Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Qupperneq 47
föstudagur 9. mars 2007 47DV Ferðalög
Jóna Björk Jónsdóttir, kennari í
Menntaskólanum á Laugavatni er að
eigin sögn mikil útivistarkona, hún
sker sig þó úr frá ferðalöngum síðustu
vikna að því leiti að hún kennir sig
hvorki við hjálparsveit né skátaflokk.
Jóna Björk segist sjálf vera Skaftfell-
ingur og því valdi hún að segja frá
gönguferð sinni á Sveinstind, sem
er í um það bil tveggja tíma fjarlægð
frá hennar heimabyggð. “Ég labba
töluvert mikið og ég er mjög hrif-
in af Langasjó, ég hef gengið nokkr-
um sinnum í kringum hann og far-
ið oft upp á Sveinstind,” segir Jóna
Björk. Aðspurð um það hvort hún
fari í margar gönguferðir svarar hún:
“Ég reyni að fara í allavega tvær fimm
daga ferði á hverju sumri. Svo reyni ég
að komast í góða páskaferð á göngu-
skíðum.”
Leiðin upp að Sveinstind er að-
eins fær jeppum. “Frá þjóðvegin-
um er beygt inn á afleggjaran út frá
nyrðri fjallabaksleið, rétt vestan við
Eldgjá. Þaðan er beygt inn á afleggj-
aran upp að rótum Sveinstinds,” seg-
ir Jóna og áréttir að leiðin sé ekki
fólksbílafær.
Frá rótum Sveinstinds, er gangan
upp á topp aðeins um klukkutími, en
hækkunin á leiðinni er 300-400 metr-
ar. “Þetta er frekar bratt, en þó ekkert
klifur. Hver og einn tekur þetta bara á
sínum hraða og það eru aðeins þeir
allra lofthræddustu sem gætu lent í
erfiðleikum, en það er algjör undan-
tekning að fólk verði lofthrætt þarna.”
Þegar á topp Sveinstinds er komið,
er útsýnið stórglæsilegt. Hún segir lit-
ina í landslaginu vera afar fallega. “Frá
toppnum sést yfir nær allt suðurland,
Öræfajökul, Hofsjökul, Langjökul og
Mýrdalsjökul. Við Sveinstind, sem er
syðsti og hæsti tindurinn í Fögrufjöll-
um, er einnig Langisjór, sem er ofsa-
lega fallegur.”
Langisjór hefur verið mjög vinsæll
hjá útivistarfólki síðustu ár. Kajakræð-
arar hafa lengi litið á Langasjó sem
einn af bestu kajakstöðum landsins.
“Langisjór er vinsæll hjá útivistarfólki
almennt. Það eru margir sem ganga í
kringum Langasjó og svo eru Fögru-
fjöllin, sem liggja þarna austan við,
þau eru eins og nafnið gefur til kynna,
ofsalega fögur og það er mjög gaman
að ganga upp á þau.”
Áform Landsvirkjunar á svæð-
inu hafa verið mikið í umræðunni
og hefur Jóna sína skoðun á þeim.
“Ég hvet fólk til þess að skoða svæð-
ið í kringum Langasjó og Sveinstind,
svo það viti hvað verið er að tala um.
Ef af áformum Landsvirkjunar verður,
mun Skaftá verða veitt ofan í Langasjó
og við það missir hann þennan bláa
lit. Það verður mikill árstíðarbundinn
munur á vatnsmagninu í Langasjó,
græni mosinn nær ekki að jafna sig
og það myndast brúnn borði í kring-
um vatnið. Auk þess verða malbikaðir
vegir út um allt. Þetta er það lítið og
viðkvæmt svæði að það verður aldrei
samt aftur.”
Jóna Björk hefur skorað á Pálma
Hilmarsson, félaga sinn og húsbónda
á heimavist Menntaskólans á Laug-
arvatni til þess að segja frá ferðalög-
um sínum í næsta helgarblaði.
valgeir@dv.is
U m s j ó n : V a l g e i r Ö r n R a g n a r s s o n . N e t f a n g : v a l g e i r @ d v . i s
á ferðinni Vikulegar Esjuferðirferðafélag Íslands skipuleggur í mars og apríl gönguferðir á Úlfarsfell og Esjuna alla föstudaga klukkan fimm. gönguferðirn-ar í mars eru farnar í samstarfi við fIt Pilates og verður smári Jósafatsson íþróttafræðingur fararstjóri í ferðunum. mæting er
við bílastæðið undir Úlfarsfelli klukkan fimm.
Hartsfield fjölmennasti
flugvöllur heims
Hartsfield-Jackson
alþjóðaflugvöllur-
inn í atlanta í
Bandaríkjunum er
sá flugvöllur í
heiminum, sem
flestir farþegar
fara um á ári
hverju. samkvæmt
tölum alþjóðlegrar
flugvallarnefndar
sem birtar voru í vikunni fóru 84,8
milljónir ferðamanna um flugvöllinn á
síðasta ári. annar stærsti flugvöllur
heims er O´Hare völlurinn í Chicago
með 76,2 milljónir farþega á ári.
Heathrow -flugvöllurinn í London er
þriðji fjölmennasti flugvöllur heims,
með 67,5 milljónir farþega á hverju ári.
New York auglýsir
Borgaryfirvöld í New York hafa hrint af
stað stórri alþjóðlegri auglýsingaher-
ferð til þess að auka ferðamanna-
strauminn til borgarinnar. ferða-
mannaráð New York-borgar stefnir í
kjölfarið á að opna átta ferðaskrifstof-
ur tileinkaðar borginni í öllum
heimsálfum. 44 milljónir ferðamanna
heimsóttu borgina á síðasta ári og
nam hagnaður af komu þeirra 24
milljörðum bandaríkjadollara. michael
Bloomberg borgarstjóri, hefur sagt að
markmiðið sé að 50 milljónir
ferðamann heimsæki borgina árlega,
fyrir 2015.
Chocolate Bar
í Amsterdam
Það er óhætt að benda þeim sem eiga
leið um amsterdam og vilja ódýran en
góðan kaffihúsamat að leita uppi hús
númer 62 við götuna 1e van der
Helststraat. En þar er Chocolate Bar til
húsa. Þar er matseðillinn fjölbreyttur,
þjónustan fín og háværir ferðamenn
frá Bretlandi sjaldséðir. Það er opið frá
tíu á morgnana og til miðnættis. Á
kvöldin er líflegt á staðnum og ekki
vitlaust að panta sér borð í gegnum
heimasíðu staðarin
Einn vinsælasti veitingastaður-
inn í Kaupmannahöfn er víetnamski
staðurinn Le Le nha hang. Vinsæld-
irnar hafa verið það miklar frá opnun
staðarins fyrir fjórum árum síðan að
hann var nýlega fluttur í mun stærra
húsnæði. Enda voru eigendurnir að
sögn orðnir leiðir á að þurfa að vísa
tugum manna frá á hverju einasta
kvöldi. Þrátt fyrir að nýi staðurinn
taki á annað hundrað manns í sæti
þá finna gestirnir ekki fyrir stærð-
inni og mannfjöldanum enda hefur
heppnast vel að skipta honum nið-
ur í nokkra hluta. Á Le Le nha hang
er boðið uppá víetnamskt götueld-
hús sem þýðir að verðið er í lægri
kantinum og afgreiðslan hröð. Öfugt
við marga asíska staði er ekki boðið
uppá tugi aðalrétta heldur nokkra og
fjölbreytta. Víetnamar eru duglegri
við að grilla en nágrannaþjóðirnar
og bjóða gjarnan upp á ferskt græn-
meti með. Þannig réttir eru áberandi
á matseðlinum hér. Verðið er eins og
áður segir hóflegt. Aðalréttir kosta á
milli 100 og 200 danskar krónur og
forréttirnir eru undir 100 krónum.
Þeir sem hafa hug á að fá sér as-
ískan mat í næstu ferð til Kaup-
mannahafnar ættu því að koma við
á Le Le nha hang og kanna hvort að
það sé laust borð. Ef ekki þá er bið-
tíminn oftar en ekki stuttur.
Le Le nha hang er við Vester-
brogade 40 og er opinn alla daga
nema þriðjudaga.
kristjan@dv.is
Asíska götueldhúsið Le Le nha hang slær í gegn í gegn í Kaupmannahöfn:
Víetnamskt í Kaupmannahöfn
Í síðustu viku skoraði Ingibjörg Eiríksdóttir á Jónu Björk Jónsdóttur, kennara í
Menntaskólanum á Laugavatni að segja frá ferðalagi sínu. Jóna Björk heldur mikið
upp á svæðið í kringum Sveinstind og Langasjó. Hún hefur oft gengið á Sveinstind og
í þessari viku segir hún lesendum DV frá ferðum sínum um svæðið.
Justin í Köben
Exit - stúdentaferðir bjóða upp á
tónleikaferð til Kaupmannahafnar
helgina 22. júní til 24. júní, til þess að
fara á tónleika með poppprinsinum
Justin timberlake á Parken. Verð á
mann í tvíbýli er 48,500 krónur og er
innifalið flug, flugvallarskattar, gisting
á Cab Inn tívolí hótelinu í miðborg
kaupmannahafnar og miði á
tónleikana. Justin timberlake hefur
verið einn vinsælasti popptónlistar-
maður heims síðustu fimm ár. Le Le nha hang Víetnömsk matargerð á vel við Kaupmannahafnarbúa. Le Le nha hang er opinn alla daga nema þriðjudaga.
Séð yfir Suðurland
af Sveinstindi
Jóna Björk Jónsdóttir
Heldur mikið upp á svæðið í kringum
sveinstind og Langasjó
Urta Hundur Jónu Bjarkar unir sér vel.