Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Síða 4
þriðjudagur 13. mars 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Jón ræðir
byggðamál
Atvinnu- og byggðamál á Vest-
fjörðum verða rædd á ríkisstjórn-
arfundi í dag. Í tölvupósti sem Jón
Sigurðsson sendi til Geirs Haar-
de, Einars Guðfinnssonar, Sturlu
Böðvarssonar og fleiri þingmanna
Vestfirðinga, segir hann að ráð-
herrar hafi rætt um málið fyrir
skemmstu.
„Ég þakka
ykkur fyrir öflugt
frumkvæði ykk-
ar um þenn-
an fund og
mun að
sjálfssögðu
ræða álykt-
un hans á
ríkis-
stjórnar-
fundi.“
Hafa ekki
kannað áhrifin
Engin könnun hefur verið
gerð á því hvaða áhrif hvalveið-
ar hafi haft á ímynd Íslands og
hagsmuni íslenskra fyrirtækja
hérlendis. Þetta kom fram í svari
Valgerðar Sverrisdóttur utanrík-
isráðherra á Alþingi í gær. Hún
hafði áður lýst vilja til að láta
slíka könnun fara fram.
„Ég tel ekki að þessi vinna
hefjist nú fyrir kosningar,“ sagði
Valgerður og kvaðst líta á þetta
sem verkefni næstu ríkisstjórnar,
sem hún gerði ráð fyrir að gegna
sjálf embætti í.
Mörður Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar, lýsti óánægju
sinni með að könnunin hefði
ekki verið framkvæmd.
Vantar
klemmuvarnir
Í aðeins einum leikskóla í
Reykjavík, af 94 sem voru kann-
aðir, er þrifið með viðurkenndum
vistvænum þvottaefnum. Fulltrú-
ar hollustuhátta á umhverfissviði
Reykjavíkurborgar skoðuðu leik-
skólana á síðasta ári.
Enn vantar klemmuvarnir á
innihurðir í marga leikskóla. Hand-
laugar fyrir fullorðna í skiptiað-
stöðu barna eru til í rúmlega fjöru-
tíu prósentum leikskólanna og að
hluta til í tuttugu prósentum.
Alvarlegt atvik
Rannsóknarnefnd flug-
slysa á Bretlandi (AAIB) legg-
ur til að íslensk flugmálayf-
irvöld rannsaki atvik þegar
Dornier vél Landsflugs flaug
nálægt klettabelti í aðflugi
að Sumburgh-flugvelli á
Hjaltlandseyjum í júní í fyrra.
Þá er og lagt til að þjálfun
flugmanna félagsins verði
endurskoðuð. Í lokaniður-
stöðu bresku rannsóknar-
nefndarinnar segir að mikil
hætta hafi skapast þegar
Dornier vélin var í aðflugi að
vellinum. Flugmenn flugu
sjónflug en skyndilega ver-
snuðu veðurskilyrði. Flug-
stjóri brást hvorki við tækjum
sem vöruðu við hættunni né
fyrirmælum flugturns um að
hækka flugið.
Ekkert hungur á þingi
Gott og blessað er að vita að
blessaðir þingmennirnir okkar hafa
fín lágmarkslaun. Ekki mega þau
minni vera, en þessi 625 þúsund sem
DV greindi okkur frá. Gott og bless-
að er þetta allt. Starfsstétt sem býr við
þann erfiða kost að mega ekki vera í
vinnunni nema rétt um hálft ár þarf
aldeilis að hafa efni á að gera eitt-
hvað í löngum frítímum. Allt er þetta
blessað.
Skelfilegt væri það hlutskipti
þingmanna að vera með laun eins
og annað fólk, þeir sem ekki vinna
nema hluta af því sem flestir aðr-
ir gera. Eitthvað verður að gera við
langan frítíma og allt kostar sitt, líka
fríin. Hér eftir er það augljóst að
þjóðin gerir vel við þingið, rétt eins
og þingið hugsar fyrst og síðast um
hag þjóðarinnar. Þannig á það líka
að vera þegar fullur skilningru er
milli manna. Ráðherrar hafa nærri
eina milljón á mánuði, og eru vel að
því komnir, flestir og jafnvel allir. Það
sást best í þinginu um daginn hversu
erfitt starf ráðherranna er, þegar einn
þeirra nánast hneig niður í vinnunni.
Þessu fólki ber að borga vel og það
mjög vel. Og það er líka gert.
Blessun verði áfram yfir þing-
inu og laununum. Takist vel til víða í
samfélaginu kemur kannski að því að
annað fólk geti fengið launahækkan-
ir eins og þingmenn hafa fengið. En
ekki strax, ekkert liggur á. Fyrst ber
að styrkja undirstöðu samfélagsins,
það er blessaða þingmennina. Annað
fólk kemur þar á eftir. Þannig er það
og þannig verður það. Þetta er eins og
hjá IKEA, ekkert gengur þegar byrjað
er á röngum enda. Ekkert. Þess vegna
ber að fagna því að þjóðin hefur bless-
unarlega látið blessaða þingmennina
fá margfalt meiri hækkanir en annað
fólk. Því fylgir blessun, mikil blessun.
dagfari
„Svo virðist sem Morgunblaðið hafi
haft upplýsingar frá öðrum en lög-
reglu, ef rétt er sagt frá,“ segir Páll
Winkel, yfirmaður stjórnsýslusviðs
ríkislögreglustjóra, um vitnisburð
Magnúsar Guðmundssonar, forstjóra
Kaupþings í Lúxemborg, við aðal-
meðferð Baugsmálsins í síðustu viku.
Í vitnastúkunni sagði Magnús
blaðamann Morgunblaðsins hafa
hringt og spurt út í húsleit á sama
tíma og hann sat á fundi með lög-
reglunni þar sem honum var skýrt frá
húsleitinni. Undraðist Magnús hversu
fljótt blaðamaðurinn vissi af húsleit-
inni og spurði hann hvort væri meiri
frétt, húsleitin eða vitneskja hans um
húsleitina. Í frétt DV í gær kom fram
að það var Ólafur Þ. Stephensen, að-
stoðarritstjóri Morgunblaðsins, sem
hringdi í Magnús. Ólafur neitaði því
ekki, að hafa hringt í Magnús, í sam-
tali við blaðamann heldur sagði hann
það ekki til umræðu og sagðist ekki
ætla að svara fleiri spurningum.
Gamall áróður
Embætti ríkislögreglustjóra neitar
því sem fyrr að hafa lekið upplýsing-
um til Morgunblaðsins og segir slíkt
tal vera gamlan áróður sem eigi sér
ekki stoð í raunveruleikanum ferkar
en annan áróður í þessu máli. „Nær
væri að spyrja sakborninga í Baugs-
málinu eða aðila þeim tengdum um
það hvernig upplýsingar hafa komist
til fjölmiðla á undanförnum árum.“
Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, segir að sak-
borningar í Baugsmálinu hafi ekki haft
minnstu hugmynd um húsleit í Lúx-
emborg og því engin leið að þeir hafi
lekið upplýsingunum. „Ég hef aldrei
vitað til þess að sakborningar hafi
vitað af húsleit fyrirfram og það væri með ólíkindum ef svo væri. Þarna er
ríkislögreglustjóri að reyna að gefa í
skyn eitthvað sem allir menn sjá að
er ómögulegt,“ segir Gestur. Hann vís-
ar ummælum frá embætti ríkislög-
reglustjóra til föðurhúsanna því hann
kannist ekki við neinn leka og segir
slíkt ekki hag sakborninga í málinu.
„Ég get ekki ímyndað mér hver hefði
átt að hafa upplýsingar um húsleitina.
Ákvörðun um húsleitina var tekin inn-
anhúss hjá ríkislögreglustjóra,“ segir
Gestur.
Löggur í vitnastúku
Fjórir núverandi og fyrrverandi
starfsmenn ríkislögreglustjóra setj-
ast í vitnastólinn, í Héraðsdómi
Reykjavíkur í dag og má telja lík-
legt að einhverjir þeirra verði meðal
annars spurðir út í þennan meinta
leka. Fyrstur ber vitni, Arnar Jens-
son sem var í starfi aðstoðaryfirlög-
regluþjóns hjá efnahagsbrotadeild-
inni en starfar nú sem tengifulltrúi
ríkislögreglustjóra hjá Evrópulög-
reglunni. Næstir á eftir honum eru
þeir Sveinn Ingiberg Magnússon,
lögreglufulltrúi og Grímur Grímsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn. Síðstur í
röðinni er svo Jón H.B. Snorrason,
sem nýverið lét af starfi yfirmanns
efnahagsbrotadeildarinnar en er
nú varalögreglustjóri höfuðborgar-
svæðisins.
Yfirmaður stjórnsýslusviðs ríkislögreglustjóra segir Morgunblaðið hvorki hafa fengið
upplýsingar um húsleit, hjá Kaupþingi í Lúxemborg, né frá embættinu. Nær væri að spyrja
sakborningana hvernig upplýsingar hafa komist til fjölmiðla. Gestur Jónsson, verjandi
Jóns Ásgeirs, segir sakborninga ekki hafa vitað um húsleitina áður en hún var gerð.
SegJa upplýSingarnar
ekki koma frá lögreglu
HJördís rut siGurJónsdóttir
blaðamaður skrifar: hrs@dv.is
Gestur Jónsson verjandi Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar gestur segir
ríkislögreglustjóra reyna að gefa í skyn
að sakborningar hafi lekið upplýsingum
um húsleit á meðan allir sjái að það sé
ómögulegt.
„ég hef aldrei vitað til
þess að sakborningar
hafi vitað af húsleit fyr-
irfram og það væri með
ólíkindum ef svo væri.“
Heppinn kaupandi lottómiða í
Happahúsinu Kringlunni var með
allar fimm tölurnar réttar í Lott-
ói helgarinnar og er því þrjátíu og
tveimur milljónum krónum ríkari.
Eigandi miðans hafði ekki gefið sig
fram í gærkvöld, að sögn Bergsveins
Sampsted framkvæmdastjóra Ís-
lenskrar Getspár.
„Skrifstofan verður opnuð á
mánudagsmorgun og við vonum
að eigandi vinningsmiðans gefi sig
fram,“ sagði Bergsveinn og bætti við
að vinningar hærri en þrjátíu millj-
ónir væru sjaldgæfir.
„Í tuttugu ára sögu Lottósins hér
á landi hafa svona stórir vinningar
aðeins unnist
um tíu sinn-
um.“
Íslensk
Getspá býð-
ur vinnings-
höfum stórra
fjárhæða fjár-
hagsaðstoð
sem KPMG
endurskoðun
annast. Þar fær
vinningshafi að-
stoð við að koma
peningunum fyrir á
góðum kjörum svo eitt-
hvað sé nefnt. „Við vitum ekki
um reynsluna en
vinningshaf-
ar sem hafa nýtt
sér þjónustuna
láta vel af henni,“
sagði Bergsveinn
að lokum.
Sex voru með
fjórar tölur rétt-
ar og bónustölu
í Lottói helgar-
innar og fær hver
þeirra tæpar 90 þús-
und krónur í vinning.
Lottótölur helgarinnar
voru 2 - 6 - 8 - 32 og 35.
Bónustalan var 14.
MÁNUDAGUR 12. MARs 2007 Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónir fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Ætli Mogginn viti ekki líka
hver vann allan peninginn
í Lottóinu!
Ólafur Þ. Stephensen, aðstoðarrit-
stjóri Morgunblaðsins, hringdi tví-
vegis í Magnús Guðmundsson, for-
stjóra Kaupþings í Lúxemborg og
sagðist vita af húsleit lögreglunn-
ar þar í landi í bankanum, þar sem
leitað væri að gögnum um Baug og
Gaum. Símtölin frá Ólafi komu á
sama tíma og lögreglan kynnti Magn-
úsi málavexti og skýrði út fyrir hon-
um út á hvað haldlangningarskýrsla
sem þeir framvísuðu gengi.
Aðspurður segist Ólafur hafa
skrifað almennar fréttir í Morgun-
blaðið í tuttugu ár og að það hafi ekki
breyst eftir að hann varð aðstoðarrit-
stjóri. Þegar blaðamaður DV spurði
hann hvað hafi orðið til þess að hann
hefði sjálfur hringt í Magnús þennan
dag svaraði hann því til að það væri
ekki til umræðu.
Í fyrra símtalinu við Ólaf neitaði
Magnús því í fyrstu að húsleit ætti
sér stað. Í seinna símtalinu staðfesti
hann húsleitina og spurði hvort væri
meiri frétt; húsleitin eða vitneskja
Ólafs um aðgerðir í Lúxemborg.
Magnús útskýrði síðar í Héraðs-
dómi að húsleit í Lúxemborg færi
fram með allt öðrum hætti en á Ís-
landi. Hér á landi gæti lögregla leit-
að að gögnum að fengnum úr-
skurði Héraðsdóms en í Lúxemborg
er haldlagningarskýrslu framvísað
sem gefur lögreglunni leyfi til þess
að leggja hald á ákveðin gögn sem
starfsmenn bankans finna til. Þetta
vitnaði Magnús um, í Héraðsdómi
Reykjavíkur á fimmtudag, en hann er
eitt vitna í aðalmeðferð Baugsmáls-
ins.
Magnús og einn annar starfs-
maður Kaupþings, sátu á fundi með
lögreglunni í Lúxemborg, í kjall-
ara bankans þar sem haldlagning-
arskýrslan var útskýrð fyrir þeim
og var engum öðrum í bankanum
kunnugt um málið. Í Hérðasdómi
kom fram að hringingar frá blaða-
manni Morgunblaðsins hafi borist á
milli klukkan átta og níu um morg-
uninn en það er á milli klukkan sex
og sjö að íslenskum tíma. „Ég man
ekki eftir því að hafa hringt í nokk-
urn mann svona snemma morg-
uns,“ segir Ólafur.
Aðspurður hvort hann neiti því
að hafa hringt í Magnús sagði Ólafur,
„samtöl mín við fólk úti í bæ eru ekki
til umræðu. Nú er ég bara hættur að
svara og hættur að tala við þig.“
Svo snemma var fregnum af hús-
leitinni lekið til Morgunblaðisins að
forsvarsmönnum Kaupþings í Lúx-
emborg gafst ekki færi á að tilkynna
starfsfólki sínu hvað gengi á held-
ur lásu starfsmennirnir fréttirnar á
vefsíðu mbl.is. Húsleitin var gerð að
beiðni ríkislögreglustjóra.
Vissi af húsLeit uM
Leið og forstjórinn
Ölvaður fékk sér
sundsprett
Lögreglumenn frá Ísafirði þurftu
í morgunsárið að sækja ölvað-
an mann á fertugsaldri sem hafði
stungið sér
til sunds í
sjónum. Í
gærmorg-
un gerði
samferða-
fólk manns-
ins lögreglu
viðvart um
sundferðina
en maður-
inn var þá
við Ósvör rétt
fyrir utan Bolungarvík. Lögreglu-
menn festu band í lögreglubílinn
og fóru með það niður í fjöru þar
sem maðurinn var í flæðarmálinu.
Maðurinn var orðinn mjög kaldur
og þrekaður og var farið með hann á
sjúkrahús. Vinningshafinn óþekktur
Hátt í hundrað
stöðvaðir
Á milli áttatíu og hundrað
ökumenn voru stöðvaðir í um-
ferðareftirliti lögreglu á móts við
Essó stöði a á Kringlumýrar-
braut eftir miðnætti í nótt.
Ein kona var undir mörkum
þegar hún bles í áfengismæli
lögreglu og var bíll hennar kyrr-
settur eins og venjan er mælist
eitthvað áfengismagn. Ef öku-
maður mælist aftur á móti með
yfir 0,4 prómill þá er hann færður
til blóðrannsóknar. Þá voru tveir
teknir með útrunnin ökuskírteini
og tveir sem höfðu gleymt að
endurnýja ökuréttindi sín. Flestir
ökumannanna voru með allt sitt
á hreinu. Tíu lögreglumenn á
fimm bílum tóku þátt í eftirlitinu.
Brotist inn í bakarí
Brotist var inn í bakarí í Mosfells-
bæ í nótt og þaðan stolið tvö hundr-
uð þúsund krónum.
Þegar starfsmenn mættu til vinnu
um klukkan tvö í nótt sáu þeir hvar
útidyrahurð bakarísins hafði verið
spennt upp. Þjófurinn eða þjófarnir
höfðu stolið megninu af þeim pen-
ingum og skiptimynt sem þeir fundu
í sjóðsvél bakarísins og í skúffum
innandyra. Ekki er vitað hver eða
hverjir voru að verki en auðgunar-
brotadeild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu hefur málið til rann-
sóknar.
allt á floti Allt að hálfs metra djúpt vatn var í kjallara og bílageymslu hússins. Tjónið er mikið, sennilega allt að tuttugu milljónum króna.
Samfylking dalar
Fylgi Samfylkingarinnar hefur
fallið um 22 prósentustig frá því
það var hæst, 41,3 prósent í maí
2004. Samkvæmt skoðanakönn-
un Fréttablaðsins hefur Samfylk-
ingin nú 19,2 prósenta fylgi.
Þegar Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir tók við
formennsku,
í maí 2005,
hafði flokk-
urinn rúm-
lega 33 pró-
senta fylgi.
Síðan þá hefur
fylgið dalað um
ríflega þrettán
prósentustig.
Hús Morgunblaðsins Ólafur Stephensen aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins sagðist
hættur að tala við blaðamann DV eftir stutt símtal í gær.
Hjördís rut sigurjónsdóttir
blaðamaður skrifar: hrs@dv.is
Milljónatjón
vesturbæ
„Þetta hefur verið um hálfur metri
af regn- og skólpvatni sem hefur flætt
hérna inn“, segir Sigurður Rúnar
Gíslason íbúi í vestasta húsi Sólvalla-
götu, en vatn flæddi inn í bílageymlsu
og kjallara hússins.
Líklegast má rekja bilunina til
eldingar sem laust háspennulín-
ur Landsnets sem aftur sló út dælu-
kerfi höfuðborgarsvæðisins. Af þeim
sökum fór skólp ekki úr niðurföllum
heldur rann í bílakjallarann.
„Þetta hefur gerst áður en þá varð
ekkert tjón enda flóðið minna og
engir bílar til staðar,“ bætti Sigurð-
ur við. Mitsubishi-bifreið hans slapp
að mestu sökum þess hve há hún er.
„Kúplingin blotnaði og ég get ekki
skipt um gír.“
Orkuveita Reykjavíkur mun bæta
það tjón sem rakið verður til henn-
ar vegna rafmagnstruflana þessa
nótt en fyrirtækið er tryggt fyrir tjóni
sem það kann að valda í starfsemni
sinni.
miðvikudaginn 12. mar
Hús ríkislögreglustjóra Páll Winkel, hjá
ríkislögreglustjóra, segir að í fimm ár hafi
sakborningar í Baugsmálinu ítrekað haldið því
fram að lögregla leki trúnaðarupplýsingum í
fjölmiðla. það sé hins vegar áróður sem eigi sér
ekki stoð í raunveruleikanum.