Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Side 42
föstudagur 9. mars 200742 Helgarblað DV
Kostir og gallar reyKjavíKur
RúnaR FReyR Gíslason leikaRi
“Einn af kostunum er smæðin og stuttar vegalengdir. Loftið er líka enn sem komið er
gott og maður er ekki að kafna úr mengun eins og í mörgum stærri borgum heimsins.
fólkið er líka stór kostur. maður þekkir alltaf einhvern þegar maður fer út og það þykir
ekki einusinni merkilegt. síðan eru það auðvitað leikhúsin í borginni. Það eru auðvitað
algjör forréttindi að hér skuli vera tvö atvinnuleikhús, Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið
en þar á einmitt að frumsýna söngleikinn gretti í leikstjórn minni 30. mars nk!
reykjavík er mín uppáhalds borg og ég vil hvergi annarsstaðar vera. Þessvegna er erfitt
að finna einhverja ókosti við hana. Það væri helst svartasta skammdegið, þegar maður
þarf að skríða á lappir um miðja nótt í nístingskulda.”
kaRl J. steinGRímsson FRamkvæmda-
stJóRi FasteiGnaFélaGsins kiRkJuhvoll
“Ef við byrjum á neikvæðu nótunum þá pirrar
veggjakrotið í bænum mig alveg óskaplega. Það
þyrfti að setja fúlgur fjár til höfuðs þessum
kroturum og taka á þeim. En að þessu slepptu
finnst mér reykjavík vera skemmtileg, hrein og
falleg borg. maður finnur vel fyrir drifkraftinum og
þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað
hér á síðustu árum. Borgin hefur sannarlega breyst
til hins betra og það má segja að í dag sé
reykjavík lítil heimsborg.”
Jóhanna viGdís aRnaRdóttiR leikkona
“Það sem mér finnst best við borgina er líka
hennar stærsti galli en það er sú staðreynd að
reykjavík er smábær. Kosturinn við það er að allir
þekkja alla en á móti kemur að það er ekkert
auðvelt að hverfa inn í fjöldann.”
ÁGústa Johnson FRamkvæmdastJóRi
“mér finnst reykjavík vera fersk og hrein hvað sem
allri umræðu um svifryk líður. maður hefur það að
minnsta kosti á tilfinningunni að maður sé að
anda að sér fersku lofti, ólíkt því sem gerist í
ýmsum stórborgum í nágrannalöndunum. Það
sem mér finnst verst við reykjavík á reyndar við
um landið allt, það er rokið og rigningin.”
GunnaR siGuRðsson FRamkvæmdastJóRi
v-daGsins oG landsbyGGðaRmaðuR
“mér finnst vanta almennilegt, lókal fjall í reykjavík
fyrir borgina að skýla sér undir eins og maður sér
víða úti á landi. Hér næðir vindurinn um allt. Esjan
telst ekki með að mínu mati. Ég á nú erfitt með að
telja upp kosti borgarinnar, það er helst að óheftur
aðgangur að almenningssalernum komi upp í
hugann.”