Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Qupperneq 35
DV Sport föstudagur 9. mars 2007 35
Einn stærsti, ef ekki sá stærsti,
nágrannaslagur í Evrópu fer fram
um helgina þegar Inter og AC Milan
mætast á Giuseppe Meazza vellinum
í Mílanó.
Inter Milan er lang efst í ítölsku
A-deildinni. Inter hefur sextán stiga
forskot á Roma á toppi deildarinn-
ar og liðið hefur ekki enn tapað leik
í deildinni.
AC Milan hóf leiktíðina með átta
stig í mínus og hefur hægt og bít-
andi verið að vinna sig upp töfluna.
AC Milan situr sem stendur í stjötta
sæti deildarinnar og í harðri baráttu
um að vinna sér sæti í Meistaradeild
Evrópu á næsta tímabili.
Brasilíumaðurinn Ronaldo er
hér að mæta sínum gömlu félögum
í Inter. Ronaldo hefur spilað með
fjórum að stærstu knattspyrnulið-
um heims.
Ronaldo var keyptur til Barcelona
árið 1996 þar sem hann lék eitt tíma-
bil. Árið 1997 flutti hann sig um set
til Mílanó þar sem hann lék með Int-
er til ársins 2002. Ronaldo lenti í erf-
iðum meiðslum á meðan dvöl hans
hans hjá Inter stóð yfir en náði þó að
skora 49 mörk í 68 leikjum fyrir fé-
lagið.
Árið 2002 festi Real Madrid kaup
á Ronaldo fyrir 39 milljónir evra eða
um 3,6 milljarða króna. Ronaldo var
aðalsóknarmaður Real Madrid þar
til Fabio Capello tók við liðinu síð-
asta sumar. Ronaldo var svo seldur
til AC Milan í janúar fyrir rúmlega
500 milljónir króna. Ronaldo hefur
komið við sögu í fimm leikjum með
AC Milan á þessari leiktíð og skorað
tvö mörk.
Þrátt fyrir að vera erkifjendur er
ekki óalgengt að leikmenn gangi
kaupum og sölum á milli Inter og AC.
Til að mynda hafa Clarence Seedorf,
Andrea Pirlo, Dario Simic, Giuseppe
Favalli og Cristian Brocchi leikmenn
AC Milan allir spilað fyrir Inter á sín-
um ferli.
Eitthvað minna er um að núver-
andi leikmenn Inter hafi spilað fyrir
AC Milan á ferlinum. Patrick Vieira
og Hernan Crespo eru einu leikmenn
Inter sem hafa verið í herbúðum AC
Milan á sínum ferli.
Liðin deila með sér heimavelli
sem ber heitið Giuseppe Meazza.
Völlurinn heitir eftir ítölskum knatt-
spyrnumanni sem lék lengst af með
Inter. Meazza færði sig um set til AC
Milan árið 1940 og var fyrsti leikmað-
ur sögunnar til að spila fyrir bæði
Mílanó liðin. Völlurinn er þó oftast
kallaður San Siro.
Fyrri leikur liðanna á þessari leik-
tíð var 28. október þar sem Inter fór
með sigur af hólmi, 4-3. Tíu gul spjöld
litu dagsins ljós þar sem Marco Mat-
erazzi, leikmaður Inter, fékk tvö
þeirra og því rautt. Hernan Crespo,
Dejan Stankovic, Zlatan Ibrahimov-
ic og Marco Materazzi skoruðu mörk
Inter í leiknum en mörk AC Milan
skoruðu þeir Clarence Seedorf, Al-
berto Gilardino og Kaká.
dagur@dv.is
Ítölsku stórliðin Inter Milan og AC Milan mætast á sunnudaginn í einum stærsta nágrannaslag Evrópu.
Ronaldo mætiR sínum gömlu félögum í inteR milan
Aftur til Mílanó ronaldo gekk í raðir
aC milan í janúar en hann lék á sínum
tíma með Inter.
Umdeildur marco materazzi er einn
umdeildasti leikmaður heims. Hann fékk
að líta rauða spjaldið í fyrri leik liðanna.
R ígurinn á milli spænsku stórliðanna Barcelona og Real Madrid er talinn vera einn sá mesti í knatt-spyrnuheiminum. Allt frá dögum einræðisherr-
ans Francos sem bannaði Katalón-
um að tala katalónsku til Luis Figo
þá hafa þessi lið ekki átt upp á pall-
borðið hvort hjá öðru. Rígurinn milli
stuðningsmannanna er engu minni.
Stuðningsmenn liðanna láta yfirleitt
ekki sjá sig á völlum hins liðsins og
eru forsetar félaganna yfirleitt einu
stuðningsmennirnir á útivöllum.
Franco var mikill stuðnings-
maður Real Madrid og leyfði ekki
félagaskipti Alfredos di Stefano til
Barcelona á sínum tíma. Í staðinn
sannfærði hann di Stefano um að
semja við Real Madrid. Þar sló leik-
maðurinn í gegn og myndaði ásamt
Ferenc Puscas eitt allra besta fram-
herjapar sögunnar. Real Madrid hef-
ur unnið fleiri titla en Barcelona, 69
stóra titla á móti 57 hjá Barcelona. Þá
hefur Real unnið Meistaradeildina
níu sinnum á móti tveimur sigrum
Börsunga.
Vandræðaástand
Það er vandræðaástand í herbúð-
um beggja liða. Forseti Real Madrid
Ramón Calderon vann umdeildar
kosningar, leikmenn rífast í fjölmiðl-
um og aðdáendur eru ekki hrifnir af
leikstíl Fabios Capello þjálfara. Bar-
celona hefur ekki verið jafnsannfær-
andi á þessu tímabili og á því síð-
asta. Mikið hefur verið rætt og ritað
um form Ronaldinhos, sumir segja
að hann hafi aðeins verið skugginn
af sjálfum sér á meðan aðrir benda
á þá staðreynd að hann hefur skor-
að 17 mörk og tryggt Barcelona fleiri
stig en á sama tíma í fyrra.
„Liðið barðist vel [gegn Liverpool]
og nú erum við skyldugir til að standa
okkur vel í deildinni. Nú þurfum við
að leggja mikið á okkur á hverjum
degi og gera okkar besta til að vinna
deildina. Það verður erfitt en þannig
er fótboltinn og við þurfum að kom-
ast yfir þetta tap af því að næsti leikur
er erfiður leikur gegn Real Madrid,“
sagði portúgalski landsliðsmaðurinn
Deco eftir að Barcelona datt út úr
Meistaradeild Evrópu í vikunni.
Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona,
hengdi ekki haus þrátt fyrir að liðið
hafi dottið úr Meistaradeildinni. „Ef
við leikum eins og við gerðum núna,
með því stolti sem við sýndum, þá er
meiri möguleiki á að heppnin gangi í
lið með okkur. Ef ekki þá verður þetta
mjög erfitt. Þetta var mjög slæmt
kvöld en við verðum að halda haus
og jafna okkur á þessu. Það er enn
mikið til að keppa að,“ sagði Rijkaard
eftir leikinn á þriðjudaginn.
Draumur að spila þennan leik
„Leikurinn í Meistaradeildinni
hefur engin áhrif á okkur í leiknum
á Camp Nou. Það er mjög mikilvægt
fyrir okkur að vinna Barcelona til að
halda í við þá í deildinni. Barcelona
átti líka erfiðan leik í vikunni gegn
Liverpool,“ sagði Roberto Carlos,
leikmaður Real Madrid.
„Það er alltaf gaman að spila við
Barcelona. Leikmenn dreymir um að
spila þessa leiki. Vonandi næ ég að
spila allan leikinn og vonandi vinn-
um við hann. Við getum vel unnið
þennan leik. Allir verða að standa
undir væntingum og framkvæma það
sem við gerum á æfingum. Við leggj-
um hart að okkur og það er góður
andi í liðinu. Ég er viss um að gengið
batnar ef við sýnum hvað við getum
á vellinum,“ bætti Carlos við.
Real Madrid vann fyrri leik lið-
anna á leiktíðinni 2-0 með mörkum
frá Raúl og Ruud van Nistelrooy. Bar-
celona vann síðast sigur á Real Madr-
id 19. nóvember 2005. Síðasti leikur
liðanna á Nývangi, heimavelli Barce-
lona, endaði með 1-1 jafntefli. Real
Madrid hefur gengið ágætlega gegn
Barcelona á Nývangi. Barcelona hef-
ur eingöngu unnið eina af síðustu sex
við-
ureignum sín-
um gegn Real
Madrid á heima-
velli, Real Madrid
hefur unnið tvisvar og
þrisvar hafa liðin skilið
jöfn.
Ludovic Giuly og Gian-
luca Zambrotta verða fjarri
góðu gamni í liði Barcelona
um helgi þar sem þeir félagar
afplána leikbann. Það eru einn-
ig skörð höggvin í lið Real Madrid
því David Beckham og Jose Anton-
io Reyes eru meiddir og missa því af
leiknum. dagur@dv.is
BaRcelona
Real MadRid
Risarnir Barcelona og Real Madrid mætast í spænsku deildinni á laugar-
daginn. Hvorugt liðanna hefur staðið undir væntingum á leiktíðinni og
líta því bæði á þennan leik sem tækifæri til að snúa blaðinu við.
Raúl að skora fyrirliði real madrid
skoraði fyrra mark liðsins í 2-0 sigri á
Barcelona fyrr á leiktíðinni.
Hann er þekktur...
fyrir sín þrumuskot.
roberto Carlos hefur
skorað mörg falleg
mörk á ferlinum með
þrumuskotum.
Ekki lengur efnilegur Lionel
messi, leikmaður Barcelona, er
orðinn einn af lykilmönnum liðsins.