Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Qupperneq 30
Klukkan fjögur á laugardag mætast
Fram og Stjarnan í bikarúrslitaleik
karla. Síðustu helgi var boðið upp
á forrétt að þessum úrslitaleik þeg-
ar liðin áttust við í DHL-deildinni.
Framarar unnu þar fjögurra marka
sigur en Safamýrarliðið hefur unn-
ið allar þrjár viðureignir þessara lið
í deildinni í vetur. Stjörnumenn eru
núverandi bikarmeistarar eftir að
hafa unnið Hauka í úrslitaleiknum í
fyrra en Íslandsmeistarar Fram vilja
taka þann bikar yfir til Reykjavíkur.
„Við fórum mjög erfiða leið í
þennan úrslitaleik og þurftum að
slá út mjög sterk lið, mættum Fylki
og svo Akureyri og Hauka á útivöll-
um. Fyrir okkur getum við því ekki
verið annað en sáttir með að vera
komnir í Höllina. Þetta er spennandi
verkefni fyrir mína stráka, ég er með
mjög ungt lið og stutt síðan margir af
þessum strákum voru í 2. flokki. Þar
má nefna Sigfús (Sigfússon) og Jó-
hann (Gunnar Einarsson) sem eru
lykilmenn í liðinu í dag. Stór hluti
leikmanna liðsins hefur ekki spilað
í úrslitum áður,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari Fram.
Hann segir að liðið breyti lítið
sem ekkert út af vananum í undir-
búningi sínum fyrir þennan leik. „Við
leggjum bara meira á okkur í vikunni
á öllum sviðum. Annars breytum við
ekkert út af vananum í okkar undir-
búningi. Þetta er einn stærsti leikur
vetrarins ef ekki sá stærsti og alltaf
gríðarleg stemning í kringum bik-
arúrslitaleikina,“ sagði Guðmundur.
Aðeins eitt stig skilur liðin að í deild-
arkeppninni þar sem þau eru í þriðja
og fjórða sætinu.
Bæði lið hafa átt frekar kaflaskipt
tímabil en snemma í vetur var alveg
ljóst að Evrópukeppnin tók talsverð-
an toll af Safamýrarpiltum. „Stjörnu-
liðið er mjög vel mannað og líklega
má segja að þeir séu með einn besta
mannskapinn á Íslandi í dag. Þeir
hafa fjóra erlenda leikmenn, þó Rol-
and Eradze sé vissulega orðinn ís-
lenskur ríkisborgari, og svo toppleik-
mann eins og Patrek Jóhannesson.
Þetta er mjög vel mannað lið á ís-
lenskan mælikvarða og á pappírn-
um kannski sterkara en okkar lið. Þó
við höfum haft betur í innbyrðisvið-
ureignum við Stjörnuna í vetur má
ekki gleyma því að þeir hafa verið að
glíma við meiðsli. Nú eru þeirra lyk-
ilmenn samt komnir aftur í gang og
við erum að fara að mæta mun sterk-
ara Stjörnuliði en við höfum hingað
til glímt viðm,“ sagði Guðmundur.
Hann býst við mikilli stemn-
ingu í Laugardalshöllinni. „Það
verður vonandi vel mætt, bæði
og úr Garðabænum og ekki síst
úr Safamýrinni. Bæði lið vilja
fá góðan stuðning og ég býst við
skemmtilegum leik í Höllinni,“
sagði Guðmundur en þess má geta
að Framarar unnu uppkast og
spila því í bláu aðalbúningunum
sínum. „Við erum að sjálfsögðu
mjög sáttir við það enda blár okk-
ar litur.“
Mikil spenna í Garðabæ
Kristján Halldórsson tók við
Stjörnunni á þessu tímabili en fyr-
ir leikinn gegn Fram síðasta laugar-
dag var Garðabæjarliðið ósigrað á
árinu 2007. „Við þekkjum svona stór-
leiki og mikil spenna í bæjarfélag-
inu fyrir þennan leik.Það má kalla
þetta meistarakeppnisleik, við erum
ánægðir með að komast í úrslitin
annað árið í röð og glaðir
með mótherjana. Það
er hápunktur vetr-
arins að komast í
Laugardalshöllina.
Leikirnir við Fram á
undan þessum telja
ekkert og ég held
að leikmenn komi
með allt annað hug-
arfar
inn í
þennan leik. Menn munu njóta
augnabliksins, fá að spila fyrir fram-
an fullt af fólki í leik um bikar,“ sagði
Kristján.
„Ég skynja enn betri stemningu
innan hópsins og það eru breyttar
áherslur í þjálfuninni fyrir leikinn.
Það truflar okkur nokkuð að hafa
tapað fyrir Fram í deildinni um síð-
ustu helgi en það var fyrsta tap okkar
á þessu ári. Við verðum að hrista það
af okkur. Á laugar-
daginn sýndi sig
hvað Patrekur
er mikilvægur
liðinu en við
mætt- um
illa undirbúnir til seinni hálfleiks-
ins,“ sagði Kristján en meiðsli Patreks
reyndist ekki alvarleg og hann spilar
á laugardag. „Það er spurning hvort
hann fái ekki lánuð gleraugu frá Fúsa
(Sigfúsi Sigfússyni)? Mér skilst að
hann eigi nóg af þeim.“
Stjarnan á bestu stuðnings-
mannasveit landsins í handboltan-
um og er Kristján stoltur af henni.
„Þeir hafa undirbúið sig mjög vel
fyrir þennan leik, samið nýja söngva
og gert pappaspjöld af Patreki í fullri
stærð svo eitthvað sé nefnt. Stjarnan
verður með mikla hátíð í Ásgarði fyr-
ir leik þar sem verður andlitsmálun
fyrir börnin og hoppukastalar fyrir
börnin. Svo verða rútuferðir þaðan
og niður í Laugardal,“ sagði Kristján
en honum er alveg sama þó hans
lið þurfi að spila í varabúningun-
um í leiknum. „Meðan mínir
leikmenn spila allir í sama lit
og gefa á hvorn annan þá er
ég sáttur.“
Stjarnan mun eitthvað
breyta út af vananum í sín-
um undirbúningi. „Venju-
lega gef ég frí einu sinni
í viku en við ákváðum
að æfa alla daga vik-
unnar fyrir þennan
leik. Kvöldið fyr-
ir leik borðum
við saman og
kíkjum síðan á
æfingu í Höll-
inni. Það verð-
ur samt ekkert
hótel og eng-
inn Gaui Þórð-
ar eða Guðjón
Ingi. Ég á þó von
á að bæjarstjórinn
kíki með okkur í mat-
inn kvöldið fyrir leik enda
mikill handboltaáhugamað-
ur og Stjörnumaður. Hann er
gömul stjarna úr FH og þekkir
þetta vel,“ sagði Kristján Hall-
dórsson.
Stjarnan vinnur ef allir verða með
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari
Vals sem er í toppsæti DHL-deild-
arinnar, býst við skemmtilegum úr-
slitaleik í karlaflokki. „Þetta er stærsti
leikur ársins og jafnframt sá skemmti-
legasti. Það var gaman að fá smá for-
leik að þessum úrslitaleik síðasta
laugardag. Í tveimur af þessum þrem-
ur leikjum sem Fram vann Stjörnuna
þá var Garðabæjarliðið ekki með fullt
lið. Það var aðallega síðasti leikur sem
sagði mikið og hann gaf Fram enn
meira sjálfstraust,“ sagði Óskar við DV.
„Þegar komið er í bikarleik skipta
fyrri úrslit ekki máli. Þetta er bara ein-
stakt tækifæri fyrir liðin og bikar er
alltaf bikar,“ sagði Óskar sem var næst
beðinn um að meta styrkleika og
veikleika Framliðsins. „Fram-
arar eru mjög vel þjálfaðir og
spila vel saman sem lið. Þeir
keyra hraðaupphlaupin vel
og spila mjög vel á sína
hornamenn. Liðið er þó
mjög ungt og sveiflu-
kennt samhliða því,
mér finnst vanta svona
tvo til þrjá jaxla með
þeim.“
Hann segir það skipta
miklu máli hverjir séu með hjá Stjörn-
unni. „Roland meiddist undir lok-
in í síðasta leik og ef hann verður
ekki með hefur það ótrúlega mikið
að segja. Stjarnan hefur einnig keyrt
hraðaupphlaupin vel í vetur, þó leik-
menn liðsins sé margir stórir og þung-
ir eru þeir góðir að keyra í bakið á
andstæðingunum. Patrekur verður að
vera með og þá verður vörnin að vera
sterk. Stjarnan er með reyndasta lið
deildarinnar og ef allir eru heilir eru
þetta mun fleiri kíló af reynslu en hjá
Fram,“ sagði Óskar.
Hann spáir því að Stjarnan muni
fara með sigur af hólmi. „Ég vil meina
að Stjarnan sé sigurstranglegra ef allir
eru með. Ef þeir hugsa um sjálfan sig,“
sagði Óskar Bjarni Óskarsson.
elvargeir@dv.is
föstudagur 9. mars 200730 Sport DV
Það má reikna
með hörkuleik á
laugardaginn í
Laugardalshöll
þegar Fram og
Stjarnan eigast
við í bikarúrslita-
leik karla í hand-
bolta. Í þessum
leik mætast Ís-
landsmeistararn-
ir og bikarmeist-
ararnir.
Sannkallaður
draumaúrSlita-
leikur
Alvöru úrslitaleikur sigfús
sigfússon, leikstjórnandi fram,
í baráttu við arnar frey
theódórsson og Patrek
Jóhannesson í viðureign
liðanna um síðustu helgi.
Ef Roland verður með vinnur
Fram Óskar Bjarni Óskarsson,
þjálfari Vals, segir að það skipti
miklu máli fyrir stjörnuna að
markvörðurinn roland Valur
Eradze verði heill á laugardag.