Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Side 36
föstudagur 9. mars 200736 Sport DV
Ekkert lið í Evrópu hefur eins marga spennandi unga leikmenn og enska liðið Arsenal.
CesC Fabregas
19 ára miðjumaður
26 deildarleikir á tímabilinu
Leikmaður sem þarf vart að kynna. Hefur
risið ótrúlega hratt á síðustu tveimur árum
og er nú þegar talinn í heimsklassa. Var í
herbúðum Barcelona en með miklum
klókindum krækti arsenal í þennan
leikmann. Á Hm u17 landsliða fékk hann
gullskóinn og var valinn besti leikmaðurinn.
Þegar Patrick Vieira meiddist fékk fabregas
tækifærið hjá arsenal og stóð sig hreint
frábærlega. Hann klúðraði varla sendingu og
sýndi hve gífurlega mikla hæfileika hann
hefur. Hann varð yngstur til að leika fyrir
aðallið arsenal þegar hann lék í deildabikar-
leik í lok árs 2003. Er í dag algjör lykilmaður á
miðju arsenal og hefur leikið 14 a-landsleiki
fyrir spán.
armand Traore
17 ára vinstri bakvörður
engir deildarleikir á tímabilinu
Lofar mjög góðu ef mið er tekið af frammi-
stöðu hans í þeim leikjum sem hann hefur
leikið fyrir aðallið arsenal í bikarkeppnum. Er
franskur múslimi sem kom til liðsins í ágúst
2005 frá monaco. spilar enn nánast
eingöngu með varaliðinu en hans fyrsti
leikur fyrir aðallið arsenal var í bikarkeppn-
inni gegn West Bromwich albion í október í
fyrra en þá kom hann inn sem varamaður
snemma leiks. Hann var í byrjunarliðinu í
leikjum gegn Everton, Liverpool, tottenham
og svo í úrslitaleik deildabikarsins þar sem
arsenal tapaði fyrir Chelsea fyrir skömmu. Er
eini leikmaður franska u17 landsliðsins sem
ekki leikur í heimalandinu.
Theo WalCoTT
17 ára sóknarmaður
14 deildarleikir á tímabilinu
mjög hæfileikaríkur sóknarmaður sem talinn
er að verða lykilmaður í enska landsliðinu í
framtíðinni. Ólst upp í smáþorpinu Compton
á Englandi. Var í herbúðum swindon town
áður en hann hélt til southampton.
tímabilið 2004-05 vakti hann athygli fyrir
frammistöðu sína með unglingaliði
southampton og varð yngsti leikmaðurinn
til að leika fyrir varalið félagsins, fimmtán
ára. Hans frumraun með aðalliðinu kom
síðan tímabilið á eftir þegar hann var sextán
ára og 143 daga gamall í leik gegn Bolton í
ensku 1. deildinni. 18. október 2005 kom
síðan fyrsta mark hans í enskri deildar-
keppni. Hann vakti athygli og arsenal fékk
hann til sín. mjög umdeilt var þegar hann
var valinn í enska landsliðið fyrir heims-
meistarakeppnina í sumar og spilaði hann
síðan ekkert á mótinu.
denilson
19 ára miðjumaður
3 deildarleikir á tímabilinu
mjög spennandi leikmaður sem er nú
fyrirliði u19 landsliðs Brasilíu. Hóf feril sinn
með liði são Paulo og spilaði tólf leiki fyrir
liðið þegar það vann Libertadores bikarinn
og Hm félagsliða. talið er að arsene Wenger
hugsi denilson sem arftaka gilberto silva í
framtíðinni. Í ágúst 2006 keypti arsenal
hann og lék hann fyrsta leik sinn fyrir aðallið
félagsins 24. október en það var deildabikar-
leikur gegn WBa. Hans fyrsti úrvalsdeildar-
leikur var 30. desember 2006 í leik gegn
sheffield united á útivelli. Hann hefur einu
sinni verið í a-landsliðshópi Brasilíu en hefur
enn ekki spilað fyrir liðið. Það er þó aðeins
tímaspursmál hvenær það verður.
ArsenalFramtíðin björt hjá
Aðrir spennAndi
leikmenn hjá
ArsenAl
nicklas Bendtner
19 ára danskur sóknarmaður sem er á
lánssamningi hjá Birmingham. Hávaxinn
strákur sem getur bæði lagt upp og skorað.
mark randall
17 ára miðjumaður sem skrifaði undir
atvinnumannasamning í síðasta mánuði.
spilaði sinn fyrsta leik með aðalliðinu í
deildabikarleik gegn WBa í október.
kerrea Gilbert
tvítugur hægri bakvörður sem einnig getur
spilað á miðjunni. sterkur strákur sem er á
láni hjá Cardiff. Á tvo leiki að baki fyrir aðallið
arsenal.
matthew Connolly
19 ára varnarmaður sem kemur úr unglinga-
starfi arsenal. Kom m.a. inn sem varamaður í
deildabikarleiknum gegn Liverpool í janúar.
Gavin hoyte
16 ára og er yngri bróðir Justin Hoyte sem
spilar fyrir arsenal. getur spilað allstaðar í
vörninni. Hefur verið hjá félaginu síðan hann
var níu ára.
Johan dJourou
20 ára sóknarmaður
18 deildarleikir á tímabilinu
miðvörður sem margir stuðningsmenn
arsenal sjá fyrir sem framtíðarmann við hlið
Kolo toure í hjarta varnarinnar. “Chim
chiminy, chim chiminy, chim chim chiroo,
who needs sol Campbell when we’ve got
djourou?” syngja stuðningsmenn arsenal
um hann. fæddur í fílabeinsströndinni en
var ættleiddur af fyrrum eiginkonu föður
síns sem er frá sviss. Þau fluttust til heima-
lands hennar og spilaði djourou fyrir
landslið sviss í fyrsta sinn fyrir ári síðan.
fimmtán ára gekk hann í unglinga-
akademíu arsenal og eins og flestir efnilegir
leikmenn arsenal fékk hann eldskírn sína
með aðalliðinu í deildabikarleik. Það var
síðan 14. janúar 2006 sem hann lék fyrsta
leik sinn í úrvalsdeildinni, lék í miðverðinum
í stórsigri á Bolton 7-0. Hann á nú 23 leiki
fyrir aðallið arsenal að baki.
alexandre song
20 ára miðjumaður
2 deildarleikir á tímabilinu
Er nú á lánssamningi hjá Charlton. Leikmað-
ur frá Kamerún sem bæði getur leikið í vörn
og á miðjunni. Hann er frændi rigoberts
song sem lék með Liverpool. song vakti
fyrst athygli með Bastia og mörg stórlið
Evrópu höfðu áhuga en hann kaus að ganga
til liðs við arsenal. Hann fékk sín fyrstu
tækifæri á síðasta tímabili í leikjum þar sem
fabregas og gilberto silva voru hvíldir. Hann
skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið í 6-3
sigurleik gegn Liverpool 9. janúar síðastlið-
inn og í lok mánaðarins var hann síðan
lánaður til Charlton út leiktíðina.
abou diaby
20 ára miðjumaður
engir deildarleikir á tímabilinu
frakkinn Vassiriki abou diaby er venjulega
kallaður millinafni sínu, abou. Hans
aðalstaða er á miðri miðjunni. Árið 2003
gekk hann í raðir auxerre. Hann lék tíu leiki
og skoraði eitt mark í mótsleikjum fyrir
aðallið félagsins. Erkifjendurnir Chelsea og
arsenal vildu fá abou í sínar ráðir en hann
valdi síðarnefnda liðið og skrifaði undir
samning í janúar 2006. síðan þá hefur hann
skorað eitt mark í tólf leikjum fyrir enska
liðið. Hann ökklabrotnaði á síðasta tímabili
eftir tveggja fóta tæklingu frá dan smith,
leikmanni sunderland, og var frá í átta
mánuði. Hann snéri aftur í janúar síðastliðn-
um þegar hann kom inn sem varamaður
gegn Liverpool í deildabikarnum. Hann er
leikmaðurinn sem sparkaði í höfuð John
terry í úrslitaleik deildabikarkeppninnar.
Í leikmannahópi Arsenal er fjöldi
kornungra leikmanna sem hefur vak-
ið mikla athygli. Uppbyggingarstarf
Arsene Wenger lítur ansi spennandi
út og hefur hann sýnt ungum leik-
mönnum mikið traust. Arsenal hefur
marga góða og unga leikmenn í sín-
um hópi en DV kynnti sér björtustu
vonir liðsins sem eru tuttugu ára og
yngri. Sumir þeirra hafa þegar slegið
rækilega í gegn en hinir eru farnir að
banka fast á dyrnar.