Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Side 12
föstudagur 9. mars 200712 Fréttir DV
Alþingi tryggir sauðfjárbændum
landsins á næstu dögum ellefu millj-
ónir króna að meðaltali á hvert lög-
býli næstu sex árin þegar sauðfjár-
samningur landbúnaðarráðherra
við Bændasamtökin verður staðfest-
ur. Sumir bændur eiga þó eftir að fá
mun hærri greiðslur því þær fara eft-
ir fjölda þeirra kinda sem hver bóndi
heldur. Síðustu árin hafa bændur
fengið beingreiðslur fyrir allt niður í
eina á og upp í nokkur hundruð.
Sauðfjársamningurinn tryggir
bændum um 50 prósentum hærri
fjárhæð á hverja kind sem þeir halda
en hæsta verðið sem þeir fá á hvern
dilk sem þeir fara með í sláturhús. Þá
á reyndar eftir að taka mið af tekjum
bænda af ull sem eru mun minni en
tekjur af kjöti.
Bændur fá greiddar fimm þúsund
krónur á ári í beingreiðslur á hverja
þá kind sem þeir halda. Þetta er þó
aðeins rúmlega helmingur greiðsl-
unnar. Ofan á þetta bætast greiðslur
vegna gæðastýringar, ullarnýtingar
og markaðsstarfs. Þegar allt er reikn-
að saman má búast við að bændur
fái rúmar 9 þúsund krónur á hverja
kind samkvæmt ákvæðum sauðfjár-
samnigsins. Greiðslan getur þó verið
misjöfn með tilliti til gæða fram-
leiðslunnar.
Hæsta verð
sem bænd-
ur geta feng-
ið fyrir dilka
sína nema
um 6 þúsund krón-
um miðað við með-
alstærð dilka og
kjöt í hæsta
gæðaflokki
sem flutt er
til slátrunar
vel áður en
kemur að
háannatíð í
slátrun.
20 millj-
arðar
Sauðfjár-
samningurinn
sem Guðni Ág-
ústsson land-
búnaðarráð-
herra gerði við
Bændasamtökin fyrr á þessu ári á að
tryggja sauðfjárbændum tekjur 2008
til 2013. Hann kostar tæpa 20 millj-
arða á samningstímanum. Kostn-
aðurinn á hvert ærgildi er 56
þúsund krónur á samnings-
tímanum. Meðalbúið fengi
samkvæmt því ellefu millj-
ónir króna.
Bú eru þó mjög misjöfn
að stærð. Margir halda fáar kind-
ur og þess eru dæmi að bændur
fái greitt fyrir aðeins eina ær, bein-
greiðslur á hverja og eina nema tæp-
um 5 þúsund krónum á ári. Aðrir
halda nokk-
ur hundr-
uð kindur
og hækka
greiðslurn-
ar í sam-
ræmi við
það. Við
þetta bæt-
ast greiðsl-
ur vegna
gæðastýr-
ingar, ull-
arnýting-
ar og fleiri
þátta og get-
ur upphæðin
því farið í 9 þúsund krónur á
hverja kind eins og fyrr segir.
Fátækasta fólkið
Stuðningur við bændur hefur
meðal annars verið studdur þeim
rökum að þannig sé tryggt nægt
framboð og að með landbúnaðar-
kerfinu megi verjast sjúkdómum.
Einnig hefur verið vísað til landrækt-
ar og byggðastuðnings.
Einar Oddur Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, hvatti
þingmenn á dögunum til að greiða
atkvæði með sauðfjársamningn-
um. Hann sagði samninginn styðja
veikustu byggðir landsins þar sem
fátækasta fólkið búi. Hann nefndi
Skaftafellssýslur, Múlasýslur, Húna-
þing, Dali og Vestfirði. Ein gagnrýn-
in á landbúnaðarkerfið hefur einmitt
verið að það tryggi þeim sem starfa
við landbúnað starfa ekki nægar
tekjur. Þetta hefur einkum átt við um
sauðfjárræktina.
Varin samkeppni
Auk þess að fá styrki úr ríkissjóði
njóta sauðfjárbændur, líkt og aðr-
ir bændur, verndar fyrir samkeppni
frá útlöndum. Þannig er kveðið á
um það í tollskrám að hvort tveggja
magntollar og verðtollar skuli lagð-
ir á innfluttar landbúnaðarafurðir.
Þá eru lagður tollur upp á ákveðna
krónutölu á hvert kíló og að auki
prósentutala af innkaupsverði. Ef við
horfum til lambalunda eru lagður
950 króna magntollur á hvert kíló og
að auki 30 prósent á innkaupaverð.
Við þetta bætist svo að sjálfsögðu
7 prósenta virðisaukaskattur. Þessi
tvöfalda tollun þekkist vart á aðrar
innflutningsvörur samkvæmt upp-
lýsingum frá tollinum, það á helst við
í einstaka sælgætistegundum.
Hluti af aðgerðum stjórnvalda
til að lækka matvælaverð er að leyft
verður að flytja inn nokkur hundr-
uð tonn af ostum og kjöti tollalaust.
Þetta þýðir þó ekki að vörurnar verði
fluttar inn álögulaust. Heimildir fyr-
ir þessum innflutningi verða boðn-
ar upp og fær hæstbjóðandi að flytja
vöruna inn. Þær greiðslur verða
lægri en tollarnir en verða samt til að
hækka verðið út úr búð.
Neytendur borga
Efnahags- og framfarastofnunin
hefur ár hvert reiknað út stuðning
við bændur á Vesturlöndum og áhrif
þess á matvælaverð í viðkomandi
löndum. Ísland hefur iðulega verið
meðal þeirra ríkja þar sem matvæla-
verð er hæst. Hin ríkin sem eru á
toppi listans eru Suður-Kórea, Japan,
Sviss og Noregur. Í fyrra gerðist það
að stofnunin mat það svo að mat-
vælaverð væri hvergi hærra en hér.
Markmiðið með breytingun-
um nú er meðal annars að minnka
þennan mun á matvælum hér og er-
lendis en reynslan á eftir að leiða í
ljós hvernig það skilar sér. Ein breyt-
inganna er sú að afnema útflutn-
ingsskyldu sem verið hefur á um-
framframleiðslu bænda. Það ætti að
auka framboð hér og gæti orðið til að
lækka verð eitthvað.
Sauðfjársamningurinn sem Alþingi samþykkir á næstunni kostar ellefu milljónir króna á hvert lögbýli sem
sauðfé. Samningurinn á að bæta hag bænda, fólksins sem Einar Oddur Kristjánsson þingmaður sagði fátæk-
asta fólk landsins. Styrkirnir eru önnur hlið landbúnaðarkerfisins, hin hliðin er búvernd sem veldur því að
landbúnaðarverð er með því hæsta sem þekkist í heiminum.
Ellefu milljónir á bú
BryNjólFur Þór GuðmuNdssON
blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is
Kindur við Hvalfjörð
sauðfjársamningurinn á að treysta grundvöll
sauðfjárræktarinnar. Hann kostar 20 milljarða króna á
sex árum eða 56 þúsund krónur á hverja kind.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Kínastofan • Stórhöfði 17 110 Rvk • S. 577 7007
Andlitslyfting
Nýtt
!
sem tekur
einungis 30 mín.
Verð 4.900 kr.
Tilboðsverð
2.900 kr
ef þú pantar í dag
Mælt er með
3-6 skiptum
til að ná
hámarksárangri.