Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Page 10
þriðjudagur 13. mars 200710 Fréttir DV
Hans Blix, fyrrverandi vopnaeft-
irlitsmaður Sameinuðu þjóðanna,
sakar Bandaríkjamenn um norna-
veiðar í aðdraganda innrásarinnar í
Írak í viðtali við bresku fréttastofuna
Sky.
Blix hefur gagnrýnt harðlega inn-
rásina í Írak undir stjórn Bandaríkja-
manna síðan hann og menn hans
fundu ekki hrúgur af efnavopnum og
lífrænum vopnum sem Bandaríkja-
menn héldu statt og stöðugt fram
að Saddam Hussein ætti. Blix sakar
Bandaríkjamenn um að hafa stund-
að „nornaveiðar“ því þeir hafi ekki
verið að leita að sönnunargögnum,
heldur frekar ástæðum til innrásar.
Hann sagðist ekki í neinum vafa um
að innrásin væri „greinilega ólög-
leg“.
Blair „ekki heiðarlegur“
Blix snýr sér síðan að Bretum og
gagnrýnir forsætisráðherrann Blair
fyrir að hafa ekki verið heiðarlegan
í umgengni við sönnunargögn sem
notuð voru til að réttlæta innrásina.
„Þeir settu upphrópunarmerki í stað-
inn fyrir spurningamerki,“ segir Blix.
„Það voru spurningamerki þarna en
þeir breyttu þeim yfir í upphrópun-
armerki. Og ég held að þeir hafi feng-
ið pólitíska refsingu fyrir þetta. Þeir
töpuðu miklu trausti, bæði Bush og
Blair.“
Blix bætti því við að það hefði
hugsanlega komið í veg fyrir stríðið
ef vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna hefðu fengið að ljúka störf-
um sínum. „Það hefðu ekki fundist
nein vopn og þess vegna hefðum við
getað svarað: „það eru fundust engin
vopn á neinum af stöðunum sem þið
hafið bent á“.“
Bush vill fleiri hermenn
Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti
á sunnudag að hann hygðist senda
4.400 hermenn til Íraks, til viðbótar
við 21.500 manna liðsauka sem til-
kynnt var um í janúar. Nýja viðbótin
eru herlögreglumenn og stuðnings-
lið til þess að hermennirnir geti unn-
ið vinnuna sína, eins og Bush orðaði
það.
Blix hafði hins vegar mun meiri
trú á því að styðja við bakið á Írökum,
þeir hafi til að dreifa menntamönn-
um og hæfileikafólki sem geti snúið
stöðunni Írak í hag. Blix hefur ekki
mikla trú á áframhaldandi hernaði í
Írak: „ég sé ekki að Bandaríkjamenn
muni ná árangri.“ herdis@dv.is
Blix sakar Bandaríkjamenn um nornaveiðar
Fyrrum vopnaeftirlitsmaður SÞ segir aðdraganda innrásarinnar í Írak óeðlilegan:
Andstaðan við Robert Mugabe,
forseta Simbabve fer vaxandi.
Innanlands eru hún ekki lengur
bundin við einstaklinga utan
Zanu-flokks Mugabe heldur
hafa margir samflokksmenn
snúist gegn honum. Hann er
nú sagður hafa misst tengsl-
in við eigin flokksmenn
rétt eins og hann
missti tengslin við
aðra landa sína.
Stjórnarandstæð-
ingar handteknir
Morgan Tsvangirai,
leiðtogi stjórnarandstöðu-
flokksins MDC í Simbabve
er talinn hafa særst þegar
lögregla leysti upp fjöldafund
stjórnarandstæðinga á sunnu-
dag og handtók nokkra helstu
andstæðinga Roberts Mugabe,
forseta landsins.
Stuðningsmenn Tsvangirai
og lögfræðingar mannréttinda-
samtaka í Simbabve hafa krafist
tafarlausrar lausnar hans og ann-
arra fanga. Óttast þeir að fangarn-
ir séu í illa á sig komnir og margir
þeirra séu illa særðir, þar á meðal
Tsvangirai sjálfur sem sagður hafa
hlotið slæm höfuðmeiðsl þegar
hann var handtekinn og barinn af
lögreglu. Meðal annarra fanga
er Arthur Mutambara, leiðtogi
klofningsflokks MDC, prest-
ar og mannréttindafrömuðir.
Fjöldafundurinn var skipu-
lagður af sameiginlegum
samtökum mannrétt-
indafélaga, trúfélaga
og stjórnarandstæð-
inga í von um að
styrkja tengslin milli þeirra í and-
stöðunni við Mugabe, forseta.
Mótmæli bönnuð
Allir pólitískir fjöldafundir eru
bannaðir í Simbabve og því var
fundurinn skipulagður sem bæna-
samkoma. Þrátt fyrir það var að-
búnaður lögreglu mikill á svæðinu
og götum að samkomusvæðinu
lokað. Leitað í bílum sem fóru inn
á svæðið. Óeirðarlögregla lét til
skarar skríða um hádegisbilið gegn
fundarmönnum og var einn þeirra
skotinn. Fjöldi manna var hand-
tekinn ásamt lykilfólki stjórnar-
andstöðunnar. Köstuðu stuðnings-
menn þeirra grjóti að
Þrengir að roBert MugaBe
Mugabe og Thatcher robert
mugabe heimsótti margréti Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands, skömmu
eftir að hann varð forseti simbabve
1980. Hann var þá á leiðinni til
júgóslavíu til að vera við útför Títós,
sem réði lögum og lofum þar til
dauðadægurs.
lögreglunni í kjölfarið og kveiktu elda.
Þetta eru önnur fjölmennu mótmæl-
in gegn forsetanum á skömmum tíma
þrátt fyrir bannið. Í viðtali við breska
blaðið Guardian á laugardag sagði
Tsvangirai að stuðningur við núver-
andi stjórn landsins færi þverrandi og
raddir um stjórnarskipti hefðu aldrei
verið háværari. Hann sagði þess
vegna mikilvægt að ný stjórnarskrá
yrði samþykkt fyrir forsetakosning-
arnar á næsta ári til að tryggja að þær
yrðu opnar og sanngjarnar.
Ætlar að sitja til níræðs
Þrátt fyrir að vegur stjórnar-
andstöðunnar sé að aukast og
tök Mugabe á eigin flokki séu að
minnka þá hyggst hann bjóða sig
fram á næsta ári. Hafi hann sigur þá
mun hann sitja til ársins 2014. Hann
verður þá orðinn níutíu ára gamall
en Mugabe tók við stjórnartaumun-
um í landinum árið 1980.
Fyrir skömmu reyndi Mugabe
að fá flokksmenn sína til að sam-
þykkja lög um að núverandi kjör-
tímabil yrði framlengt um tvö ár
en því var hafnað. Hefur andstaða
við hann innan flokks hans, Zanu-
flokksins farið vaxandi eins og af-
greiðsla tillögunnar um lengingu
Forsetinn mugabe sem hefur verið við völd
í simbabve í 27 ár sést hér ávarpa fund
sameinuðu þjóðanna. Framámenn í öðrum
ríkjum hafa oft reynt að forðast hann. Frægt
varð þegar jack straw, utanríkisráðherra
Bretlands, tók í hönd mugabe og útskýrði eft-
ir á að hann hefði ekki borið kennsl á
mugabe sem sat í dimmu horni.
Andstæðingar forsetans finnast
víða þeirra á meðal þessir sem
mótmæltu á götum Parísar árið 2003.
Vegatálmar í Bagdad
Íraskir hermenn halda uppi eftirliti á vegatálm-
um. Borgin virtist friðsamlegri í gær eftir að 47
létust í sprengjuárásum á sunnudag.
Hans Blix Fyrrverandi vopnaeftirlits-
maður sþ er efins um árangur af
stríðsrekstri í Írak.