Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Page 17
DV Sport þriðjudagur 13. mars 2007 17 ÍÞRÓTTAMOLAR Neitaði að spila með materazzi Í kvöld verður sérstakur leikur milli manchester united og Evrópuúrvals- ins í tilefni þess að fimmtíu ár eru síðan united tók fyrst þátt í Evrópukeppni. marcello Lippi sér um að velja leikmannahóp Evrópuúrvalsins en meðal leikmanna sem þar spila er marco materazzi. Lippi bauð Zinedine Zidane að taka þátt í leiknum en sá franski neitaði því að spila með materazzi. Eins og flestir vita þá skallaði Zidane ítalska varnarmann- inn í úrslitaleik heimsmeistaramótsins síðasta sumar og fékk að líta rautt spjald. sterkt lið evrópuúrvalsiNs Leikmannahópur Evrópuúrvalsins er ekki af verri endanum fyrir leikinn gegn manchester united í kvöld. markverðir eru Oliver Kahn, grégory Coupet og iker Casillas. Varnarmenn eru Paolo maldini, jamie Carragher, Eric abidal, Lilan Thuram, Carles Puyol, marco materazzi og Fabio grosso. miðjumenn eru gianluca Zambrotta, steven gerrard, juninho Pernambucano, Florent malouda, Luis miguel, gennaro gattuso og andrea Pirlo. sóknarmenn eru ronaldinho, ronaldo, alessandro mancini, Zlatan ibrahimovic og Henrik Larsson. Leikurinn verður í beinni á sýn og hefst útsending klukkan 19:30. tveir framleNgja við ÍBv Fyrirliði ÍBV, Páll þorvaldur Hjarðar, hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu tveggja ára. það eru mikil gleðitíðindi fyrir Eyjamenn að þessi sterki varnarmaður verður enn í þeirra herbúðum en ÍBV féll úr Landsbankadeildinni á síðasta ári. þá hefur Bjarni rúnar Einarsson einnig samið við ÍBV til tveggja ára. Hinsvegar er ljóst að bandaríski varnarmaðurinn mark schulte er á förum frá liðinu. Dregið Í eNska BikarNum dregið var í gær í undanúrslit í Enska bikarnum sem er elsta og virtasta bikarkeppni í heimi. Blackburn mætir annað hvort Chelsea eða Tottenham og Watford mætir sigurvegaranum úr viðureign middlesbrough og manchester united. drauma úrslitaleikur á nýjum og rándýrum Wembley velli á milli Chelsea og man utd er því enn möguleiki en robbie savage leikmaður Blackburn sagði að sínir menn væru sýnd veiði en ekki gefinn. „allir vilja sjá Chelsea og man utd í úrslitum en það er okkar að sjá til að það gerist ekki.“ ekki sáttur steve mcClaren var ekki sáttur eftir bikarhelgina. Hann sá tvo leiki, Chelsea - Tottenham og middlesbrough - man utd. Báðir leikirnir enduðu með jafntefli og verða allt að því 14 enskir leikmenn að spila skömmu fyrir mikilvægan landsleik Englands við Ísrael og andorra 24. mars. thomas fékk NýjaN samNiNg Thomas fram- lengdi í gær samning sinn við Knicks í níu mánuðum eftir að forráðarmenn liðsins sögðu við hann „annað hvort bætir liðið sig, eða þú missir vinnuna.“. Terence Brown, fyrrum stjórnar- formaður West Ham, hefur neitað ásökunum um að vera gráðugur eftir að fregnir þess efnis að honum hafi verið boðnar milljónir punda í laun og bónusa þegar samningaviðræð- ur stóðu yfir við íranska kaupsýslu- manninn Kia Joorabchian. Brown og Peter Aldridge, stjórnar- maður West Ham á þessum tíma, var boðið 9,3 milljónir punda fyrir að sitja áfram í stjórn félagsins ef Joorabchi- an hefði keypt félagið. Til þess kom þó ekki eins og flestum ætti að vera kunnugt um, því Eggert �agn�sson og Björgólfur Guðmundsson keyptu West Ham stuttu síðar. Brown segir hins vegar að hann hafi verið fljótur að hafna tilboði Joorabchians. „�ér finnst þetta ekki vera græðgi. Hafið í huga að þetta var ekki leynilegt tilboð, öll stjórnin og allir hluthafar vissu af þessu,“ sagði Brown. „Tilboðið kom inn á borð til mín en stjórninni og hluthöfum fannst eitthvað bogið við það. Ég fékk þetta tilboð en neitaði því strax. Þetta kom aldrei til greina af því að ég vildi ekki peningana. Ef ég hefði viljað tilboð- ið þá hefði ég lagt það fyrir hluthafa. Okkar skylda er að auka fjármagn til hluthafa og þetta var allt saman lög- legt,“ bætti Brown við. Aldridge neitaði einnig ásökun- um um að hafa gert nokkuð rangt og sagði að umræður hafi allar ver- ið á borðinu. „Snemma á samninga- ferlinu var stjórninni og hluthöf- um kunnugt um þessar viðræður milli talsmanna Joorabchian, Terry og mín.Já það voru miklir peningar í spilunum en hvort hægt sé að tala um græðgi er annarra að dæma. Við gerðum klárlega ekkert rangt í þessu máli,“ sagði Aldridge. Rannsókn stendur n� yfir um kaup West Ham á Argentínumönn- unum Javier �ascherano og Carlos Tevez. Ef í ljós kemur að um ólögleg viðskipti hafi verið að ræða gæti svo farið að stig verði tekin af West ham í kjölfarið. dagur@dv.is Fyrrum stjórnarformaður West Ham, terence Brown, var boðið 9,3 milljónir punda frá kia joorabchian fyrir að vera áfram stjórnarformaður félagsins. Brown neitar fregnum um græðgi stjórnarskiptin Terence Brown er hér ásamt Eggerti magnússyni skömmu eftir að stjórnarskiptin gengu í gegn. S töðva þurfti bikar�rslita- leik karla í handbolta á laugardag eftir að Patrek- ur Jóhannesson, leikmað- ur Stjörnunnar, og Brjánn Brjánsson, varnarmaður Fram lentu saman. Það opnuðust skurðir á höfði þeirra beggja og blóð lak á gólf Laugar- dalshallarinnar. Atvikið leit mjög illa �t en báðir leikmenn gátu þó sn�ið aftur til leiks, þökk sé Brynj- ólfi Jónssyni sem er læknir íslenska handboltalandsliðsins. „Þetta voru stór sár og heilmikið mál að deyfa og gera að þessu. Ég var n� ekki alveg viss um að þeir gætu sn�ið aftur á völlinn en það tókst. Þetta leit ekki vel �t. �eð þessum græjum sem ég hafði á staðnum var hægt að stöðva þessar blæðingar og sauma sárin saman. Ég vissi ekki að Brjánn hefði meitt sig svona mikið því ég sá bara að það blæddi mik- ið �r Patta. Brjánn fékk mjög stór- an skurð á hökuna og það þurfti að sauma um sjö spor í hana. Þetta var mjög dj�pt hjá báðum og þar að auki fékk Patti höfuðhögg og var vankaður,“ sagði Brynjólfur. „Einar Þorvarðarson var b�inn að hafa samband við mig og biðja mig að vera til taks á þessum leik. HSÍ hefur það sem reglu að hafa lækni á sem flestum leikjum og þar sem ég var í bænum og ekki í vinnu þá mætti ég með mína læknatösku. Ég geri það oft á Evrópuleikjum og fleiri leikjum. Reyndar var ég n� að vonast til að þurfa ekki að gera neitt og geta bara horft á leikinn,“ sagði Brynjólfur sem hefur starfað fyr- ir Handknattleikssambandið í um sautján ár. „Ég hef verið í þessu síðan 1990. Ég hef reyndar ekki farið allar ferð- ir þar sem maður kemst stundum ekki. Síðustu ár hef ég þó náð að fara í langflestar ferðir en það er ekki slæmt að geta fengið einhverja sér til aðstoðar,“ sagði Brynjólfur. En hvernig kom það til að hann fór að starfa fyrir HSÍ? „Ég var b�inn að vera lækn- ir íþróttaliða í Svíþjóð í átta ár. Ég starfaði hjá handbolta-, íshokkí- og fótboltaliðum. Svo æxlaðist þetta þannig að ég fór að vinna með Þor- bergi Aðalsteinssyni þarna �ti og var í nokkur ár læknir liðs sem hann var að stjórna. Svo fórum við heim til Íslands á sama tíma og hann tók við landsliðinu, þá lá beinast við að ég tæki við sem læknir liðsins. Það voru ákveðin umskipti einmitt í gangi þá og margir að hætta,“ sagði Brynjólfur. Hann segir að mikill munur hafi verið á því að starfa í Svíþjóð og að vinna hjá íþróttaliðum hér á landi. „Þetta voru mestmegnis hálf-at- vinnumenn sem ég vann með í Sví- þjóð. Þeir unnu ekkert eftir hádegi daginn sem þeir voru að fara að spila og oft voru löng ferðalög þar sem liðið var mætt daginn fyrir leik. Þar var læknirinn á föstum laun- um en það myndi aldrei ganga hér á Íslandi,“ sagði Brynjólfur en hann telur að mörg íþróttalið hér á landi gætu bætt sig varðandi sj�kraþjálf- un. „Þetta er alveg upp og ofan. Víða er vel staðið að þessu en annarstað- ar er þetta í hálfgerðum molum.“ Brynjólfur hefur í starfi sínu hl�ð að mörgum af bestu handbolta- mönnum landsins, en segir þó að víða sé pottur brotinn. „Þessir sem eru í Þýskalandi fá margir hverjir ekki alltaf þá meðhöndlun sem þeir vilja vegna tryggingamála. Þýsku félögin eru oft ekki hrifin af því að leikmenn gangist undir stærri að- gerðir á Íslandi og tryggingafélög- in taka oft ákvörðun um þetta. Þau hafa ákveðin sj�krah�s sem þau eru samningsbundin og þegar leik- menn meiðast fara þeir þangað,“ sagði Brynjólfur. Hann hefur átt margar skemmti- legar stundir með íslenska landslið- inu en mótin þar sem liðinu gengur best standa upp �r. „Þar get ég nefnt E� í Svíþjóð og svo H� í Þýska- landi n�na í jan�ar. Einnig Ólymp- íuleikarnir í Barcelona, það var ákaflega gaman þar,“ sagði Brynj- ólfur. Stutt er milli leikja á stórmót- um í handbolta og því mikið að gera hjá honum í þeim. „Í Sviss var mikið um slys en á síðasta móti var meira um veikindi. Það er oft mikið vesen í kringum veikindin en slysamálin eru samt verst.“ Brynjólfur segist alltaf hafa ver- ið íþróttaáhugamaður og segir mjög skemmtilegt að geta bland- að saman áhugamálum sínum og atvinnu. „�aður getur ekki sinnt öllu sem maður vill og leiðinlegt að hafa ekki meiri tíma í þetta. Sér- staklega hérna heima. Ég hef reynt að takmarka mig enda vinn ég líka á spítala og vinn mikið á vöktum. Það fer að verða erfiðara og erfið- ara að fá frí, maður getur ekki far- ið í burtu í þrjár vikur hvað eftir annað. Eins og n�na þá er íslenska landsliðið hátt skrifað og mörg mót sem þarf að fara á,“ sagði Brynjólf- ur Jónsson. elvargeir@dv.is áhugAMáLi Og ATvinnu BLAndAR sAMAn Læknirinn Brynjólfur jónsson hefur starfað fyrir HSÍ í um sautján ár. Á bikarúrslitaleik karla síðasta laugar- dag þurfti hann að hlúa að þeim pat- reki jóhannessyni og Brjáni Brjáns- syni eftir að þeir lentu í samstuði. „Ég var búinn að vera læknir íþróttaliða í Svíþjóð í átta ár. Ég starfaði hjá hand- bolta-, íshokkí- og fót- boltaliðum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.