Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Síða 20
Menning þriðjudagur 13. mars 200720 Menning DV Oh, Lucky Man Kvikmyndin Oh, Lucky Man verður sýnd klukkan átta í kvöld í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Mynd- in er sú þriðja og jafnframt síð- asta sem Hilmar Oddsson kvik- myndaleikstjóri velur á dagskrá Kvikmyndasafnsins. Myndin er frá 1973 og er háðsádeila á efn- ishyggju. Leikstjóri er Lindsey Anderson og aðalhlutverk eru í höndum Malcolm McDowell, Ralph Richardson og Helen Mirren. Tónlistin í myndinni er eftir Alan Price en hann var í hljómsveitinni The Animals, sem var mjög vinsæl á sínum tíma. Myndin er á ensku með sænskum texta. Skáldaspírukvöld Skáldaspírukvöld Eymundsson, verður haldið í kvöld kl. 20 í verslun Eymunds- son í Austurstræti. Þar les Sigurður Skúlason leikari upp úr bókum Richard Brautigan, í þýðingu Gyrðis Elíassonar og Harðar Kristjánssonar. Einnig verður þar fjallað um skáldið og rætt um áhrif þess á skáldskap og samtímann. Dagskrá fjórðu Blúshátíðarinnar í Reykjavík er fjölbreytt að vanda og fram kemur mikill fjöldi inn- lendra og erlendra blústónlistar- manna. Meðal þeirra er Ronnie Ba- ker Brooks, eitt skærasta ungstirnið í bandaríska blúsheiminum, sem kemur hingað með eigin hljómsveit. Þá má einnig nefna Chicago-dívuna Zora Young, en hún var ein af stjörn- um Blúshátíðarinnar í fyrra. Þess má geta að þau eru bæði tilnefnd til alþjóðlegu Blues Foundation verð- launanna í ár. Íslenskir blúsarar verða fjölmarg- ir en rík áhersla er einnig lögð á að kynna unga og upprennandi blús- menn á hátíðinni. Halldór Bragason, listrænn stjórnandi hátíðarinnar og einn stofnenda, hefur í bráðum 20 ár unnið markvisst að því að stuðla að vexti og viðgangi blúsmenningar- innar hérlendis, nú síðast með til- raunaverkefni um blús í framhalds- skólum ásamt KK. „Það er náttúrulega sprengja í blúsnum,“ segir Halldór. „Það er mikið af ungum böndum að spila og mikil gróska, sem við viljum koma á framfæri á hátíð- inni með því að bjóða þeim að spila.“ En hátíðin ein- skorðast ekki við Reykjavík því dagskrá hátíðarinnar í fyrra er orðin út- flutningsvara. „Við settum saman dagskrá með þremur dívum og Vinum Dóra, sem við erum að fara með á blúshátíðina í Niðar- ósi í apríl, förum svo með Zora Young til Danmerkur. Við erum að spila þarna sem aðalnúmer í rauninni,“ segir hann. Blúshátíð í Reykjavík verður haldin 3.-6. apríl næstkomandi: Mikil gróska í íslenskum blús Halldór Bragason starfar ötullega að vexti og viðgangi blús- menningar- innar á Íslandi og víðar. Í vetur hafa sérfræðingar Þjóð- minjasafnsins leitt gesti um safn- ið og kynnt fyrir þeim ýmsa gripi sem þar eru sýndir. Leiðsagnirnar hafa mælst vel fyrir og aðsókn verið mjög góð. Slíkar leiðsagnir fara fram annan hvern þriðjudag hvers mán- aðar og eru viðfangsefni þeirra afar fjölbreytt. Sem dæmi má nefna silf- ur og búningaskart, sjávarhætti, hí- býlahætti í torfbæjum, forvörslu og margt fleira. Á heimasíðu Þjóðminja- safns Íslands segir að þegar kemur fram yfir siðaskipti fjölgi varðveitt- um gripum og alþýðumenning og listsköpun þjóðarinnar verði sýni- legri. „Mikið er til af textílum og út- skornum munum. Þar á meðal eru kistlar, skápar og rúmfjalir og einnig má nefna skart og silfurgripi úr eigu heldra fólks. Þessir gripir hafa allir gengið manna á milli og varðveist hjá eigendum sínum þangað til þeir komust á söfn“. Í dag leiðir Hrefna Róbertsdótt- ir, sviðsstjóri rannsókna- og varð- veislusviðs, gesti í allan sannleika um „Vinnu og veruleika á 17. og 18. öld“. Hrefna fjallar um safngripi sem sýna ýmsar hliðar mannlífsins, tengjast bæði verkmenningu, versl- un, menningu, kirkjulífi og stjórn- sýslu og skoðar í leiðsögninni hvaða sýn þeir gefa á íslenskt samfélag þessara alda. Fjölbreytt sýning Hrefna segir grunn- sýningu Þjóðminja- safnsins vera það fjöl- breytta að hægt sé að nálgast hana frá ótal- mörgum mismunandi sjónarhornum. „Að þessu sinni tökum við fyrir þessar tvær aldir. Ég ætla m.a. að sýna fólki merkilegt Íslandskort frá 1723, sem sýnir góða heildarmynd af land- inu, hvar var byggð, hvar voru verslunar- staðir og slíkt. Svo ætla ég að sýna gripi tengda einokunarversluninni, útflutningsvörum Íslend- inga og upplýsingastefn- unni. Þarna er líka hand- verk, trúarlegir gripir og margt fleira“, segir Hrefna. Meðal þessara gripa eru ýmsir sem fundust við uppgröft á Stóru-Borg á Suður- landi, þar á meðal fiski- net, tré- og leðurgripir, en jarðvegs- skilyrði þar eru þannig að gripirnir komu býsna heilir upp. Aðspurð um hvort einhver þessara gripa sé í uppáhaldi hjá henni sjálfri seg- ist Hrefna alltaf vera hrifin af fyrr- greindu Íslands- korti. „Það er náttúrulega mjög gamalt. Það er líka svo myndrænt og sýnir þessi staðanöfn öll og á því eru teikningar sem eru skemmtilega tengdar þjóðlífinu,“segir hún. Hrefna er um þessar mundir að leggja lokahönd á doktorsritgerð sína sem fjallar meðal annars um Innréttingar Skúla Magnússonar, ullarvinnslu og hagræna hugsun á Íslandi á 18. öld. Leiðsögnin hefst kl. 12.10 og er öllum opin. Í Þjóðminjasafninu fer fram fjölbreytt kynningarstarf og í dag er boðið upp á sérfræðileiðsögn um safnið. Slík leiðsögn er í boði annan hvern þriðjudag og hefur mælst vel fyrir meðal safngesta. Eigi er það gott að maðurinn sé einsamall Már Jónsson, prófessor í sagn- fræði heldur fyrirlestur á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum, fimmtudaginn 15. mars kl. 12.15 í stofu 132 í Öskju. Fyrirlesturinn ber heitið „Eigi er það gott að maðurinn sé einsamall - konur í hjónabandi 1560-1720“. Í erindinu verða lögformlegar forsendur hjóna- bands skilgreindar með tilliti til kvenna og tekin dæmi sem sýna hvernig þær tókust á við yfirvöld og eiginmenn í því skyni að ráða nokkru um eigin örlög og líðan. Tónleikar í Salnum Hjörleifur Valsson fiðluleik- ari, Tatu Kantomaa, harmon- ikuleikari, Kristinn H. Árna- son, gítarleikari og Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó- leikari halda tónleika í Saln- um í kópavogi í kvöld kl. 20. Á efnisskránni er meðal annars „Næturgali keisarans“, svíta fyrir fiðlu, gítar og harmoniku eftir Václav Trojan, auk verka eftir Paganini og fleiri. Gammar á Domo Djassbræðingssveitin Gammar heldur tónleika á Domo í Ing- ólfsstræti fimmtudagskvöld- ið 15. mars. Sveitina skipa Stefán S. Stefánsson – altó sax, Björn Thoroddsen – gítar, Þórir Baldursson – hammond orgel, Bjarni Sveinbjörnsson – bassi og Scott McLemore - tromm- ur. Gammarnir leika tónlist af diskum sínum „Gammar 1“, „Gammar 2“ og „Af Niðarfjöll- um“, í bland við nýtt efni. Vinna og veruleiki á 17. og 18. öld Predikunarstóll frá átjándu öld Ýmsir trúarlegir gripir eru til sýnis. Merkur gripur Íslandskort frá 1723 er meðal þeirra gripa sem fjallað verður sérstaklega um. dv mynd ásgeir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.