Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Page 18
þriðjudagur 13. mars 200718 Sport DV Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann auðveldan sigur á Portúgölum í gær 5-1 á Algarve Cup. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði síðasta mark Íslands og er því orðin markahæst Íslenskra kvenna. Margrét markahæst frá upphafi Algarve Cup er sterkt mót þar sem saman koma bestu kvenna þjóðir heims og leiða saman hesta sína. Íslenska kvennalandsliðið tek- ur þátt í mótinu í fjarveru Wales og hafði það leikið þrjá leiki fyrir leikinn gegn Portúgal í gær. Það hafði tapað viðureing sinni gegn Ítölum 2-1, gert jafntefli við Íra 1-1 en nú kom kær- kominn sigur og hann var stór eða 5- 1 og er þetta fyrsti sigur liðsins undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar og Guðna Kjartanssonar. Hólmfríður Magnúsdóttir, sem snéri heim í KR í haust eftir stutta dvöl í Danmörku, skoraði þrennu í gær. Katrín Jónsdóttir skoraði eitt og Margrét Lára skoraði síðasta mark- ið og þar með komst hún upp fyr- ir Ásthildi Helgadóttur sem marka- hæsti leikmaður kvennalandsliðsins frá upphafi. Margrét hefur nú skorað 23 mörk í aðeins 29 leikjum sem er frábær árangur hjá þessari tvítugu stelpu. Margrét snéri aftur til Íslands eftir heldur misheppnaða dvöl hjá þýska stórliðinu Duisburg. Margrét kemur til með að spila með Valskon- um í sumar en hún bætti markamet- ið síðastliðið sumar í Landsbanka- deild kvenna. Þess má geta að Katrín Jónsdótt- ir, sem er fyrirliði íslenska liðsins á mótinu, lék sinn sextugasta lands- leik í gær. Íslenska liðið byrjaði af krafti og skoraði Katrín fyrsta mark leiksins með skalla eftir hornspyrnu en Hólmfríður Magnúsdóttir hafði skömmu áður komist nálægt því að brjóta ísinn þegar hún átti skot í stöngina. Eftir markið vöknuðu portúgölsku stelpurnar af værum blundi og náðu að komast meira inn í leikinn. Eftir rúman hálftíma leik jöfnuðu þær með fallegu langskoti. Staðan var jöfn 1-1 í hálfleik en íslenska liðið mætti ákveðið til leiks í síðari hálfleik og réði lögum og lof- um gegn heimastúlkum. Hólmfríður slapp ein innfyrir en markvörðurinn sá við henni í upphafi seinni hálf- leiks og tveimur mínútum seinna átti Edda Garðarsdóttir hörkuskot úr aukaspyrnu sem hafnaði í þversl- ánni. Á 58. mínútu skoraði Hólmfríð- ur sem að skoraði af yfirvegun og var hún svo aftur á ferðinni á 78. mín- útu þegar hún lék á vörn Portúgala og markmanninn einnig og renndi boltanum í netið. Hólmfríður fullkomnaði svo þrennu sína í leiknum með glæsi- legu skoti eftir frábæra sendingu frá Katrínu Ómarsdóttur. Undir blá- lokin komst Dóra María Lárusdóttir ein innfyrir en í stað þess að skjóta, renndi hún boltanum á Margréti Láru Viðarsdóttur sem að skoraði auðveldlega. Örfáum sekúndum síðar flautaði indverski dómarinn til leiksloka og öruggur sigur staðreynd. benni@dv.is Markahæst frá upphafi margrét Lára Viðarsdóttir er markahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi. Golden State stöðvaði í nótt sigur- göngu Dallas í NBA deildinni í körfu- bolta þegar liðin mættust á heima- velli Golden State. Þar með lauk sautján leikja sigurgöngu Dallas liðs- ins sem þegar hefur tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Lokatölur í leiknum urðu 117- 100. Staðan eftir þriðja leikhluta var 98-69 fyrir Golden State. Varamaður- inn Mickael Pietrus var stigahæstur í liði heimamanna með 20 stig og þeir Jason Richardson, Al Harrington, Stephen Jackson og Andris Biedrins skoruðu allir 16 stig hver fyrir Gold- en State. Jason Terry og Devin Harris voru stigahæstir í liði Dallas með 16 stig hvor. Don Nelson, þjálfari Golden State og fyrrum þjálfari Dallas, hefur þar með unnið báða leiki sína gegn Dall- as á þessari leiktíð. Dallas er fyrsta liðið í sögunni sem þrisvar sinn- um nær að vinna 12 leiki eða fleiri á einu tímabili. Dallas mætir Phoenix í næsta leik á miðvikudaginn. Barbosa með frábæran leik Phoenix Suns lagði Houston Rock- ets á heimavelli sínum í nótt, 103-82. Varamaðurinn Leandro Barbosa var stigahæstur í liði heimamanna með 32 stig, Boris Diaw skoraði 15 og Shaun Marion skoraði 14 stig og hirti 15 fráköst. Yao Ming náði ekki að fylgja eft- ir góðum leik sínum gegn Orlando þar sem hann skoraði 37 stig. Ming skoraði eingöngu 10 stig á þeim rúma hálftíma sem hann var inn á vellin- um. Tracy McGrady var stigahæstur í liði Houston með 19 stig. McGrady átti vart orð til að lýsa aðdáun sinni á Leandro Barbosa eft- ir leikinn. „Ég hef aldrei séð neinn eins fljótan og þennan strák. Hann er ótrúlegur. Hann er eins og Speedy Gonzalez á vellinum. Hann er að spila frábærlega þessa dagana,“ sagði McGrady um Barbosa. „Ég reyni bara að hafa gaman af þessu og gera mitt besta í hverjum leik, reyni að láta kerfin ganga upp. Ég hef lært mikið af Nash og þjálfararnir hafa mikla trú á mér. Ég held að það sé lykilinn að þessu hjá mér,“ sagði Barbosa eftir leikinn. Loksins sigrar New Jersey New Jersey Nets batt enda á fimm leikja taphrinu sína í nótt þegar liðið heimsótti Memphis Grizzlies, neðsta lið deildarinnar. Lokatölur urðu 113- 102. Vince Carter fór fyrir sínum mönn- um í New Jersey, skoraði 30 stig og hirti tíu fráköst. Hjá Memphis skor- aði Pau Gasol mest eða 19 stig og þeir Rudy Gay og Chucky Atkins 17 stig hvor. „Vonandi náum við að bjarga þess- ari útileikjahrinu. Hver sigur er mik- ilvægur, nú þegar 17 eða 18 leikir eru eftir,“ sagði Jason Kidd, leikmaður New Jersey, sem gaf tólf stoðsending- ar í leiknum. „Það er gott að vinna á nýjan leik. Mér fannst Vince leika ótrúlega vel og Mikki var góður líka,“ sagði Lawrence Frank, þjálfari New Jersey, en Mikki Moore skoraði 24 stig fyrir New Jer- sey. Charlotte lagði Orlando Charlotte Bobcats vann góðan heimasigur á Orlando Magic í nótt, 119-108, þar sem Derek Anderson var stigahæstur heimamanna með 24 stig, auk þess sem hann gaf 10 stoð- sendingar í leiknum. „Það var kominn tími til að ég gerði eitthvað fyrir liðið. Þetta var erfitt eft- ir allt sem ég hef gengið í gegnum. Ég reyni bara að vera jákvæður og ná að vinna 26 leiki, sem yrði betra en við gerðum á síðustu leiktíð,“ sagði Prim- oz Brezec, leikmaður Charlotte, sem missti af 21 leik á leiktíðinni vegna veikinda og bak meiðsla. dagur@dv.is NBANBA NBA-úrslit næturinnar Charlotte - Orlando 119-108 milwaukee - Toronto 93-108 memphis - New jersey 102-113 Phoenix - Houston 103-82 golden state - dallas 117-100 sTAÐAN U T Austurdeildin 1. detroit 39 22 2. Cleveland 38 25 3. Washington 34 28 4. Toronto 35 29 5. Chicago 37 28 6. miami 33 29 7. indiana 29 33 8. New York 29 34 9. New jersey 29 35 10. Orlando 29 36 11. Philadelphia 25 38 12. atlanta 25 39 13. milwaukee 23 41 14. Charlotte 23 41 15. Boston 18 44 U T Vesturdeildin 1. dallas 52 10 2. Phoenix 49 14 3. san antonio 45 18 4. utah 43 19 5. Houston 39 25 6. L.a. Lakers 33 31 7. denver 30 31 8. L.a. Clippers 29 33 9. sacramento 28 34 10. golden state 30 36 11. New Orleans 28 35 12. minnesota 27 35 13. Portland 26 36 14. seattle 25 38 15. memphis 16 49 GoldeN StAte StöðvAði dAllAS Dallas Mavericks tapaði í nótt fyrir Golden State Warriors í NBA deildinni í körfubolta. Dallas hafði unnið sautján leiki í röð fram að leiknum í nótt. 24 stig í hús Varamaðurinn derek anderson skoraði 24 stig í 119-108 sigri Charlotte á Orlando. Frábær leikur Leandro Barbosa átti frábæran leik þegar Phoenix lagði Houston af velli. Loksins sigur Vince Carter fór fyrir liði New jersey sem batt enda á fimm leikja taphrinu í nótt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.