Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Page 9
DV Fréttir þriðjudagur 13. mars 2007 9 Geir H. Haarde forsætisráðherra og Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, voru ekki sam- mála um margt á Alþingi í gær. Þeir voru þó sammála um eitt, að spurn- ingar og svör hvors annars væru út í hött. Kristján hóf fyrirspurnatíma á Al- þingi með því að spyrja hvort mark- mið stjórnvalda væri að vinna gegn áformum sínum um að gera Ísland að alþjóðlegri fjármálamiðstöð. Þetta sagðist hann lesa út úr reglu- gerð fjármálaráðherra þar sem fjár- málafyrirtækjum er bannað að telja fram í öðrum gjaldeyri en íslenskum krónum. Þetta væru viðbrögð stjórn- valda við því að „maður úti í bæ“, eins og hann kallaði Davíð Oddsson Seðlabankastjóra, hefði sagt að lögin sem reglugerðin byggir á hefðu ekki verið samin með það í huga að fjár- málafyrirtæki gætu talið fram í öðr- um gjaldmiðli en krónum. Straumur-Burðarás hafði ákveð- ið að telja fram í evrum en ekkert verður af því úr þessu. Björgólf- ur Thor Björgólfsson, aðaleigandi fjárfestingabankans, hefur sagt að bankinn verði hugsanlega fluttur úr landi. Forsætisráðherra sagði af og frá að reglugerðin gengi gegn markmiðum og tilgangi laganna, ekkert væri upp á hana að kvarta. Hann sá ástæðu til að kvarta undan fyrirspurninni. „Ég tel að sú spurning sé út í hött. Það er alls ekki verið að vinna gegn þeim áformum heldur þvert á móti á öðr- um vettvangi á vegum stjórnvalda að vinna að því að hrinda þeim áform- um í framkvæmd.“ Kristjáni fannst lítið til svara for- sætisráðherra koma, sérstaklega þegar sá síðarnefndi dró samkomu- lag kennara og sveitarfélaga inn í umræðuna. „Svar hæstvirts forsætis- ráðherra var alveg út í hött.“ Eignir Guðmundar Jónssonar í Byrginu hafa verið kyrrsettar af efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra. Þetta staðfestir Guðmund- ur sjálfur sem og embætti ríkislög- reglustjóra. Þær eignir sem hafa verið kyrr- settar eru sumarbústaðarlóðir sem hann byggir nú á. Einnig hef- ur heimili hans í Grímsnesi verið kyrrsett. Ástæðan fyrir aðgerðun- um eru hugsanleg skaðabótaskylda þegar niðurstaða fæst í mál Guð- munds. Guðmundur flutti í bjálkahúsið í Grímsnesi í ágúst en húsið er 140 fermetrar og haglega smíðað. Að auki er lítill skáli við hlið þess þar sem dóttir hans býr. Ekki er vitað hvað húsið er metið á en það mun ekki vera óvarlegt að áætla að það telji að minnsta kosti á þriðja tug milljóna. Þar að auki sá hann sér leik á borði áður en hneykslið í Byrg- inu komst í hámæli. Hann keypti þá nokkrar sumarbústaðalóðir á alls 1,6 milljónir króna. Hann segir sjálfur að hann hafi greitt fyrir þær með reiðufé. Þessar eignir eru ekki á hans nafni heldur fyrirtækis sem skráð er á fyrrum samstarfsfélaga hans í Byrginu, Jóns Arnarrs Einars- sonar. Engar eigur á nafni Guðmundar „Þeir halda að við séum að svindla undan skatti,“ segir Guð- mundur Jónsson fyrrum forstöðu- maður. Hann hefur verið kærð- ur fyrir kynferðisafbrot og meint fjársvik. Hann lét smíða húsið í Grímsnesi fyrir sig en það er veg- legt bjálkahús. Engar eigur eru á nafni Guðmundar heldur eru þær á nafni fyrirtækisins sem Jón Arnarr Einarsson er skráður fyrir. Efnahagsbrotadeild kyrrsetti fyr- irtækið nýlega til þess að tryggja aðgang að eignunum en að sögn Guðmundar kemur það honum ansi illa. Ástæðan mun vera sú að hann er þá ekki lánshæfur. Endurgreiddu vistina Nýverið voru fyrrum vistmenn Byrgisins kallaðir til yfirheyrslu hjá ríkisskattstjóra. Þar fengu þeir stöðu sakborninga en svo virðist sem Byrgið hafi lagt inn á reikn- inga sumra vistmanna án þess að tiltaka hvers vegna. „Yfirleitt voru þetta endur- greiðslur vegna vistarinnar,“ segir Guðmundur um skattrannsókn- ina á vistmönnunum. Hann segir að þegar vistmenn hafi ekki lokið meðferðinni hafi Byrgið endur- greitt þeim það fé sem þeir borg- uðu þegar þeir voru lagðir inn. Hann segir að þetta hafi yfirleitt verið lágar fjárhæðir en vistin kostaði í kringum fimmtíu þúsund krónur. Að auki segir Guðmundur að það hafi komið fyrir að lagt hafi verið inn á reikninga fólks þegar það var beðið um að kaupa nauð- synjavörur fyrir meðferðarheimil- ið. Vilja tryggja aðgang að eigum „Við kyrrsettum eigur Guð- mundar til að tryggja hugsan- legar skaðabætur,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson, saksókn- ari efnahagsbrotadeildar ríkis- lögreglustjóra. Með þessari að- gerð tryggir hann að Guðmundur geti ekki fært eignir á milli kenni- talna eða selt þær áður en niður- staða fæst í málið hans. Mikil og umfangsmikil rannsókn fer fram vegna máls Byrgisins. Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar sem birt var í janúar kemur fram að margt hafi verið afar óljóst í fjár- málum heimilisins. Þar var mælst til þess að málinu yrði beint til meðferðar ríkissaksóknara. Jón Arnarr Einarsson vildi ekki tjá sig um málið þegar til hans var leitað. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur kyrrsett eignir Guðmundar Jónssonar í Byrginu. Um er að ræða bjálkahús í Grímsnesi þar sem hann býr. Einnig eru lóðir sem hann keypti fyrir rúma eina og hálfa milljón króna kyrrsettar. Hann er að byggja hús á þeim um þessar mundir. Ástæða kyrrsetningarinnar er sú að efnahagsbrotadeild vill tryggja aðgang að eignunum vegna hugsanlegra skaðabótakrafna. Valur GrEttisson blaðamaður skrifar: valur@dv.is allar Eignir kyrrsEttar „Við kyrrsettum eigur Guðmundar til þess að tryggja hugsanlegar skaðabætur.“ DV Fréttir mánudagur 12. mars 2007 7 aun væru fimmtungi hæ ri Lögreglan á Selfossi gróf upp bak- garðinn hjá Guðmundi Jónssyni, fyrrum forstöðumanns Byrgisins. Vísbendingar voru um að Guð- mundur hefði spillt sönnunar- göngum með því að grafa þau hjá rotþró í garðinum. Lögreglan vopnuð lítilli beltagröfu kom heim til Guðmundar. Verkið tók tvo tíma en að sögn Guðmundar fannst ekkert í garðinum. Á meðan hann fylgdist með uppgreftrinum gaf hann rannsóknarlögreglumannin- um vindil. „Þeir komu hingað á fimmtu- daginn og grófu upp garðinn hjá mér,“ segir Guðmundur Jónsson, fyrrum forstöðumaður Byrgisins en hann hefur verið kærður fyrir kynferðislega misnotkun og hugs- anleg fjársvik í tengslum við með- ferðarheimilið sem nú er búið að loka. Lögreglan mætti heim til hans á fimmtudaginn í síðustu viklu,með úrskurð Héraðsdóms Suðurnesja upp á vasann, um að heimilt væri að grafa upp garðinn. Það er í annað skiptið sem húsleit er gerð heima hjá Guðmundi. Í fyrra skiptið lék grunur á að hann hefði falsað læknaskýrslur kvenna sem voru í Byrginu. Sjálfur segir hann það ekki eiga við nein rök að styðjast. Gaf lögreglunni vindil „Ég gaf rannsóknarlögreglu- manninum bara vindil á meðan við fylgdumst með uppgreftrinum,“ segir Guðmundur í Byrginu en lög- reglan taldi hugsanlegt að hann hefði spillt sönnunargögnum. Sjálf- ur segir Guðmundur gruninn hafa vaknað þegar vinur hann og vinur hans voru að laga rotþróna þar sem sönnunargöngin áttu að hafa legið. Rotþróin fraus að sögn Guðmund- ar og hann ásamt vininum grófu þar að kvöldlagi. Hann segir augljóst að þeir hafi grafið í garðinum og hugs- anlega hafa einhverjir grunað hann um græsku. Þar af leiðandi var lög- reglan látinn vita. Þeir komu svo og grófu upp garðinn. Guðmundur vill meina að ekkert hafi fundist en lög- reglan leitaði að kassa sem áttu að innihalda sönnunargögn sem tengj- ast rannsókn málsins. Aðspurður segist Guðmundur ekki vita hvað átti að hafa verið í kassanum. Færður í yfirheyrslu „Ég fór í yfirheyrslur vegna sjö- undu konunnar í kjölfarið,“ segir Guðmundur en eftir uppgröftinn var hann færður til yfirheyrslu hjá lögreglunni. Hann fór á eigin bíl en lögreglan fylgdi honum eftir alla leið á stöðina. Ástæðan fyrir því að hann var færður til yfirheyrslu var sú að ný- búið var að taka skýrslu af sjöundu konunni sem kærði hann vegna kynferðislegrar misnotkunar. Hann segir yfirheyrsluna hafa verið út í hött enda bar hann af sér allar sak- ir. Hann segist blásaklaus af ásök- unum kvennanna þrátt fyrir að sjö konur hafi kært hann. Sjálfur telur Guðmundur að ástæður þess að konurnar kæri hann sé vegna pen- inga. Að auki segir hann að sjöunda konan hafi ekki komið með þau sönnunargögn sem hún hafi lofað og því þurfi hann að fara aftur í yfir- heyrslu á þriðjudaginn. Engar eigur frystar Guðmundur lætur ekki deigan síga þrátt fyrir alvarlegar ásakanir og opinskáa umfjöllun um persónu hans. Hann byggir nú hús á þeim lóðum sem hann keypti en grunur lék á að hann hefði fengið þær eft- ir óeðlilegum leiðum. Ekkert hefur komið fram sem sannar það. Að- spurður hvort efnahagsbrotadeild lögreglustjórans hafi fryst eignir hans segir Guðmundur að svo sé ekki. „Ég er bara að byggja á einni lóðinni ásamt dóttur minni,“ segir Guðmundur og lætur vel að staðn- um sem hann býr á. Hann er búsett- ur í Grímsnesi og hyggst ekki flytja á brott. Hann fór frá Hafnarfirði til Grímsness í ágúst síðastliðnum en hann býr í bjálkakhúsi í sumarbú- staðalandi. Þar dvelur hann ásamt stórfjölskyldu sinni. Hyggur á hefndir „Lögfræðingur minn er bú- inn að taka saman ellefu kæruliði vegna meiðyrða,“ segir Guðmund- ur en lögfræðingur hans er Hilmar Baldursson. Guðmundur segir að þegar rannsókn málsins verði lok- ið og niðurstaða fæst þá muni hann sækja menn til saka fyrir aðdróttanir og meiðyrði. Bendir hann á að hann hafi verið kallaður djöfull í manns- mynd og þaðan af verra. Guðmundur segist fyrirgefa þeim sem ásækja hann sem harð- ast. Hann segist ekki taka umræð- una svo mikið inn á sig en hún bitni þó verr á fjölskyldu hans og að- standendum. Fjölskyldan stendur með honum eins og klettur, að hans sögn. Hótað öllu illu Fjölskylda Guðmundar og hann sjálfur hefur orðið fyrir miklu ónæði vegna fólks sem telur sig eiga eitt- hvað sökótt við hann. Hann sýnir blaðamanni smáskilaboð sem hann fékk en þau eru eftirfarandi: „Manst tönn fyrir tönn, auga fyrir auga? Verst að þú hefur bara tvö augu og fáar tennur eftir. En það ætti að nægja. Þú munt enda í hjólastól.“ Skilaboðin eru hrollvekjandi en aðeins hluti af því ónæði sem hann verður fyrir. Hann segir að einhver óprúttinn aðili hafi klippt á járn- keðju sem lokaði af veginn að hús- inu hans. Sá vegur er einkavegur. Guðmundur segir athafnirnar samt ekki hafa gengið lengra en það. Þær eru í raun og veru bara ögranir eins og hann orðar það. Vill sem minnst segja „Það hefur ekki reynst þörf á að hneppa Guðmund í gæsluvarð- hald,“ segir Jón Hrafnsson rann- sóknarlögreglumaður sem rann- sakar mál Guðmundar í Byrginu. Aðspuður hvort Guðmundur hafi spillt sönnunargögnum vill hann sem minnst segja. Hann segir rannsókn langt komna en þegar er búið að taka skýrslur af konunum sjö og öllum starfsmönnum Byrgisins. Sjálfur segist Jón ekki vera búinn að telja saman hversu margir hafa verið kallaðir til, en þeir skipta tugum. Hann vildi ekki tjá sig um það hvort eitthvað hafi fundist við upp- gröftin í garðinum hjá Guðmundi í Byrginu. Guðmundur Jónsson Valur GrEttisson blaðamaður skrifar: valur@dv.is grunuðu guðmund um að grafa sönnunargögn „Í kjölfarið fór ég í yfirheyrslur vegna sjöundu konunnar.“ Guðmundur Vill bók um Byrgið „Ég hef rætt við einn rithöfund og beðið hann um að skrifa bók fyr- ir mig,“ segir Guðmundur Jónsson í Byrginu en hann hyggst gefa hana út um næstu jól. Hann segir rithöf- undinn enn að vera ákveða sig og því óljóst hver muni skrifa bókina enn sem komið er. Sjálfur segir Guðmundur að það sé af nóg að taka enda saga Byrgisins og hans sjálfs einstaklega skrautleg. Hann segir engan titil vera komna á bókina enn sem komið er. Menn geta þó leikið sér með hugmyndaflugið enda margir góðir titlar möguleg- ir. „Við þurfum örugglega að skrifa þrjú bindi,“ segir Guðmundur hlæj- andi og bendir á að kaflaskipti Byrg- isins hafi verið ansi skörp. Þá má nefna að heimilið var fyrst um sinn í Hafnarfirði, svo Rockwille í Keflavík og að lokum á Efri-Brú. Það er hins- vegar búið að loka heimilinu í dag vegna kynlífshneykslis og meintrar fjármálaóreiðu. Vill Guðmundur segja sína sögu svo almenningur skilji hans sjónar- mið og það sem hann hefur geng- ið í gegnum. Sjálfur ber hann af sér allar sakir þrátt fyrir opinská mynd- bönd sem sýna hann annarsvegar í kynlífsleikjum við stúlkuna Ólöfu Ósk Erlendsdóttur og hinsvegar símamyndband þar sem hann á að hafa sýnt liminn á sér. Guðmundur segist sjá sögu Byrgisins frekar fyrir sér heldur en það sem hann sjálfur hefur gengið í gegnum undanfarið. Umræðan um hann hefur verið afar opinská en hann hefur borið af sér sakirnar meðal annars í Kastljósi og á Stöð tvö. Málið er í rannsókn en enginn rithöfundur hefur tekið að sér að skrifa bók um Byrgið. geðsjúkir sendir í Byrgið Guðmundur Jónsson í Byrg- inu segir fólk með geðraskanir ítrekað hafa verið sent í Byrgið af Landspítalanum. Í einu tilfelli hafi háaldraður maður verið sendur þangað. Guðmundur segist hafa sent hann þaðan á elliheimili sem varð til þess að hann hætti að drekka. Guðmud- nur heldur því einnig fram að hann hafi oft sent fólk til baka á Landspítalann sem starfsfólk Byrgisins gatekki annast vegna alvarlegra geðkvilla. Landspít- alinn hefur þó hafnað þessum ásökunum og aldfrei sagst hafa vísað fólki þangað, heldur að- eins bent á úrræðið. Guðmundur Jónsson Í kunnulegri stellingu með biblíuna í fanginu en hann neitar að eitthvað hafi fundist við uppgröft lögreglunnar í garðinum hans. miðvikudaginn 12. mars Bjálkahúsið kyrrsett Heimili guðmundar er haglega smíðað en þangað flutti hann í ágúst síðastliðnum. Guðmundur Jónsson Eignir hans hafa verið kyrrsettar af efnahagsbrota- deild ríkislögreglustjóra en mikil skattarannsókn stendur yfir. dV myndir Gúndi Forsætisráðherra og þingmaður Samfylkingar tókust á: Sagði svar ráðherra alveg út í hött alþingi Kristján L. möller þingmaður samfylkingar- innar sagði að reglugerð sem bannar fjármálafyrir- tækjum að telja fram í annarri mynt en krónum tæknilegar hindranir í viðskiptalífinu. Hagsmunirnir fara saman Nauðsynlegt er að tryggja að aðbúnaður og kjör erlendra starfsmanna séu ekki lakari en aðbúnað- ur og kjör Ís- lendinga og er það á sameig- inlega ábyrgð stjórnvalda og stéttarfélaga að standa vörð um það. Þetta stendur í ályktun aðalfundar Starfsmannafélags Reykjavík- ur þar sem lögð er áhersla á að hagsmunir erlends og innlends verkafólks fari saman. Fundarmenn lögðu mikla áherslu á að erlent starfsfólk gengi í stéttarfélög og nýtti sér þjónustu þeirra. „Það er grund- vallaratriði fyrir alla launþega að ekki sé kvikað frá þeim kjörum sem um hefur verið samið.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.