Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Side 28
Þ
etta er búið að vera
nokkuð töff en sér-
staklega skemmti-
legt,“ sagði Maríus
þegar við náðum tali
af honum á Holiday
Inn hótelinu í Brem-
erhaven í vikunni. „Við erum sex til
átta söngvarar sem syngjum stærstu
hlutverkin og svo er auðvitað dans-
flokkur. Þetta er glæsilegt „show“.“
Í viðtali við tímaritið Hér og nú
í vetur þegar sýningarferðin var að
hefjast, sagði Maríus að góð hljóðbók
væri alveg nauðsynleg í svona langa
ferð.
„Það er fátt eins hollt fyrir sálina
og að láta lesa fyrir sig úr góðri bók,“
sagði hann þá. „Svo þarf að hafa hlýja
peysu til að kúra sig í og ferðatölvu –
og farsíminn má ekki vera langt und-
an þegar ég verð einmana. Þá þarf ég
að geta hringt í fjölskyldu og vini, því
ekkert í lífinu er dýrmætara en þau“.
Syngur öll stærstu hlutverkin
Hápunktar söngleikjanna eru
fluttir á sýningunum, en þar sem leik-
húsið sem stendur að baki sýningar-
ferðalaginu er austurrískt, er þar líka
að finna lög úr söngleikjum sem ekki
eru þekktir á Íslandi.
„Það eru til dæmis söngleikirn-
ir Elisabeth og Rómeó og Júlía , en
svo erum við auðvitað að flytja lög
úr þessum heimsþekktu söngleikj-
um eins og „Jesus Christ Super-
star“, „Rocky Horror“, Queen, Abba
, Phantom of the Opera og öðrum
slíkum. Ég fer meðal annars með
hlutverk Júdasar í Jesus Christ og
svo með hlutverk Frank n´Further
í Rocky Horror auk fleiri hlutverka,
enda flyt ég öll tenórhlutverkin.“
Ferðalagið hófst í desember og lýk-
ur í lok marsmánaðar. Maríus segir
að það sé ekki nóg að hafa söngvara
sem syngi ágætlega, þeir þurfi að hafa
raddir sem þreytist ekki auðveldlega.
„Þetta er mikil keyrsla og mikið
álag,“ segir hann. „Við búum í rútu,
gistum á hótelum, æfum og sýnum
öll kvöld. Það er lífið þessa dagana,“
segir hann glaðlega. „Við höfum keyrt
um Þýskaland þvert og endilangt og
stoppum svo stutt í hverri borg að
ég á fullt í fangi með að muna í upp-
hafskynningunni í hvaða borg ég er
staddur í það skiptið. Það væri frek-
ar hallærislegt að segja: „Velkom-
in, það er gaman að vera með ykkur
hér í Berlín“, þegar við erum kannski
í Hannover!“ segir hann skellihlæj-
andi.
Honum reynist létt að vera kynnir
kvöldsins og ræða við áhorfendur.
„Ég er náttúrlega búinn að búa í
Austurríki og Þýskalandi í þrettán ár
og þessi heimur, sýningarheimurinn,
er orðinn mér svo eðlilegur. Þetta er
starf mitt.“
Skiptir um gervi tólf sinnum á
kvöldi
Sýningarnar „Die Nacht der Musi-
cals“, Nótt söngleikjanna, er byggð á
alþjóðlegum grunni. Auk Maríusar
frá Íslandi er í sýningunni listafólk frá
Bretlandi, Bandaríkjunum og Ung-
verjalandi
„Við erum flest á aldrinum 25-35
ára,“ segir Maríus og viðurkennir að
vissulega sé stundum erfitt að búa í
ferðatösku og sofa aldrei í sama rúm-
inu.
„Það er hugsað ágætlega um okk-
ur og við gistum á ágætis hótelum, en
það var yndislegt þegar við sýndum í
Berlín þrjú kvöld í röð að mega sofa í
eigin rúmi,“ segir hann, en Maríus á
eigin íbúð í Berlín. “Maður hefur ekki
mikinn tíma einn með sjálfum sér...,“
bætir hann við. „Venjulega byrja ég
á að fara hraðferð yfir þá borg sem
við erum stödd í, til að byggja upp
stemmningu fyrir kvöldið en svo hef-
ur maður ekki nema kannski tvo tíma
til að slaka á áður en farið er í smink,
búninga og upphitun. En í þessari
sýningu gefst færi á að sýna allt sem
í manni býr, söng, dans og leik.... Ég
skipti um gervi tíu til tólf sinnum á
kvöldi og sýningin tekur þrjár klukku-
stundir í flutningi.“
Maríus er þaulvanur söngleikja-
söngvari. Hann hefur tekið þátt í
fjölda söngleikja í Þýskalandi, Aust-
urríki, Sviss og Bretlandi. Í Austurríki
söng hann í hinum ódauðlega söng-
leik „Sound of Music“, í söngleiknum
„Moses“ á West End í Lundúnum og
Kabarett er einn þeirra söngleikja sem
hann hefur farið með stórt hlutverk í.
Þá fór Maríus með eitt viðamesta hlut-
verkið í söngleiknum “Titanic” í Ham-
borg, hlutverkið sem sjálfur Leonardo
DiCaprio lék í kvikmyndinni.
„Já, þar fór ég með hlutverk Jim
Farrell og nú var ég að fá beiðni um
að koma til Hamborgar aftur þar sem
sérstakir styrktartónleikar verða flutt-
ir 16. apríl með stórri hljómsveit. Það
verður gaman að hitta allt samstarfs-
fólkið úr Titanic því það var ógleym-
anlegur tími.“
Róið á ný mið
En Maríus syngur ekki bara söng-
leikjatónlist. Hann hefur komið fram
með Sinfóníuhljómsveit Íslands þar
sem hann flutti meðal annars ís-
lensk þjóðlög á ógleymanlegan hátt
og í vetur kom hann heim til Íslands,
kenndi söng og stóð fyrir námskeið-
um fyrir íslenska leikara. Er mikill
munur að syngja fyrir þýska áhorf-
endur og íslenska?
„Nei, það er í rauninni enginn
munur, en hins vegar er fjöldinn
hér auðvitað gríðarlegur. Við höfum
bæði komið fram í litlum leikhúsum,
í tónleikahöllum og stórum íþrótta-
höllum, þannig að áheyrendur hafa
verið frá fimm hundruð upp í fimm
þúsund manns á kvöldi.“
Það er byrjað að kalla á bak við
Maríus. Hópurinn á að fara að koma
sér í rútuna sem flytur þau í tónlistar-
húsið. Ég spyr hann að lokum hvort
þessi heimur, heimur leikhúss og tón-
listar, sé jafn skemmtilegur og hann
hafði talið hann vera, þegar hann hóf
nám við Tónlistarháskólann í Vínar-
borg fyrir þrettán árum.
„Þetta er nú góð spurning,“ segir
hann og hugsar sig um smá stund.
„Já, þetta hefur verið skemmtileg-
ur og lærdómsríkur tími, en ef ég á
að vera alveg heiðarlegur, þá er ekki
ólíklegt að ég fari að róa á ný mið
núna. Ég er orðinn 33ja ára og búinn
að vera í þessum heimi í mörg ár.“
Fyrirgefðu. En heyri ég örla á
heimþrá í röddinni?
„Já, ég er alltaf með smá heim-
þrá,“ viðurkennir hann hikstalaust.
„Sérstaklega kannski núna þegar ég
hef verið á ferðalagi í þrjá mánuði
og hef ekki getað verið í miklu sam-
bandi við fjölskyldu mína. Ég sakna
alltaf vina minna og fjölskyldu á
Íslandi – og kannski mest akkúr-
at núna. Nú ætla ég að koma söng-
leikjunum út úr kerfinu því ég er
sannfærður um að það er eitthvað
nýtt sem bíður mín.“
Það sem hann veit að bíður hans
er að minnsta kosti það að lag í flutn-
ingi hans og Ítalans Andrea Dessi
verður notað í kvikmynd sem stórfyr-
irtækið Warner Brothers framleiðir
á árinu. Tilviljanir eru ekki til; hann
fékk fréttirnar meðan við vorum að
vinna að þessu stutta viðtali!
„Já, það var ótrúlegt að fá þær
fréttir!“ segir hann. „Lagið „Life Is
life“, sem við Andrea fluttum á geisla-
disknum okkar, Mobile, verður not-
að í kvikmynd á árinu. Kannski ég
gefi út annan geisladisk fljótlega...“
En segðu mér eitt, af því þú talar
um að koma söngleikjum út úr kerf-
inu: Getur maður virkilega fengið
leið á söngleikjum?
„Nei, ekki söngleikjum. En maður
getur hins vegar fengið leið á sjálfum
sér í söngleikjum!“
föstudagur 9. mars 200728 Helgarblað DV
Íslensk stjarna skín
á nóttum söngleikjanna
„Nótt söngleikjanna“ er yfirskrift tónleikaferðar sem lagt var af stað með um Þýskaland í desember.
Áhorfendur skipta þúsundum og kynnir kvöldins, sem gengur meðal sýningargesta og kynnir atriðin
er jafnframt aðalsöngvari sýningarinnar. Hann er Íslendingurinn Maríus Hermann Sverrisson.
Stefnir á ný mið.
maríus Hermann sverrisson hefur
verið söngleikjastjarna víða um
heim. Hann hyggst nú róa á ný mið.
Lék í kvikmynd maríus hefur ekki látið
sér nægja að syngja, dansa og kenna;
hann fór með eftirminnilegt hlutverk í
kvikmyndinni „strákarnir okkar“.
„Í rauninni er enginn
munur á því að syngja
fyrir Íslendinga eða
Þjóðverja, en hins veg-
ar er fjöldinn hér auð-
vitað gríðarlegur. Við
höfum komið fram í
litlum leikhúsum, í tón-
leikahöllum og stórum
íþróttahöllum, þannig
að áheyrendur hafa
verið frá fimm hundr-
uð upp í fimm þúsund
manns á kvöldi.“
ANNA KRiStiNe
blaðamaður skrifar: annakristine@dv.is