Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Page 6
„Þetta er vægast sagt mjög undarlegt
mál en kemur mér þó ekki á óvart
þegar þessi meirihluti er annars veg-
ar,“ segir Svandís Svavarsdóttir, borg-
arfulltrúi Vinstri grænna, um sam-
komulag borgarinnar og Háspennu
ehf. um bætur fyrir að enginn spila-
salur verður opnaður í Mjódd.
Borgaryfirvöld keyptu húsnæði
Háspennu í Mjódd af fyrirtækinu og
létu að auki einbýlishúsalóð með út-
sýni að Álftanesi og Bessastöðum í
skiptum. Að því gefnu að kostnaður
Háspennu við undirbúning að spila-
salnum sé ekki þeim mun meiri má
gera ráð fyrir að aðstandendur fyrir-
tækisins geti hagnast um tugi millj-
óna á viðskiptunum.
Furðulegt val
Svandísi finnst eðlilegt að ganga
frá bótum til viðeigandi aðila en
segir það að láta af hendi einbýlis-
húsalóð á besta stað í bænum væg-
ast sagt furðulegt. Hún segir augljóst
að til séu atvinnulóðir annars stað-
ar í borginni og það væri eðlilegra
að Háspenna fengi eina slíka. Aftur
á móti finnst Svandísi að borgin sé
ekki búin að móta sér stefnu í mál-
efnum spilakassa. „Viljum við yfir-
höfuð hafa slíka starfsemi í borginni
og ef svo er, af hverju er hún betur
sett í úthverfum? Þolir fólk í úthverf-
unum betur spilafíkn en fólk annars
staðar?“ Svandís segist skilja borgar-
stjóra sem hlustaði á vilja íbúanna
og verslunareigenda við Mjóddina
í þessu máli og það finnst henni að
stjórnvöld ættu að gera. En henni
finnst það ekki til fyrirmyndar að Há-
skóli Íslands sé háður peningum sem
koma frá ávanabindandi spilum.
Fáránleg ráðstöfun
Árni Þór Sigurðsson borgar-
fulltrúi VG tók í sama streng. „Að
láta Háspennu fá Starhagalóð-
ina er algerlega fáránlegt og ég
veit ekki hvaðan hugmyndin
kom.“ Árni bendir á að allir í
borgarstjórn hefðu verið sam-
mála um að úthýsa spilastarf-
semi úr Mjóddinni eftir mót-
mæli frá hverfisráði, íbúum
og verslunareigendum. Hon-
um fannst eðlilegt að greiða
hlutaðeigandi skaðabætur. „En
að kaupa húsnæðið á 92 milljón-
ir og bjóða þeim í of-
análag gríðarlega
verðmæta lóð við
Starhagann, lóð
sem auðmenn
eru tilbúnir að
greiða háar
upphæðir fyr-
ir er óskilj-
anlegt,“ sagði Árni Þór. Að
sögn Árna mat borgar-
stjórn Starhagalóðina á
25 til 30 milljónir sem er
að hans mati langt und-
ir markaðsvirði auk þess
sem nýr eigandi mun ekki
þurfa að greiða gatnagerð-
argjöld af henni. Árni seg-
ist ekki muna eftir því hvort
rætt hafi verið í borgarráði
um að bjóða Háspennu at-
vinnuhúsnæði eða lóð
ætlaða atvinnustarf-
semi. „Það er ljóst
að Háspenna mun
ekki hefja atvinnu-
starfsemi á Star-
haganum enda
fylgir lóðinni ekki
atvinnuleyfi og því
má ætla að hún verði boðin upp af
eiganda.“
Ósköp eðlileg viðskipti
Aðspurður hvort ekki væri réttara
að bjóða Háspennu atvinnulóð í stað
sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri: „Það er ekki óalgengt að
bjóða slíka lóð. Við vorum að bjóða
Háspennu ehf. ákveðin verðmæti
og þetta var þrautalendingin.“ Þeg-
ar borgarstjóri var inntur eftir því
hvernig verðmæti Starhagalóðarinn-
ar hafi verið metið tjáði hann blaða-
manni að tveir eða þrír fasteignasal-
ar hafi óformlega verið beðnir um
að verðmeta lóðina á Starhaga þrjú
og þeim hafi borið saman um verð-
ið. „Að mínu mati voru þetta ósköp
eðlileg viðskipti og lausn til heilla
fyrir Breiðholtið sem hefði annars
fengið fimmtíu spilakassa í Mjódd-
ina,“ sagði borgarstjóri og bætti við
að ekkert væri athugavert við niður-
stöðu málsins.
29 viðskiptavinir
Happdrætti Háskóla Íslands er
eigandi spilakassanna sem Háspenna
leigir. Brynjólfur Sigurðsson, forstjóri
Happdrættis Háskóla Íslands, sagði í
samtali við DV að starfsemi HHÍ væri
þríþætt, gamla flokkahappdrættið,
happaþrennan og gullnáman sem
eru spilakassarnir. „Við leigjum út
spilakassa til 29 kúnna og Háspenna
ehf. er einn af þeim. Gagnvart þeim
erum við eins og hvert annað heild-
sölufyrirtæki. Þeir fá ákveðna þókn-
un af veltu en annars rennur gróðinn
til okkar,“ sagði Brynjólfur og bætti
við að hann veitti ekki upplýsingar
um veltu hvers kassa fyrir sig til ut-
anaðkomandi aðila.
Ekki náðist í Jón Hjaltason, fram-
kvæmdastjóra Háspennu, þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir en Jón Arnarson,
rekstrarstjóri Háspennu við Lauga-
veg, sagði í samtali við DV að fyrr-
greindur framkvæmdastjóri hefði
ekki áhuga á að tala við blaðamann.
þriðjudagur 13. mars 20076 Fréttir DV
Geta Grætt tuGi milljóna
Minnihlutinn í borgarstjórn er ekki sáttur við sátta-
greiðslu til Háspennu. Engin tilraun var gerð til að
finna atvinnuhúsnæði fyrir spilakassana. Fengu
eftirsótta einbýlishúsalóð á Starhaga með glæsilegu
útsýni yfir Bessastaði. Borgin mat lóðina á 25 til 30
milljónir en fasteignasali á allt að 50 milljónir.
fimmtudagur 8. mars 20078 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Slys á ótryggðu
bifhjóli
Umferðaróhapp varð á gatna-
mótum Hólagötu og Borgarveg-
ar í Njarðvík er bifhjóli var ekið á
bifreið, sem ekið var eftir Borg-
arvegi, á þriðjudagskvöld. Hjó-
lið var óskráð, ótryggt og öku-
maðurinn réttindalaus. Meiðsli
ökumannsins reyndust óveruleg
og litlar skemmdir urðu á bif-
reiðinni. Þá var einn ökumaður
tekinn fyrir of hraðan akstur á
Reykjanesbrautinni. Hann var
stöðvaður á 121 kílómetra hraða
á klukkustund, þar sem há-
markshraði er 90 kílómetrar.
Slasaður
sjómaður
Rétt eftir klukkan tvö í gærn-
ótt kom togbáturinn Oddgeir
EA-600 með slasaðan sjómann
til hafnar í Grindavík. Sjóma-
ðurinn hafði klemmst á milli
toghlera og lunningar þegar ver-
ið var að hífa trollið inn. Hann
slasaðist á vinstri handlegg og
var fluttur með sjúkrabifreið frá
Grindavík á slysadeild Land-
spítalans - háskólasjúkrahúss í
Fossvogi þar sem gert var að
sárum hans. Hann mun vera á
batavegi og meiðsl hans eru ekki
talin alvarleg.
Dýrir dóphundar
Alls kostar átta hundruð
þúsund krónur að reka fíkni-
efnahund á einu ári en þá er
ekki meðtalinn launakostnaður
lögreglumanns sem hefur hann
í umsjá.
Alls eru tíu fíkniefnahund-
ar á Íslandi en einn er í þjálfun
og mun fara á Litla-Hraun. Það
kostar á aðra milljón að þjálfa
einn lögregluhund en ekki er
áætlað að fjölga hundum. Rík-
islögreglustjóri styrkir lögreglu-
embætti úti á landi en alls eru
það þrjár og hálf milljón króna
sem þeir borga með minni um-
dæmum. Þetta kom fram í svari
dómsmálaráðherra við fyrir-
spurn Magnúsar Þórs Hafsteins-
sonar alþingismanns Frjálslynda
flokksins
Jöklabréf í
Austurríki
Austurríska ríkið gaf út
jöklabréf að andvirði 25 millj-
arða króna í gær. Þetta er
næst stærsta jöklabréfaútgáfa
frá upphafi. Það er Lands-
bankinn sem hefur umsjón
með útgáfunni og sölutrygg-
ir einnig bréfin. Greining-
ardeild bankans greinir frá
þessu.
Heildarupphæð útistand-
andi jöklabréfa er nemur því
359 milljörðum króna og hef-
ur aldrei verið hærri. Austur-
ríska ríkið var á meðal fyrstu
útgefendum á jöklabréfum.
Risvandi karlmanna er ekki nógu mik-
ið ræddur í samfélaginu, að sögn Jóns
G. Hannessonar heimilislæknis. Sjúk-
lingarnir koma ekki fyrr enn risvandi
vegna aldurs er orðinn vandamál og
hafa þá þróað með sér fleiri sjúkdóma.
„Algengt er að menn komi þremur til
fimm árum of seint og er þá risvand-
inn oft orðinn hjartavandamál.“ Jón G.
hefur sótt nýlegar ráðstefnur erlendis
þar sem niðurstöður hafa verið nán-
ast á einn veg í þeim löndum sem við
berum okkur saman við. Eiginkonan
kvartar ekki undan risvanda manns-
ins, henni þykir vænt um hann sem
manneskju frekar en kynveru, en að
baki vandanum geta oft leynst hættu-
legir sjúkdómar. Erlendar rannsóknir
sýna að karlar á aldrinum frá fimm-
tugu til sextugs eru í helsta áhættu-
hópnum og með því að grípa sem fyrst
inn í geta læknar fyrirbyggt ótímabær-
an dauða.
Að sögn Jóns G. sýndu ga lar ís-
lenskar rannsóknir fram á að um átta-
tíu prósent af risvandatilfellum væru
af andlegum toga. Nýlegar rannsóknir
sýna hins vegar fram á þveröfuga nið-
urstöðu þar sem áttatíu prósent ris-
vandamála má skýra með líkamlegri
hrörnun. Því er mikilvægt að menn
leiti sem fyrst til læknis því oft er ris-
vandinn lítilvæglegur í samanburði
við raunverulegar orsakir hans. Oftast
er hægt að hjálpa þessum sjúklingum.
„Við getum haft töluverð áhrif með til-
tölulega einföldum aðferðum eins og
lífsstílsbreytingum og lyfjagjöf.
Ný stinningarlyf eins og Ci-
alis og Viagra hafa leyst
mikið vandamál, en
aukning á notkun þess-
ara lyfja er mun minni
en ég reiknaði með.“
Þriðjungur íslenskra
karlmanna á aldrinum
45 til 75 ára á við stinn-
ingarvanda að stríða
og eykst vandamálið
með hækkandi aldri,
samkvæmt rannsókn
sem Guðmundur Vik-
ar Einarsson læknir
framkvæmdi og birti
í Læknablaðinu á síð-
asta ári. Þar er enn-
fremur lögð áhersla á
samverkandi þætti ris-
truflana þar sem reyk-
ingar og sykursýki auka
mest líkurnar. Aðrir
marktækir þættir eru kólesteról, kvíði
og þunglyndi.
Jón G. segir enn feimnismál að
biðja lækni um stinningarlyf. „Oftast
koma þeir vegna annarra vandamála
og þá er risvandinn kannski ann-
að eða þriðja vandamálið. Stundum
þarf læknir jafnvel að nefna vanda-
málið fyrir sjúklinginn“. Stinningar-
lyf eru eingöngu fáanleg gegn
lyfseðli. Stærsti kúnna-
hópurinn er á aldrin-
um fimmtíu til sjötíu
ára, en einnig spyrja
ungir menn um lyfið,
oft án þess að þarfn-
ast þess. „Þörf þeirra
getur tengst flóknum
vanda þar sem stera-
notkun er,“ segir Jón.
Stinningarlyf eru
fyrir karlmenn með
ristruflanir, en það er
þegar körlum ann-
að hvort rís ekki hold
eða holdris helst ekki
nógu lengi til þess að
þeir geti haft samfar-
ir. Stinningarlyf slak-
ar á æðum í getn-
aðarlim þannig að
blóð geti streymt inn
í liminn við kynferðis-
lega örvun. Tvö lyf skipta markaðnum
nokkurn veginn á milli sín, Viagra sem
hefur verið aðgengilegt Íslending-
um síðan 1999 og Cialis, síðan 2003.
Helsti munur á þessum tveimur lyfj-
um er verkunartími, en Viagra á að
gera mönnum kleift að öðlast og við-
halda reisn í fjóra klukkutíma en Cial-
is í 36 klukkutíma. Verð á lyfjunum er
mjög svipað eða frá rúmum eitt þús-
und krónum á töfluna.
Jón leggur mikla áherslu á að ef
risvandamál hefur staðið yfir í þrjú ár
sé nauðsynlegt að rannsaka almenna
heilsu með tilliti til hjarta- og æða-
sjúkdóma. „Ekki er hægt að treysta á
að konur hvetji menn til að leita sér
hjálpar því rannsóknir sýna að um-
burðarlyndi þeirra getur verið hættu-
legt heilsu eiginmannanna í þessu til-
felli. Eiginkonur mættu skipta sér fyrr
af“, segir Jón.
blaðamaður skrifar: skorri@dv.is
Skorri GíSlaSon
ef risvandamál hefur
staðið yfir í þrjú ár er
nauðsynlegt að rann-
saka almenna heilsu
með tilliti til hjarta- og
æðasjúkdóma.
Nýtt frumvarp til laga um jaf a
stöðu og jafnan rétt kve na og karla
var kynnt á blaðamannafu di sem
félagsmálaráðherra boðaði til í Þjóð-
menningarhúsinu í gær.
Þverpólitísk nefnd var stofnuð á
þrjátíu ára afmæli fyrstu jafnréttis-
laga sem sett voru árið 1976. Guðrún
Erlendsdóttir fyrrverandi hæstarétta-
lögmaður var í fyrstu nefndin i og er
nú formaður en auk félagsmálaráð-
herra sat fundinn Ingólfur V. Gísla-
son sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu
og aðrir sérfræðingar. Ráðherra gerði
grein fyrir helstu áherslum en þó sér-
staklega þeirri staðreynd að launa-
munur kynjanna, sem nú er um sex-
tán prósent, virðist hafa fest sig í sessi.
Aftur á móti sýna nýjar skýrslur að
ungar konur eru ákveðnari í að koma
sér í stjórnir og krefjast svipaðra laun
og karlar. Guðrún formaður lagði
áherslu á að mikið hefði áunnist í
jafnréttisbaráttu á Íslandi þessi þrjátíu
ár. „Þegar jafnréttislög voru sett árið
1976 var okkur mest umhugað um að
breyta hugarfari almennings í jafn-
réttismálum, það var mál númer eitt.
Staðreyndin er að launamunur hef-
ur minnkað þótt hann hafi nú staðn-
að. En margt gott hefur náðst fram á
þessum þrjátíu árum og er stofnun
þessarar nefndar fra hald af því.“
Ingólfur V. gerði grein fyrir skýrslu
sem greinir það sem hann kallaði
eina róttækustu tilraun til að hafa
áhrif á þá samfélagslegu verkaskipt-
ingu sem festi sig í sessi á tuttugustu
öldinni. Helstu forse dur þessara
breytinga voru lenging, tekjuteng-
ing og foreldraskipti fæðingarorlofs.
Í kjölfarið jókst þátttaka feðra í fæð-
ingarorlofi að meðaltali úr 39 dög-
um árið 2001 í 96 daga árið 2004. Ein
af ánægjulegri afleiðingum þessara
breytinga er að nú fæðist 2,1 barn í
hverri íslenskri fjölskyldu sem er nóg
til að viðhalda fjölda þjóðarinnar.
Slíkar tölur er ekki að finna annars
staðar í Evrópu. skorri@dv.is
L u amun r kynjanna virðist fastur í sessi
Hjón verða að
taka á risvandamál-
um saman Heilbrigði
mikilvægara en kynlíf.
Þau kynntu frumvarp um jafnréttislög
guðrún Erlendsdóttir nefndarformaður,
magnús stefánsson félagsmálaráðherra og
ingólfur V. gíslason sérfræðingur.
RiSvanDi enn
feimniSmálLóðin eftirsótta þessa lóð lét borgin í skiptum fyrir húsnæðið sem átti að hýsa spilasal í mjódd. að auki greiddi borgin 90 milljónir fyrir þá húseign.
Spilakassarnir í Mjódd Fámennt var við spilakassana
á strætisvagnastöðinni í mjódd í gær. menn áttu þó
ekki eftir að spila lengi því hálfri klukkustund eftir að
blaðamaður yfirgaf staðinn voru kassarnir fjarlægðir.
Svandís Svavarsdóttir
Borgarfulltrúi Vinstri grænna
furðar sig á samningi
borgarinnar og Háspennu.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Borgarstjóri segir ekkert
óeðlilegt við samninginn, þetta
sé eins og hver önnur viðskipti.
dV Mynd SteFán