Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Side 23
næstkomandi og var Butler-Schloss
ekki auðsveip að fresta þeim. Hún
vildi halda upprunalegri áætlun til
þess að „valda aðstandendum ekki
frekari óþægindum“. Lögfræðingar Al
Fayeds bentu á það á móti að hálft ár
til viðbótar væru aðeins dropi í hafið
miðað við þau níu og hálft ár sem lið-
in væru frá dauða Díönu og Dodis.
Lögfræðingar hans krefjast þess
nú að yfirheyrslurnar fari fram í
stærri sal, með það fyrir augum að
fjölmiðlar geti sinnt þeim sem skyldi
og almenningur fái einhvern að-
gang líka. Stjórnandi réttarins, But-
ler-Schloss, hefur hins vegar hafnað
þessari kröfu.
DV Helgarblað föstudagur 9. mars 2007 23
Díönumálið bíður enn
Mohamed Al Fayed Háir þrotlausa bar-
áttu fyrir ásökunum um morðsamsæri
konungsfjölskyldunnar.
Díana prinsessa
fáir meðlimir bresku
konungsfjölskyldunnar
nutu meiri virðingar.
Samsæriskenningar
lifa góðu lífi
n fyrsta samsæriskenningin var sett á internetið
af áströlskum netverja strax nokkrum klukku-
stundum eftir að lát díönu var tilkynnt. Níu og
hálfu ári seinna eru til heilu netsíðurnar og fjöldi
bóka þar að auki sem birta margar athyglisverð-
ar útgáfur af atburðum laugardagskvöldsins 30.
ágúst 1997. Enda hefur fólk alltaf viljað heyra
góðar samsæriskenningar. Þessar eru nokkuð
athyglisverðar:
n Vinsæl kenning gengur út á að konungsfjöl-
skyldan hafi látið drepa díönu vegna þess að
hún væri að verða of uppreisnargjörn. Hún beitti
sér alla tíð í mannúðarmálum en síðustu árin var
hún farin að taka afstöðu í viðkvæmum málum í
breskri pólitík og vildi meðal annars láta banna
jarðsprengjur, sem bresku stjórninni leist ekki
alls kostar á.
n fleiri kenningar skella skuldinni á konungs-
fjölskylduna, samkvæmt einni var díana barns-
hafandi eftir dodi. Það hefði, samkvæmt kenn-
ingunni, verið of erfið staða ef prinsessan hefði
eignast barn, - og ríkiserfingjarnir þar með hálf-
bróður, sem yrði hálfur múslimi. Þessari sögu
fylgir oft líka að díana hafi ætlað að giftast dodi
og fara sjálf að játa íslam.
n sumir halda því fram að það hafi ekki verið
díana sem átti að drepa, heldur kærasti hennar
dodi al-fayed. Hann hafi skapað sér óvild vold-
ugra og vel stöndugra auðjöfra vestanhafs og
því hafi þurft að víkja honum úr vegi.
n svo eru auðvitað til þeir sem halda því fram
að þetta hafi allt saman verið sett á svið með
fjármagni al-fayed fjölskyldunnar. samkvæmt
þessari sögu er parið í felum einhvers staðar í
vellystingum í á afvikinni paradísareyju í Ind-
landshafinu. Þeirri sögu fylgir að hún tali reglu-
lega við syni sína prinsana í gegnum fjarfunda-
tækni og myndsíma.
Tvær lögreglurannsóknir sem tóku saman-
lagt nærri fimm ár komust báðar að þeirri
niðurstöðu að morðsamsæriskenningar
væru úr lausu lofti gripnar. En hvað þá með
hvíta bílinn sem aldrei fannst? Eða misvís-
andi niðurstöður úr blóðprufum bílstjórans?
Og 20 milljóna króna hringurinn sem Dodi
sótti sama kvöldið og þau dóu - voru þau
nýtrúlofuð þegar þau létust?
Ljósmyndararnir eltu bíl pars-
ins, rétt eftir hvellinn komu blossar
myndavélanna. Lögregla og sjúkra-
liðar sem komu á vettvang sjö mín-
útum eftir slysið þurftu að byrja á
því að reka ljósmyndarana frá bíl-
hræinu til þess að geta sinnt hinum
slösuðu og rannsakað vettvang.
Al Fayed hefur krafist þess
háum rómi árum saman að yfir-
heyrslur um málið færu fram fyrir
opnum dyrum og að kviðdómur
almennings hefði sitt að segja. Allt
frá byrjun hefur hann haldið því
fram að rannsókn málsins sé mein-
gölluð og byggð á fölskum grunni.
Hann segir að Dodi og Díana hafi
trúlofast þetta sama kvöld og því
hafi verið látið til skarar skríða ein-
mitt þá. Öryggismyndavélar sýni
að Dodi sækir forláta hring í skart-
gripabúð Ritz-hótelsins snemma
laugardagskvöldsins. Faðir hans
segir það hafa verið trúlofunar-
hringinn, hann hafi áður verið bú-
inn að kaupa hann fyrir tæpar 20
milljónir króna. Mohamed hefur
einnig sagt að Díana hafi hringt
til sín þetta sama kvöld til að segja
sér að þau væru trúlofuð og að hún
væri með barni.
TrúA Ekki blóðpruFuM
Strax viku eftir lát Díönu og
sonar hans hélt talsmaður Mo-
hameds blaðamannafund þar sem
reynt var að afsanna að bílstjórinn
Henri Paul hafi verið drukkinn eða
undir áhrifum lyfja. Þar voru birt
myndbönd úr öryggismyndavél-
um af Ritz-hótelinu sem áttu að
sýna fram á þessar staðhæfingar.
Niðurstöður úr blóðprufum
sýndu fram á að til viðbótar við
áfengi, var bílstjórinn á sterkum
lyfjum. Þar fanst bæði geðlyf sem
er sambærilegt við Prozac og lyfið
Tiapridal, sem ávísað er til áfeng-
issjúklinga sem eru að reyna að
berjast við Bakkus. Rannsóknirn-
ar voru tvíteknar að kröfu Moham-
eds en þriðju niðurstöðunum var
haldið leyndum fram í apríl árið
eftir. Sú rannsókn á blóðprufu úr
nára Henris Paul sýndi helmingi
minni vínanda í blóðinu en hinar
tvær.
skjóTA sTOðuM unDir
sAMsæriskEnningAr
Viku eftir slysið segir François
Levistre, sem varð vitni að atburð-
inum, í viðtali við The Times að
hann hafi séð ljósblossa rétt áður
en Benz-bifreiðin rakst á brúar-
stólpann. Seinna dregur hann
reyndar vitnisburð sinn til baka.
Ári eftir bílslysið kom fyrrver-
andi leyniþjónustumaðurinn Ri-
chard Thomlinson fram í viðtali
við breska slúðurblaðið The Peop-
le. Þar sagði hann slysið minna
um margt á áætlun leyniþjónust-
unnar til að ráða serbíska forset-
ann Slobodan Milosevic af dög-
um, sem aldrei var þó notuð. Það
hafi einmitt átt að gerast undir brú
þar sem bílstjórinn væri blindaður
með ljósglampa.
MAðurinn á hvíTA bílnuM
Rannsókn á bílflakinu leiddi í
ljós hvítar lakkleifar sem við rann-
sókn reyndust vera úr hvítum Fiat
Uno sem myndi vera frá árunum
1983-1987. Vitni báru einnig að
hvít Fiat-bifreið hafi komið rás-
andi upp úr göngunum og minnti
að númeraplatan gæfi til kynna
að hún væri úr úthverfum Vestur-
Parísar. Sá bíll hefur aldrei fundist
þrátt fyrir að fleiri en einn bíleig-
andi hafi verið yfirheyrðir. Ein slík
bifreið reyndist í eigu slúðurljós-
myndara og önnur tilheyrði víet-
nömskum öryggisverði en hvorug
þeirra var löskuð á þann hátt sem
passaði við bílflakið í göngunum.
ljósMynDArArnir
sýknAðir
Skýrsla franska rannsóknar-
dómarans Stéphans var birt rétt
rúmum tveimur árum eftir slysið, í
september 1999. Á 6.800 blaðsíðum
kemst hann að þeirri niðurstöðu
að slysið megi rekja til þess að bíl-
stjórinn Henri Paul hafi keyrt allt of
hratt og þar að auki undir áhrifum
áfengis og lyfja. Slúðurljósmyndar-
arnir voru fríaðir af allri ábyrgð og
lagt til að þeir yrðu ekki ákærðir fyr-
ir minnstu aðild að slysinu. Ljós-
myndararnir eltu bíl parsins, rétt
eftir hvellinn komu blossar mynda-
vélanna. Lögregla og sjúkraliðar
sem komu á vettvang sjö mínútum
eftir slysið þurftu að byrja á því að
reka ljósmyndarana frá bílhræinu
til þess að geta sinnt hinum slösuðu
og rannsakað vettvang.
hvEr rAnnsóknin
rEkur AðrA
Mohamed Al Fayed vildi ekki
una niðurstöðum frönsku rann-
sóknarinnar. Hann linnti ekki lát-
unum þó að hæstiréttur í London
hafnaði beiðni hans um rann-
sóknaryfirheyrslur í júlí 2000.
Franskur áfrýjunarréttur staðfesti
rannsóknarskýrslu rannsóknar-
dómarans Stéphans í apríl 2002
og þar með lauk allri rannsókn í
Frakklandi.
Þann 29. ágúst 2003 var hins
vegar loks samþykkt að Bretar
myndu rannsaka dauða Díönu og
Dodis og hófst sú rannsókn í árs-
byrjun 2004. Þremur árum seinna,
um miðjan desember í fyrra, skil-
aði rannsóknarnefnd undir forystu
Stevens lávarðar ítarlegri skýrslu
um málið, þar sem dauða þeirra er
lýst sem „sorglegu slysi“ en tekið
fram að engin ástæða sé til að ætla
að þau hafi verið myrt.
Þá fór Mohamed Al Fayed fram
á að yfirheyrslur færu fram fyr-
ir opnum dyrum og kviðdómur
almennings fengi að hafa sitt að
segja. Dómarinn sneri fyrri úr-
skurði á föstudaginn var og fékkst
þá loks í gegn að kviðdómur myndi
hlýða á framburð vitna. Enn á hins
vegar eftir að koma í ljós hversu
viðamikið málið verður og hvort
það verður yfirhöfuð rannsakað
sem morðmál.
Hvað gerðist
í alvörunni?