Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Qupperneq 22
föstudagur 9. mars 200722 Helgarblað DV
Díönumálið bíður enn
Lögfræðingar Mohameds Al Fayed sitja sveittir við að finna styðja alvar-
legar ásakanir Harrodseigandans í garð konungsfjölskyldunnar. Moham-
ed fékk loks í gegn á föstudaginn var að vitnaleiðslur færu fram fyrir kvið-
dómi skipuðum „venjulegu fólki“. Hann vill stefna bæði Karli Bretaprinsi
og Philip drottningarmanni til að bera vitni fyrir réttinum í október.
Enn er eftir að ákveða hversu viða-
miklar vitnaleiðslurnar verða í okt-
óber þegar dauði Díönu prinsessu
og kærasta hennar Dodis Al Fayed
fer loks fyrir rannsóknarrétt. Stjórn-
andi rannsóknarréttarins, barón-
essan Elizabeth Butler-Schloss, var-
aði Muhamed Al Fayed við í vikunni
að verjendur hans yrðu að skila inn
haldbærum sönnunargögnum fyrir
þungum ásökunum hans á hendur
konungsfjölskyldunni. Ellegar mætti
málið ekki heita morðmál fyrir rétt-
inum og allt umfang þess yrði miklu
minna, bæði í tíma og fjölda vitna.
Vill konungsfjölskylduna fyrir
kviðdóm
Al Fayed hefur allt frá byrjun
haldið því fram að konungsfjölskyld-
an hafi átt þátt í bílslysinu sem varð
Díönu og Dodi að bana. Hann hef-
ur sérstaklega otað fingrinum að
drottningarmanninum Philip. Þess-
ar ásakanir byggir hann meðal ann-
ars á samtali við Díönu fyrir andlát
hennar þar sem hún tjáði honum að
hún óttaðist um líf sitt. Þess vegna
leggur hann nú ofurkapp á að Karl
Bretaprins, fyrrverandi eiginmað-
ur Díönu, og Philip faðir hans verði
látnir mæta fyrir réttinn til að bera
vitni. Philip hefur alla tíð neitað
að tjá sig um málið. Butler-Schloss
sagði hins vegar á mánudaginn að
lögfræðingar Al Fayeds hefðu hingað
til ekki framvísað „snefli af sönnun-
argögnum“ fyrir alvarlegum ásökun-
um sínum. Lögfræðingarnir svöruðu
því um hæl að þeir hefðu þegar verið
búnir að skila inn nægum sönnunar-
gögnum.
Tveir dagar eru eftir af undirbún-
ingsmeðferð málsins áður en um-
fang þess verður ákveðið. Þeir fara
fram síðar í mánuðinum og má vel
búast við snörpum orðaskiptum lög-
fræðinga og dómara og sviptingum
í málinu. Þegar má reikna með að
allavega 30 manns muni bera vitni
við yfirheyrslurnar.
Misbrestir í opinberri rannsókn
Lögfræðingar Al Fayeds munu
krefjast þess að aðalyfirheyrslurnar
í október taki á ýmsum atriðum sem
að þeirra sögn var ábótavant í rann-
sókninni. Michael Mansfield, aðal-
lögfræðingur Al Fayeds nefnir þar
meðal annars orðróm þess efnis að
Díana hafi verið með barni. Þetta var
ekki rannsakað í krufningunni á líki
Díönu. Einnig vill hann láta taka fyr-
ir misvísandi blóðprufur bílstjórans
Henris Pauls, sem einnig lést í slys-
inu. Fyrstu niðurstöður blóðprufna
leiddu í ljós að hann hafði þrefalt
leyfilegt hámarksmagn af vínanda í
blóðinu. Nokkrum mánuðum seinna
voru birtar niðurstöður blóðprufna
sem teknar voru úr nára Pauls, sem
sýndu helmingi lægri niðurstöður,
sem sagt að hann hafi ekki verið eins
drukkinn og upphaflega var áætlað.
Bréf Philips drottningarmanns til
Díönu og bréf hennar til einkaþjóns
hennar Pauls Burrell verða líklega
grunnsönnunargögnin sem Mansfi-
eld og félagar hans framvísa.
Neitar stærri sal fyrir fjölmiðla
Opinber rannsókn á málinu byrj-
aði ekki fyrr en árið 2004, sjö árum
eftir bílslysið. Sú opinbera rannsókn-
arnefnd skilaði skýrslu um miðjan
desember með þeirri niðurstöðu að
dauði Díönu og Dodis væri „sorg-
legt slys“ en að ekkert gruggugt hefði
komið fram í rannsókninni.
Butler-Schloss, samþykkti á
þriðjudag kröfu lögfræðinganna um
að aðalyfirheyrslunum yrði frestað
fram í október til þess að þeir gætu
farið almennilega í gegnum skýrsl-
una og þau sönnunargögn sem út af
stæðu. Upphaflega áttu yfirheyrsl-
urnar að hefjast strax þann 8. maí
Herdís sigurgríMsdóttir
blaðamaður skrifar: herdis@dv.is
Minnast díönu
díana prinsessa naut
mikilla vinsælda bresku
þjóðarinnar. aðdáendur
hennar minnast dánar-
dægurs hennar enn á
hverju ári við Kensington-
höll þar sem hún bjó með
Karli Bretaprinsi.
Jarðarför díönu
synir díönu báðu á
síðasta ári um að
díana fengi bara að
hvíla í friði og
rannsóknum á málinu
yrði hætt.