín verður
staðsett í Hótel Víking sem er
gegnt Fjörukránni. Samtökin
bjóða Hafnfirðinga og annað
áhugafólk um stækkunarmálið
hjartanlega velkomið á opnun-
ina. Kynningarskrifstofan verður
opin frá klukkan eitt til sex alla
daga fram að kosningum. Sam-
tökin hafa beitt sér ötullega við
að upplýsa Hafnfirðinga um fyr-
irhugaða stækkun og hafa staðið
fyrir fjölmörgum fundum þess
eðlis. Kosið verður um stækkun í
lok mars.
Lyfjastefna
mótuð til langs
tíma
Siv Friðleifsdóttir, heil-
brigðisráðherra, kynnti í gær
nýja lyfjastefnu sem unn-
ið hefur verið að síðan 2004.
Stefnunni, sem birt var í tut-
tugu síðna skýrslu, er ætlað að
stuðla að öruggu gengi allra
landsmanna að nauðsynleg-
um lyfjum, tryggja öryggi, gæði
og virkni lyfja og lyfjaþjón-
ustu. Sif tók fram að í kjölfar
aðgerða síðustu missera er
heildsöluverð frumlyfja á Ís-
landi nú sambærilegt við verð
sömu lyfja á Norðulöndum.
Hins vegar er álagning apóteka
töluvert hærri hér á landi auk
þess sem stefna þarf að auk-
inni notkun ódýrari samheita-
lyfja og að eflingu samkeppni á
lyfjamarkaði. Lyfjastefna mun
gilda til ársins 2012.