Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Side 54
Þ riðji Def Jam-slags-málaleikurinn er kominn út í Bandaríkjunum og er
væntanlegur til landsins í lok næstu
viku. Líkt og forverar hans byggist
leikurinn upp á því að helstu rapp-
stjörnur heimsins skiptast á hnefa-
höggum, spörkum og glímubrögð-
um.
Það er Chicago-deild Electron-
ic Arts sem gerir leikinn en það eru
þeir sömu og gerðu leikinn Fight
Night: Round 3. Ekki er lögð jafnmik-
il áhersla á glímubrögð í slagsmála-
kerfi leiksins eins og í fyrri tveim-
ur leikjunum. Þá skiptir tónlistin og
umhverfið mun meira máli heldur
en áður. Taktur tónlistarinnar hefur
áhrif á umhverfið sem rappararnir
slást í en meira en 35 tónlistarmenn
koma fram í leiknum. Takturinn
opnar fyrir ýmsa möguleika í um-
hverfinu sem bjóða upp á árásir sem
skaða andstæðinginn mun meira en
nokkurt hnefahögg. Til dæmis eld-
gusur frá logandi bensínstöð eða
springandi bíla. Einnig eru hnefa-
högg og spörk skaðlegri ef þau eru í
takt við lögin sem hljóma undir. Þá
hefur hver og ein persóna í leiknum
sitt eigið lag og þegar það er spilað
eykur það ofbeldisgetu viðkomandi.
Einnig er hægt að ná í sitt eigið lag
og stilla sem aðallag persónu sinnar
í leiknum.
Söguþráður leiksins að þessu
sinni er sá að spilandinn á að koma
á laggirnar plötufyrirtæki. Í stað þess
að mæta á fundi og hitta jakkafata-
klædda menn og ræða peningaupp-
hæðir eru málin útkljáð með hnefa-
höggum og öðrum bellibrögðum.
Leikurinn kemur út bæði á
Xbox360 og PS3. Búast má við leikn-
um á Xbox 360 í kringum 16. mars en
allt að viku seinna á PS3 eða í kring-
um 23. mars.
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 9. mars 200754 Helgarblað DV
leikirtölvu
mario Kart - Ds
Burning Crusade - PC
def Jam: Icon - XboX 360
Europa universalis III - PC
marvel: ultimate alliance - XboX360
Lunar Knights - Ds
Kíktu á þessa
TölvuleiKur
Ég verð að segja að ég varð fyrir
vonbrigðum með leikinn Sonic and
the Secret Rings. Ég bjóst við því að
endurkoma hins hraðskreiða Sonics
yrði glæsilegri. Sögusvið leiksins er
spunnið út frá Þúsund og einni nótt
og á Sonic í raun að bjarga því ævin-
týri með því að fara inn í ævintýra-
heim. Í stað þess að sýna myndbrot
til þess að útskýra sögu leiksins er
notast við eins konar myndasögu-
effect sem mér finnst ekki heppn-
ast vel.
Stjórntæki leiksins eru mjög
þreytandi og finnst mér eins og gera
mætti betur miðað við þá möguleika
sem Wii hefur upp á að bjóða. Þá er
leikurinn alltof einfaldur fyrir minn
smekk. Eina sem maður gerir í raun
er að hlaupa beint áfram á þröngum
stígum í mismunandi umhverfi. Það
sem fer hins vegar alveg með mig
varðandi leikinn er tónlistin sem er
ömurleg. Sömu tvö háskólarokklög-
in sem hljóma aftur og aftur.
Það sem er jákvætt við leikinn er
að hægt er að ná ótrúlegum hraða
með Sonic og nýtur grafíkin sín mjög
vel á fullri ferð. Leikurinn er fallegur
og flottur en það er einfaldlega ekki
nóg til þess að draga hann að landi
að mínu mati.
Það gæti hins vegar verið að
leikurinn henti vel fyrir yngri spil-
ara og mundi ég eflaust mæla með
leiknum fyrir tíu eða tólf ára frænda
minn, þar sem hann býður upp á lít-
ið meira en hraða og hopp og skopp.
En það hentar eflaust mörgum vel.
Ég verð hins vegar að segja að
gamli góði Sonic í tvívíddinni heill-
aði mig meira, allavega í minning-
unni.
Ásgeir Jónsson
Sonic and
the Secret
Rings
Ævintýraleikur
Nintendo Wii
TölvuleiKur
Def Jam: Icon Games Domain 3/5, IGN 7/10, GameExpess 4/5 Kemur út á Xbox360 16. mars og PS3 23. mars
ekkI gamlI góðI SonIc
TakTfasT
Def Jam: Icon
Er væntanlegur í
búðir í næstu viku.
Sonic er ekki nógu ferskur
Hentar þó yngri spilurum nokkuð vel.
Slagsmálaleikurinn Def Jam: Icon er komin út og er væntanlegur
til landsins í næstu viku. Í leiknum berjast frægir rapparar um
yfirráð í tónlistarheiminum með hnefahöggum. Tónlistin í
leiknum skipar stærri sess en áður.
ofbeldi
Taktfast ofbeldi
takturinn í lögunum hefur áhrif á umhverfi og slagsmálagetu.
Ludacris
Yfir 35 þekkta rappara er að finna í leiknum.
Pokemon
á Wii
Leikurinn Pokemon battle
Revolution er væntanlegur til
bandaríkjanna og Evrópu. Það
verður fyrsti leikurinn þar sem
Wii-eigendur geta virkilega nýtt
sér Wi-Fi tenginguna og spilað
við aðra Wii notendur á netinu.
Hægt verður að sameina leikinn
Ds-útgáfu hans og færa
karaktera úr Ds-vélunum yfir í
Wii. Jafnvel verður hægt að nota
Ds til að stjórna Wii útgáfunni af
leiknum.
Zelda-safN-
sTyTTur
Hörðustu Zelda-
aðdáendurnir
geta nálgast
safngripi frá
fyrirtækinu f4f.
um er að ræða
litlar handgerðar
styttur. Þær eru
handskornar,
handmálaðar og
á bilinu 20 til 25
sentimetra háar.
fjórar styttur hafa verið settar á markað
og er hver þeirra til í 2.500 eintökum.
tvær styttnanna eru mismunandi útgáfur
af aðalsöguhetjunni Link. Hinar tvær eru
af hinum svokallaða skull Kid og sheik,
sem er eins konar tónlistarkennari Link.
sérúTgáfa
Halo 3
microsoft mun gefa út leikinn Halo 3 sem
er væntanlegur á Xbox360 í sérstakri
útgáfu. Leikur- inn
kemur inn í
hjálmi sem er
eftirlíking af
mjonir mark VI
hjálminum úr
Halo. Leikurinn
mun kosta 100
dollara í
Bandaríkj-
unum sem
eru tæpar 7000
krónur en verður eflaust eitthvað dýrari
hér heima. um er að ræða fjögurra diska
sérútgáfu sem inniheldur mikið magn
aukaefnis fyrir Halo aðdáendur
3.5 milljóNir
spila burNiNg
Crusade
Þegar Burning Crusade viðbótarpakkinn
fyrir World of Warcraft kom út 16.janúar
síaðstliðinn seldist hann í 2.4 milljónum
eintaka á fyrsta sólarhringnum. Nú eru
komnar inn sölutölur frá fyrsta mánuðin-
um og hefur hann selst í rúmlega 1.1
milljón eintaka í viðbót. Það eru því núna
að minnsta kosti 3.5 milljónir manns sem
spila viðbótina. 8.5 milljónir manna eru
áskrifendur af WoW á heimsvísu.