Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Side 18
föstudagur 9. mars 200718 Fréttir DV
RáðheRRaR með milljón á mánuði
Tekjuhæstu þingmennirnir geta
fengið rétt tæpa milljón á mánuði
og tekjuhæsti ráðherrann fær rúma
1,1 milljón króna. Þeir sem sækj-
ast eftir setu á Alþingi eftir næstu
þingkosningar geta búist við að
fá að lágmarki 625 þúsund krón-
ur á mánuði í laun og starfstengd-
ar greiðslur. Upphæðin getur svo
hækkað um hátt í hálfa milljón eftir
því hvar þeir búa og hvaða embætt-
um þeir gegna.
Tekjulægstu þingmennirn-
ir fá 625 þúsund krónur á mánuði
í þingfararkaup og starfstengdar
greiðslur frá ríkinu. Alls eru þetta
þrettán þingmenn sem eiga það
sameiginlegt að vera þingmenn
kjördæmanna þriggja á höfuðborg-
arsvæðinu og gegna engum þeim
embættum sem veita þingmönn-
um rétt til álags á þingfararkaupið.
Hinir þingmennirnir 50 fá all-
ir hærri greiðslur. Hæstar geta þær
orðið 1.100 þúsund krónur á mán-
uði í tilfelli forsætisráðherra. Þá
bætist við að ráðherrar eiga rétt á bíl
og bílstjóra. Jafnvel þó þingmenn
séu hvorki ráðherra né forseti Al-
þingis geta aukagreiðslur þeirra og
álag á þingfararkaup numið hátt í
hálfri milljón króna á mánuði. Það
á við í tilfelli þeirra sem eru for-
menn stjórnmálaflokks, sem ekki
eru ráðherrar, og eru að auki full-
trúar landsbyggðarkjördæmis.
Margvíslegar aukagreiðslur
Um leið og þingmenn eru vald-
ir til ákveðinna embætta á Alþingi
hækkar þingfararkaup þeirra. Þing-
flokksformenn og formenn fasta-
nefnda þingsins fá fimmtán pró-
senta álag á þingfararkaupið sem
þar með hækkar um 78 þúsund
krónur. Alls njóta sextán einstakl-
ingar þessara kjara. Varaforsetar Al-
þingis fá jafnframt fimmtán prósenta
álag starfa sinna vegna, þeir eru sex
talsins. Forseti Alþingis nýtur svo
sömu kjara og ráðherrar, meira um
það síðar. Þessum álagsgreiðslum á
þingfararkaupið er þó ekki lokið því
varaformenn fjárlaganefndar og ut-
anríkismálanefndar fá tíu prósenta
álag á launin sín, það nemur 52 þús-
und krónum á mánuði.
Landið er stórt og strjálbýlt og
tekið er tillit til þess í töxtum Al-
þingis. Allir þingmenn fá ferða-
styrk. Þingmennirnir 33 á höf-
uðborgarsvæðinu fá 45 þúsund
krónur á mánuði. Þingmennirnir
30 á landsbyggðinni fá 59 þúsund
krónur. Ofan á þetta bætist að þing-
menn fá endurgreiddan kostnað
vegna margvíslegra ferðalaga, svo
sem lengri ferðir á fundi og ferðalög
milli heimilis og starfsstöðvar allt
að einu sinni í viku. Dagpeningar
og risna eru svo utan við þetta.
Álag á formönnum
Formenn stjórnarandstöðu-
flokka hækkuðu mikið í launum
þegar umdeilt frumvarp um eftir-
laun stjórnmálamanna urðu að lög-
um. Þá voru jafnframt samþykktar
breytingar sem tryggja formönnum
stjórnmálaflokka, sem ekki eru ráð-
herrar, 50 prósenta álag á þingfar-
arkaupið. Í dag þýðir þetta 259 þús-
und krónur á mánuði.
Þrír formenn stjórnmálaflokka
eiga rétt á þessum greiðslum í dag,
Guðjón Arnar Kristjánsson, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir og Stein-
grímur J. Sigfússon. Samkvæmt
þessu nemur þingfararkaupið 777
þúsund krónum. Ofan á þetta bæt-
ast svo styrkir vegna ferða-, dvalar-
og húsnæðiskostnaðar sem hækka
tekjur verulega að ógleymdum
starfskostnaði.
Tugþúsundir í starfskostnað
Meðal þeirra greiðslna sem for-
sætisnefnd Alþingis hefur sam-
þykkt til handa þingmönnum er
greiðsla vegna starfskostnaðar. Þær
greiðslur eiga að mæta kostnaði
Brynjólfur Þór GuðMundsson
blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is
Tekjur ráðherra og þingmanna hafa meira
en tvöfaldast síðasta áratuginn. Þær hafa
hækkað langt umfram launavísitölu og
lægstu laun. Ráðherrar hafa allir um og
yfir milljón krónur í tekjur á mánuði og
tekjulægstu þingmennirnir fá 625 þúsund
á mánuði. Þingfararkaupið hefur hækkað
um rúmar 300 þúsund krónur og ráðherra-
laun um vel yfir hálfa milljón á mánuði.
Þó lýsingin gefi til kynna að um starfskostnað-
argreiðslur er að ræða gefur framkvæmdin til
kynna að hér sé um laun að ræða.