Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Blaðsíða 41
DV Ættfræði föstudagur 2. mars 2007 41
Starfsferill
Siv fæddist í Ósló 10.8. 1962 en
ólst upp á Seltjarnarnesinu. Hún
lauk stúdentsprófi frá MR 1982 og
BS-prófi í sjúkraþjálfun frá HÍ 1986.
Siv var sjúkraþjálfari hjá Styrktar-
félagi lamaðra og fatlaðra 1986-88,
starfaði sjálfstætt sem sjúkraþjálf-
ari 1988-95, leiddi sameiginlegan
lista við bæjarstjórnarkosningarnar
á Seltjarnarnesi 1990 og 1994 og var
þar bæjarfulltrúi 1990-98, var alþm.
Framsóknarflokksins í Reykjaneskj-
ördæmi 1995-2003 og í Suðvestur-
kjördæmi frá 2003, var umhverf-
isráðherra og samstarfsráðherra
Norðurlanda 1999-2004 og er heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
frá 7.3. 2006.
Siv var ritari Skólafélgs MR 1980-
81, sat í ritstjórn Stúdentablaðs HÍ
1983-84, í stjórn Badmintonsam-
bands Íslands 1984-85 og 1998-2001,
sat í samstarfsnefnd Norræna félags-
ins og Æskulýðssambands Íslands
1986-90, í Sambandsstjórn Æsku-
lýðssambands Íslands 1988-90, í
framkvæmdastjórn Norræna félags-
ins 1989-95, var formaður SUF 1990-
92, sat í framkvæmdastjórn Fram-
sóknarflokksins 1990-92, í landstjórn
flokksins 1990-2006 og í miðstjórn
frá 1990, í jafnréttisnefnd Framsókn-
arflokksins, í nefnd um velferð barna
og unglinga 1992, formaður nefndar
um starfsmat til að minnka launa-
mun kynjanna 1995-99, var for-
maður byggingarnefndar barnaspít-
ala Hringsins á Landspítalalóðinni
1996-99, formaður nefndar um auk-
inn hlut kvenna í stjórnmálum 1998-
99 og sat í stjórn Viðskiptaháskólans
á Bifröst 2004-2006.
Siv sat í utanríkismálanefnd Al-
þingis 1995-99 og var varaformaður
nefndarinnar 2004-2006, var vara-
formaður heilbrigðismálanefndar
Alþingis 1995-99 og 2004-2006, var
varaformaður félagsmálanefndar
1995-99 og formaður hennar 2004-
2006, sat í Efnahags- og viðskipta-
nefnd 2004-2006, sat í Íslandsdeild
Norðurlandaráðs, var varaformað-
ur Evrópunefndar Norðurlanda-
ráðs 1995-99, í íslensku sendinefnd-
inn fyrir Vestur Evrópu sambandið
1995-99, sat í eftirlitsnefnd Norræna
fjárfestingabankans 1995-99 og var
varaformaður Íslandsdeildar Evr-
ópuráðsins 2004-2006.
Siv var sjúkraþjálfari meistara-
flokks karla í handknattleik hjá
Víkingi um skeið. Hún keppti í
badminton um langt skeið, varð Ís-
landsmeistari í tvíliðaleik í unglinga-
flokki og Íslandsmeistari í tvenndar-
leik í A-flokki 1991, 1999 og 2000.
Fjölskylda
Eiginmaður Sivjar er Þorsteinn
Húnbogason, f. 24.9. 1960, viðskipta-
fræðingur. Hann er sonur Húnboga
Þorsteinssonar, f. 11.10. 1934, fyrrv.
ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðu-
neytinu, og Jónu Vilborgar Jónsdótt-
ur, f. 5.8. 1942, d. 30.9. 2002. Fóstur-
móðir Þorsteins er Erla Ingadóttir, f.
19.2. 1929, hjúkrunarfræðingur.
Synir Sivjar og Þorsteins eru Hún-
bogi, f. 24.1. 1985, læknanemi við HÍ;
Hákon Juhlin, f. 18.5. 1993, grunn-
skólanemi.
Alsystkini Sivjar eru Ingunn Mai,
f. 31.5. 1964, tannlæknir í Reykja-
vík en maður hennar er Sigurgeir
Ómar Sigmundsson, lögreglufulltrúi
alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra;
Árni, f. 25.5. 1968, lögregluvarðstjóri
í umferðardeild; Friðleifur Kristinn,
f. 30.3. 1970, framkvæmdastjóri Ice-
land Seafood í Bretlandi en kona
hans er Ólafía Kvaran hjúkrunar-
fræðingur.
Hálfsystkini Sivjar, samfeðra, eru
Hildur Kristín, f. 22.11. 1956, for-
stöðumaður lögfræðiinnheimtu
Landsbanka Íslands en maður henn-
ar er Þorbjörn Jónsson, sendiráðsrit-
ari við sendiráð Íslands í Genf; Stef-
án, f. 5.6. 1958, flugstjóri hjá Atlanta
en kona hans er Sree Supramaniam.
Foreldrar Sivjar eru Friðleifur
Kristinn Stefánsson, f. á Siglufirði
23.7. 1933, tannlæknir í Reykjavík,
og Björg Juhlin Árnadóttir, f. í Asker
í Noregi 23.6. 1939, BA, BEd og kenn-
ari.
Ætt
Friðleifur er sonur Stefáns Jóns,
verkamanns á Siglufirði Friðleifs-
sonar, útvegsb. á Lækjarbakka og
eins stofnenda Framsóknarflokksins
Jóhannssonar, b. í Háagerði Jónsson-
ar. Móðir Friðleifs á Lækjarbakka var
Krstín Friðleifsdóttir. Móðir Stefáns
Jóns var Sigríður Elísabet Stefáns-
dóttir, b. í Hofsárkoti Björnssonar, og
Önnu Jónsdóttur.
Móðir Friðleifs Kristins var Sig-
urbjörg, systir Þórarins, vatnsveitu-
stjóra á Siglufirði. Sigurbjörg var
dóttir Hjálmars, b. á Húsabakka í Að-
aldal Kristjánssonar, b. í Ystahvammi
Hjálmarssonar, b. á Laugarbóli í
Reykjadal, bróður Jóns, föður Kristj-
áns fjallaskálds. Hjálmar var sonur
Kristjáns, b. í Krossadal Jónssonar,
bróður Jóns, ríka á Mýri, og Sigurð-
ar á Gautlöndum, föður Jóns, alþm.
á Gautlöndum, föður ráðherranna
Péturs og Kristjáns og Steingríms
alþm. Jón á Gautlöndum var einnig
afi Haraldar Guðmundssonar ráð-
herra og Steingríms Steinþórssonar
forsætisráðherra, og langafi Hjálmars
Jónssonar dómkirkjuprests og fyrrv.
alþm. Móðir Kristjáns í Ystahvammi
var Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, b. á
Sveinsströnd Jónssonar. Móðir Sig-
urbjargar var Halldóra Guðmuns-
dóttir. Móðir Halldóru var Ólöf
Hallgrímsdóttir, systir Jóns, langafa
Björns, afa Hermanns Jónassonar
forsætisráðherra, föður Steingríms
Hermannssonar, fyrrv. forsætisráð-
herra. Systir Ólafar var Ingibjörg,
langamma Kristjáns, afa Jónasar frá
Hriflu. Móðir Hjálmars á Húsabakka
var Kristjana Ólína Guðmundsdóttir,
b. í Sandfellshaga Einarssonar. Móð-
ir Sigurbjargar Hjálmarsdóttur var
Kristrún Snorradóttir, b. á Geitafelli
og eins af hvatamönnum að stofnun
Kaupfélags Þingeyinga Oddssonar,
b. á Langavatni Þórðarsonar. Móðir
Snorra var Guðrún Snorradóttir, b.
á Stórubrekku, bróður Vatnsenda-
Rósu og Sigríðar, langömmu Sigurð-
ar Nordal og Jónasar Kristjánsson-
ar læknis, afa Jónasar, fyrrv. ritstjóra
DV. Snorri var sonur Guðmundar, b.
í Fornhaga Rögnvaldssonar, og Guð-
rúnar Guðmundsdóttur, b. í Löngu-
hlíð Ívarssonar, bróður Björns, föður
Halldórs, langafa Björns, afa Tryggva
Þórhallssonar forsætisráðherra.
Foreldrar Bjargar Juhlin voru Arne
Juhlin, verktaki í Asker og Nordstrand
við Ósló, og k.h., Inger Marie Juhlin.
Föðurætt Bjargar er frá Ívsborg í Sví-
þjóð og hafa ættfeður þar gjarnan
verið prestar og kennarar. Móðurætt
Bjargar er frá Hallingdal og hafa þeir
ættfeður verið bændur á bæjunum í
Haraldset, ofarlega í dalnum.
Framvegis mun DV birta tilkynningar
um stórafmæli, afmælisbörnum að
kostnaðarlausu. Tilkynningarnar
munu birtast á ættfræðiopnunni sem
verður í helgarblaði DV á föstudögum.
Með stórafmælum er hér átt við 40
ára, 50 ára, 60 ára, 70 ára, 75 ára, 80
ára, 85 ára, 90 ára, 95 ára og 100 ára
afmæli.
Þær upplýsingar sem hægt er að
koma á framfæri í slíkum tilkynn-
ingum eru nafn afmælisbarnsins,
fæðingardagur þess og ár, starfsheiti,
heimilisfang, nafn maka, starfsheiti
maka, nafn barna (án fæðingardags,
starfsheitis eða maka), nafn foreldra
afmælisbarnsins og tilkynning um
gestamóttöku eða önnur áform
varðandi afmælisdaginn.
Á hverjum föstudegi verða birtar
slíkar tilkynningar um þá sem eiga
afmæli á föstudeginum sem blaðið
kemur út á til fimmtudags í vikunni á
eftir. Þannig verða tilkynningarnar
um afmæli á sjálfum útgáfudeginum
og næstu viku fram í tímann.
Senda skal afmælistilkynningar á
netfangið kgk@dv.is. Tilkynningarnar
verða að berast blaðinu eigi síðar en
kl. 15 á miðvikudegi. Það er afar
brýnt að þeim fylgi skýr andlitsmynd
af afmælisbarninu.
Jóhannes Guðnason
Jóhannes Guðnason fóðurbílstjóri verður
fimmtugur á sunnudag,11.mars.
Jóhannes var fóðurbílstjóri í 26 ár og
dreifingarstjóri hjá Fóðurblöndunni í 3 ár.
Hann er nú vaktstjóri hjá Olíudreifingu.
Jóhannes verður týndur á afmælisdaginn.
Árnað heillaAfmælistilkynningAr á ættfræðisíðu
KOna ViKUnnar
Siv Friðleifsdóttir
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
Björg Siv Juhlin Friðleifsdóttir,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, hélt ræðu á landsþingi fram-
sóknarmanna um síðustu helgi þar
sem hún gat þess að ef sjálfstæðis-
menn hundsuðu þá kröfu fram-
sóknarmanna að í stjórnarskrá
verði sett ákvæði um þjóðarrétt
á auðlindum, gæti það haft í för
með sér stjórnarslit af hálfu Fram-
sóknar. Þar með stal Siv senunni
á landsþinginu og lagði línurnar
fyrir pólitískar umræður vikunnar
sem er að líða.