Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Qupperneq 12
neytendur
þriðjudagur 13. mars 200712 Neytendur DV
ToyoTa með
yfirburðasTöðu
2320 bifreiðar hafa skipt um
eigendur það sem af er ári,
samkvæmt tölum Bílgreina-
sambandsins. Líkt og síðustu
ár hefur Toyota yfirburðarstöðu
á markaðnum, en 520 bílar frá
framleiðandanum hafa selst
það sem af er ári. Í öðru sæti
yfir mest seldu bíla ársins er
Honda, með 178 selda bíla og
Wolkswagen er þriðji mest seldi
bíll ársins með 176 selda bíla.
Bílasala hefur jafnframt dregist
verulega saman á milli ára, því
á sama tíma á síðasta ári höfðu
5334 bílar verið seldir.
Þekktu rétt þinn
Í 57. grein laga frá 2005 segir að óheimilt sé að
auglýsa eða tilkynna útsölu eða aðra sölu, þar
sem vörur eru boðnar á lækkuðu verði, nema
því aðeins að um raunverulega verðlækkun sé
að ræða. þá er einnig kveðið skýrt á um það að
verðmerkingin þurfi greinilega að sýna
upprunalegt verð vörunnar.
Ísland.is
Ísland.is er nýr upplýsinga- og
þjónustuvefur fyrir almenning
með heildstæðum upplýsingum
um þjónustu ríkis og sveitarfé-
laga. Vefsíðunni er ætlað að auð-
velda aðgengi almennings að
opinberri þjónustu og á henni
geta neytendur kynnt sér reglur
og réttindi um viðskipti, auk
þess sem á síðunni eru tenglar á
alla helstu aðila sem sinna neyt-
endamálum og við hvaða tilefni
fólk getur leitað til þeirra.
Ókeypis lög-
fræðiráðgjöf
Lögmannavakt-
in er ókeypis
lögfræðiráðgjöf
fyrir almenn-
ing á vegum
Lögmannafélags Íslands. �é-
lagið veitir þjónustuna alla
þriðjudagseftirmiðdaga og íbúar
höfuðborgarsvæðisins koma
á skrifstofu félagsins en íbúar
landsbyggðar geta fengið aðstoð
símleiðis. Markmið starfseminn-
ar er að mæta þörf almennings
fyrir upplýsingar um réttarstöðu
í nútímaþjóðfélagi, eftir því sem
segir á vef Lögmannafélagsins.
Lögmannstofan Opus lögmenn bjóða upp á sólarhrings lögfræðiþjónustu og
skuldbinda lögmenn stofunar sig til þess að vinna minnst fimmtíu klukkustundir á
ári án þóknunar.
maTvöruverslanir
sTanda sig vel
Hagstofa Íslands birti í gær fyrstu
mælingar sínar á vísitölu neyslu-
verðs eftir að breytingar á lögum
um virðisaukaskatt og vöru-
gjöld tóku gildi þann 1. mars.
Verðbólga mældist 5,9% í mars
og lækkaði vísitala neysluverðs
um 0,34% frá síðasta mánuði.
Samkvæmt Hagstofunni hafði
lækkun á matvörum mest áhrif
á lækkun vísitölunar, en liðurinn
lækkaði um 7,4% frá því í febrúar
og telur Hagstofan lækkunina
hafa skilað sér vel.
Lögmannsstofan Opus lögmenn
tók til starfa 1. desember síðast-
liðinn. Opus lögmenn bjóða, fyrst
allra lögmannastofa hér á landi,
upp á sólarhringsþjónustu fyrir
viðskiptamenn sína, ásamt mögu-
leika á fimmtíu klukkustunda lög-
fræðiþjónustu á ári án þóknunar.
Grímur Sigurðarson héraðs-
dómslögmaður segir þörf hafa
verið á sólarhrings lögfræðiþjón-
ustu hér á landi, en slík þjónusta
er vel þekkt víða erlendis. „Þessi
þjónusta er ætluð bæði viðskipta-
mönnum okkar og fólki sem er ekki
þegar í viðskiptum hjá okkur, en
hefur áhuga á að fá fyrstu ráðgjöf
í gegnum síma, áður en það tekur
einhverjar ákvarðanir. Með þessu
erum við að mæta þörf á markaði
sem er að verða alþjóðavæddari,
ásamt því að fólk er í störfum á öll-
um tímum sólarhringsins,“ segir
Grímur.
Fólk vill geta náð í lögmenn
Grímur segist hafa heyrt óánægju-
raddir frá fólki sem á erfitt með að
ná í lögmenn sína og því tók stofan
upp á því að hafa lögmenn sína á
bakvöktum alla daga ársins. „Þetta
er hugsað sem fyrsta þjónusta, ef
fólk lendir aðstöðu þar sem það
þarf álit lögfræðings á því hvernig
það á að bregðast við atburðum,
við hvern það á að hafa samband
og hvernig á að trygga sig í sönn-
un.“ Hann segir meininguna ekki
vera að nývaknaðir lögmenn stof-
unar muni veita ítarlega lögfræði-
þjónustu, heldur almenna ráðgjöf
á fyrstu skrefum málsins.
„Þó svo að við séum tiltölulega
nýbyrjaðir að veita þessa
þjónustu, þá hefur hún gefist vel
og fólk er mjög ánægt með þetta
fyrirkomulag.“
Þjónusta án þóknunar
Önnur nýjung í lögfræðiþjónustu
hér á landi er að lögmenn stofun-
ar skuldbinda sig til þess að sinna
að minnsta kosti 50 klukkustunda
vinnu á ári, í þágu einstaklinga sem
hafa ekki efni á því að ráða til sín
lögfræðing.
„�ólk þarf að uppfylla þau skil-
yrði að efnahagurinn sé sannarlega
þannig að það hafi ekki efni á því að
ráða til sín lögfræðing. Þá er litið til
síðasta tekjuárs og ef fólk var með
tekjur undir tveimur milljónum á
árinu, þá á það möguleika á því að
fá þessa þjónustu. Þá er einnig litið
til eigna- og skuldastöðu.“
Þjónusta án þóknunar eða pro-
bono eins og hún er gjarnan köll-
uð, hefur fest sig vel í sessi í Banda-
ríkjunum, Bretlandi og mörgum
ríkjum Evrópusambandsins. Grím-
ur segir að í kringum þjónustuna
hafa myndast venjur og hefðir. „Við
viljum gera þetta með svipuðum
hætti og hefur verið gert í þessum
löndum.
Grímur segir ekkert hanga á
spýtunni í tenglsum við ókeyp-
is þjónustu stofunnar. „Þetta eru
ekki skaðabótamál eða önnur mál
þar sem hægt er að fá þóknun með
öðrum hætti. Þjónustan snýst ekki
um að vinna fyrir fólk sem fær
greitt fyrir lögfræðiþjónustu hjá
tryggingafélagi eða hinu opinbera.
Þetta eru mál þar sem að fólk getur
hvergi fengið greitt fyrir lögfræði-
þjónustuna og heldur ekki úr eigin
vasa. Þetta eru mál sem fara bæði
fyrir.“
Dæmi um slík mál, nefnir hann
fólk sem þarf að kjást við félags-
málayfirvöld, eða útlendingastofn-
un. „Þetta er okkar leið til þess að
sýna samfélagslega ábyrgð.“
Samkvæmt verðsamanburði Póst-
og �jarskiptastofnunar fyrir mars
er lítill munur á farsímaverðskrám
stóru símafélagana, Vodafone og
Símans. Hjá Símanum eru fjórar
áskrifarleiðir, Góður, Betri, Best-
ur og Langbestur. Upphafsgjald í
öllum áskriftarleiðum Símans er
3,50 krónur. Þegar hringt er á
milli farsíma Símans er mín-
útugjaldið frá 10 krónum
og upp í 11,50 krónur. Þeg-
ar hringt er úr farsíma hjá
öðru fyrirtæki kostar það
frá 21 krónum og upp í 23
krónur hjá Símanum og það
sama á við um þegar hringt er í
heimasíma hjá öllum fyrirtækj-
um. Þegar hringt er í Símaskrá
er mínútugjaldið á dagtaxta í öll-
um áskriftarleiðum 48 krónur hjá
Símanum. Þá kostar 10 krónur að
senda sms skilaboð í öllum leið-
um.
Hjá Vodafone eru einnig fjórar
áskriftarleiðir, auk frelsis eru, GSM
1 vinur, GSM 2 vinir, Simply og
Einn sími. Upphafsgjald hjá Voda-
fone er á bilinu 3,40 krónum til 4,90
króna. Þegar hringt er í farsíma
innan Vodafone er ódýrasta mín-
útugjaldið 10,90 krónur en dýrasta
mínútugjaldið 17,70 krónur. Þeg-
ar hringt er í farsíma hjá öðru
fyrirtæki er mínútugjaldið frá
15.50 krónum. Athygli vekur
að með áskrifarleiðinni Einn
sími hjá Vodafone kostar 1,70
krónur að hringja í alla heima-
síma samanborið við 21 krónu í
sambærilegri ákriftarleið hjá Sím-
anum. Þá kostar 10,70 krónur að
senda sms skilaboð í öllum áskrift-
arleiðum Vodafone.
Litlu munar í farsímaverðskrá Vodafone og Símans:
Stóru fyrirtækin með svipað gjald
þjónusta í fimmtíu
tíma án þóknunar
Valgeir Örn ragnarSSOn
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
OpuS lÖgmenn Bjóða upp á sólar-
hringsþjónustu. grímur sigurðarson segir
stofuna vilja sýna samfélagslega ábyrgð.
VOdaFOne hjá fyrirtækinu
kostar 1,70 krónur að hringja
í alla heimasíma í simply
áskriftarleiðinni.
Síminn verðskrá
símans og Vodafone er
að mestu leyti svipuð.