Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Page 51
DV Helgarblað föstudagur 9. mars 2007 51
Nýir skór í Bellville
maður á aldrei of mikið af skóm og þá sérstak-
lega miðað við veðurfarið hér heima, líftími
skónna er ekki svo langur. Bellville var að fá nýja
sendingu af skóm frá hinum eldklára hönnuði Bernhard
Willhelm. Lakkskórnir eru einnig til í svörtum og rauðum lit.
strigaskórnir eru ótrúlega flottir og einnig til í fleiri litum.
Algjört möst
Þessar ljósmyndabækur eru framtíðareign
sem þú færð aldrei leið á eða þá besta gjöf í
heimi. Þetta eru þær diane arbus, mary Ellen
mark og ótrúlega frumleg bók eftir sophie
Calle. allt eru þetta bækur sem maður getur gleymt
sér yfir og svo sannarlega látið hugann reika.
Nafn? Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir.
Aldur? 28 ára.
Starf? myndlistarmaður og myndskreytir.
Stíllinn þinn? Einu sinni reyndi ég ad koma
mér upp stílnum ,,rykugi kúrekinn” þangað
til mér var vinsamlegast bent á að ég liti út
eins og asnalegur karl og að kúrekastígvél
væru hallærisleg. Núna er stíllinn, ef stíl
mætti kalla, einhvers konar skítmix af
unglinga- og dömufötum.
Hvað er möst að eiga? svartan kjól og há
stígvél.
Hvað keyptir þú þér síðast? Ég vildi óska
þess að ég gæti sagt pels en síðast keypti ég
mér bara svarta trendy-man sokka í Bónus.
Hverju færð þú ekki nóg af? Yfirhöfnum,
kjólum og sólgleraugum.
Hvað langar þig í akkurat núna?
felubúning sem ég sá í veiðiblaði. Hann lítur
út eins og þarahrúga. Ég veit samt ekki
hvenær ég myndi ganga í honum.
Þér er boðið í partí í kvöld, í hverju ferðu?
Bara einhverjum fínum kjól.
Hvenær hefur þú það best? Þegar ég klára
hluti sem ég hef frestað í langan tíma.
Afrek vikunnar? mér tókst ad koma
sólarhringnum í eðlilegan farveg.
Tískuvöruverslunin Trílógía á Laugaveginum hefur
verið lokuð undanfarna daga vegna breytinga. Vá
hvað þessi bið var þess virði, því búðin er stútfull af
ótrúlega flottum vörum, nýjum merkjum og innrétt-
ingum. Eitt af nýju merkjunum er meðal annars
fatnaður frá goðinu honum Alexander Mcqueen. Það
má finna geggjaða kjóla og stórskemmtilegar nælur
frá honum. Þetta er ekki það eina og því er um að gera
að taka til fótanna, máta og kaupa (og jafnvel fá
verlunargalsa).
Þessar frábæru
tölvuhlífar fást í
Kronkron og eru
eftir danska
hönnuðinn
Henrik Vibskov.
tölvuhlýfarnar
eru til í tveimur
litum, svörtu og
rauðu en fást í
þremur stærðum.
Peysan er einnig
eftir þennan
yndæla pilt og
heitir reykjavík.
reykjavík peysan
varð að vera hér
með af því að allir
reykvískir
karlmenn ættu
að fjárfesta í
þessari
elsku.
Soldið í anda Marilyn
Manson og Ditu Von
Teese en fyrir þá sem
hafa ekki fylgst með
fréttum þá hafa þau
kvatt hvort annað.
Rosalegir hælar,
geggjaðar buxur og
jakki til að deyja fyrir,
við mundum falla í
hópinn í þessu
dressi.
all saints
all saints
Bianco Kringlunni
reykjavíkpeysan tölvuhlýfar sem
faðma fartölvuna
alexander mcqueen.
Henrik Vibskov
vá!
vá!
Ótrúlega hressandi
Verum töff
Persónan
lóa Hlín
Loksins, loksins, loksins
trúðanæla frá alexander
mcqueen.