Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Qupperneq 25
DV Sviðsljós þriðjudagur 13. mars 2007 25
Dettur
löppin af?
Reiði hefur vaknað vegna ný-
legra veðmála sem standa til boða
á síðunni www.bodog.com. Þar
er hægt að veðja hvort að Heather
Mills fyrrverandi eiginkona bítilsins
Paul McCartney missi gervifót sinn
í þættinum Dancing With The Stars.
Þátturinn hefur náð miklum vin-
sældum í Bandaríkjunum þar sem
stjörnur sína danshæfileika sína.
Annars er það að frétta af skilnaði
McCartney og Mills að þau hafa náð
sáttum og hlýtur Mills 29 milljónir
punda auk nokkurra eigna.
Ósátt við MTV
Breska söngkonan Lily allen sem sló í gegn
eftir að hafa verið uppgötvuð á vefnum
myspace.com er
brjáluð út í mTV-
sjónvarpsstöðina fyrir
að banna myndband
við lagið hennar
smile. mTV hefur sett
myndbandið í sýn-
ingar eftir miðnætti
því það inniheldur
F-orðið margfræga.
„Ef krakkar mega ekki
heyra F-orðið hvernig
stendur þá á því að
píur eins og Paris
Hilton og The Pussy-
cat dolls mega troða
brjóstunum á sér í
andlitin á fólki og
fækka fötum í myndböndum sínum,“ segir
allen sem finnst fáránlegt að myndbönd
Hilton og Pussycat dolls séu ekki bönnuð
fyrst hennar er það.
Með búlimíu
frá 16 ára aldri
Söngkonan Madonna hannar í fyrsta og eina skipti vor-
línu fyrir verslunina H&M. Madonna hannaði fatalínuna
ásamt Margaretu van den Bosch sem er yfirhönnuður
H&M. Línan er byggð á persónulegum smekk sönkonunnar
og er væntanleg í verslanir H&M 22.mars næstkomandi.
Fatalína
Madonnu
að lenda í H&M
Söngkonan Britney Spears sem er vistuð á meðferðarheim-ili í Malibu um þessar mundir hefur viðurkennt fyrir lækn-
um stofnunarinnar að hún hafi átt við
búlímíu að stríða frá 16 ára aldri. Sam-
kvæmt blaðinu American Magazine
og fleiri blöðum vestanhafs á Britney
að hafa sagt starfsfólki stofnunarinn-
ar allt af létta þegar á hana var gengið.
Spurningarnar vöknuðu sökum þess
að lyf sem söngkonan var á virkuðu
ekki til að byrja með vegna þess að
hún kastaði þeim upp eftir hverja mál-
tíð. Þá kemur það fram að Britney hafi
tekist að sigrast á veikindunum á með-
an hún var ólétt en hafi svo tekið upp
fyrri lifnaðarhætti eftir barnsburð-
ina til að losna við hina svokölluðu
barnafitu. Ekki ætlar af söngkonunni
að ganga því í vikunni birtust fréttir í
The New York Daily News að í umferð
séu nektarmyndir af sönkonunni sem
eiga að hafa verið teknar 12. febrúar
síðastliðinn. Þá eiga einnig að vera til
myndbandsupptökur af Spears þar
sem fram kemur meðal annars nekt
og eiturlyfjanotkun.
Komist þetta upp á yfirborðið gæti
það endanlega gert útum vonir Britn-
ey um að fá forræði yfir sonum sínum
tveimur.
Britney
Spears
Spice GirlS SaMan á ný
Söngkonan Mel C hefur loksins samþykkt að taka
þátt í endurkomu hljómsveitarinnar Spice Girls. Það
hefur oft verið sagt frá því að hljómsveitin muni koma
saman aftur, en allaf hefur það strandað á Mel C sem
hefur neitað að krydda líf sitt enn á ný. Nú hefur það
fengist staðfest að bandið ætli að koma saman aftur.
„Allar stelpurnar hafa samþykkt að þetta sé að gerast,“
segir Simon Fuller umboðsmaður sveitarinnar. Spice
Girls voru ein vinsælasta stelpnasveit sögunnar og
seldi um 53 milljón plötur um allan heim.
Sexý og seiðandi
madonna hannar vorfatalín-
una fyrir H&m þar sem ber
mikið á efnum eins og fínull,
bómull, leðri, silki og
cashmere
Stílhrein Fatalínan byggir
mikið á tímalausum litum
eins og svörtu, hvítu, gráu,
drapplituðu og khaki
Lítur
óttrúlega
vel út
madonna er
fædd 16.
ágúst 1958
Madonna
Hannar línuna ásamt margaretu van den
Bosch yfirhönnuði H&m.
Byggt á eigin
smekk Fatalína
madonnu byggir
á hennar eigin
smekk og
uppáhaldi úr
fataskápnum.