Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Síða 2
Sendinefnd á vegum Alþingis er í viku
heimsókn í Kaliforníuríki Banda-
ríkjanna. Eitt af meginmarkmiðum
nefndarinnar er að skapa pólitísk
tengsl á þessu stóra markaðssvæði
og koma á viðskiptatengslum í orku-
iðnaði og háskólastarfi. Nefndina
skipa þingmennirnir Hjálmar Árna-
son, Framsóknarflokki, Margrét Frí-
mannsdóttir, Samfylkingu, og Sig-
ríður Anna Þórðardóttir og Sólveig
Pétursdóttir, Sjálfstæðisflokki. Með
þeim í för eru Helgi Bernódusson,
skrifstofustjóri Alþingis, og Belinda
Theriault, forstöðumaður alþjóða-
mála. Síðastliðinn vetur kom hingað
til lands sendinefnd á vegum þings-
ins í Kaliforníu og er verið að end-
urgjalda þá heimsókn. Sendinefnd-
in íslenska byrjar heimsóknina í Los
Angeles og endar í San Francisco.
Að lokinni heimsókn er það hlut-
verk nefndarinnar að vinna formlegt
þingskjal til að leggja fyrir þingheim
til kynningar í haust. Enginn þing-
maður nefndarinnar er í framboði í
komandi alþingiskosningum og mun
því enginn þeirra sitja á þingi í haust.
Hægt að nýta tengslin
Hjálmar Árnason, þingmaður
Framsóknarflokksins og nefndarfull-
trúi, bendir á að fjöldi Íslendinga sé
farinn að hasla sér völl í viðskiptum í
Kaliforníu, einu af stærstu hagkerfum
Bandaríkjanna. Hann segir stífa dag-
skrá bíða nefndarinnar næstu vik-
una. „Við munum hitta fjölda stjórn-
málamanna og fólk úr atvinnulífinu,
vísindamenn og háskólafólk. Dag-
skráin er stíf frá morgni til kvölds. Á
þessu svæði eru mikil tækifæri og Ís-
lendingar eru að hasla sér völl í vax-
andi mæli,“ segir Hjálmar. „Við erum
í raun að endurgjalda heimsókn frá
því í haust og gagnkvæmur áhugi rík-
ir milli aðila um aukið samstarf, ekki
síst á sviði orkumála og háskólasviði.
Ætlast er síðan til að fulltrúar sendi-
nefndarinnar vinni opinbert plagg
til að kynna á þinginu í haust. Aðal-
atriðið er þó að skapa pólitísk tengsl
í Kaliforníu vegna þeirra möguleika
sem þar bjóðast okkur Íslendingum.
Síðan er hægt að nýta þessi tengsl
sem myndast.“
Átti að fresta
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, undrast fyrst og fremst
tímasetningu heimsóknarinnar. Út
af fyrir sig telur hann eðlilegra ef
henni hefði verið frestað fram yfir
kosningar. „Á þessum tímapunkti er
enginn þingmaður sem er í framboði
reiðubúinn í slíka ferð. Það kemur
mér því ekki á óvart að sendinefndin
sé skipuð þingmönnum sem hætta
núna og því er þetta meira álitamál
hvort tímasetningin sé nógu heppi-
leg,“ segir Steingrím- ur. „Vissu-
lega má velta því fyrir sér
hvort heppilegt sé að senda
þingmenn sem eru að
hætta. Við verð-
um samt að horfast í
augu við að þetta eru
fyrst og fremst kurteis-
issamskipti en það leys-
ir þingmennina samt ekki
undan skyldum sínum sem
fulltrúum þingsins með fullu
umboði. Það er
spurning hins veg-
ar hvernig gestgjöf-
unum líst á að allir
fulltrúarnir eigi
það sameig-
inlegt að
leita
ekki
end- urkjörs.
Mér finnst þetta ekk-
ert sérstaklega vænlegt
og eðlilegast hefði verið
að beina þessu verkefni
handan við kosningarn-
ar. Það hefði verið ein-
faldast.“
Dregur úr trausti
Baldur Þórhallsson,
prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands,
telur bæði mannavalið
og tímasetninguna
sérstaka þar sem
tilgangurinn sé að
mynda tengsl.
Hann telur vinnu-
brögðin beinlín-
is til þess fallin
að rýra traust Alþingis. „Ég skil það
mjög vel að þingmenn sem sækjast
eftir kjöri vilji nú ekki fara af landi
brott. Auðvitað vilja þeir frekar vera
heima og vinna að því. Ef tilgangur
ferðarinnar er að skapa tengsl, þá er
það mjög sérkennilegt að þessi tími
sé valinn til ferðarinnar og
eingöngu þingmenn sem
eru á útleið séu send-
ir,“ segir Baldur. „Það
eru akkúrat svona at-
riði sem rýra traust
almennings á störf-
um þingsins. Einmitt
svona vinnubrögð á
Alþingi ekki að við-
hafa því þá missir
þjóðin traust
sitt á þing-
heimi.
Ekki var
traust-
ið mjög
mikið
fyrir.“
miðvikudagur 18. apríl 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Verðlagseftirlit ASÍ gerði mistök í útreikningum á verðum hjá 10/11:
Skattalækkunin skilaði sér til viðskiptavina
„Fyrir okkur sem lifum á því að
neytendur treysta okkur er þetta al-
gjörlega það versta sem við getum
lent í,“ segir Guðjón Karl Reynis-
son, framkvæmdastjóri 10-11. Mis-
tök sem starfsmenn verðlagseft-
irlits ASÍ gerðu við útreikninga á
verðkönnun gerðu að verkum að
svo virtist vera sem virðisaukaskatt-
slækkunin 1. mars hefði ekki skilað
sér til viðskiptavina verslanakeðj-
unnar. Hið rétta er að verðið lækk-
aði í samræmi við lækkun virðis-
aukaskatts.
Sagt var frá könnuninni í DV í
gær, áður en ASÍ sendi frá sér leið-
réttinguna. Könnunin reyndist röng
og fréttin þar með líka. Guðjón segir
þetta hafa haft neikvæð áhrif strax í
gær. Hann hafi fengið tölvupósta frá
viðskiptavinum sem hafi furðað sig
á þessu og sagst aldrei myndu versla
aftur hjá fyrirtækinu.
Guðjón Karl er ósáttur við vinnu-
brögð Alþýðusambandsins. Hann
lét starfsmenn sambandsins vita af
mistökunum í fyrradag en þeir neit-
uðu að gefa út leiðréttingu sam-
dægurs heldur hugðust skoða mál-
in næsta dag. Þegar blaðamaður DV
ræddi við Henný Hinz, sem sér um
verðlagseftirlit, síðla dags í fyrradag
fullyrti hún að niðurstöður könnun-
arinnar stæðust. Þá höfðu forsvars-
menn 10/11 gert athugasemdir við
könnunina við starfsmenn ASÍ og
komið þeim á framfæri við fjöl-
miðla. Í gærmorgun yfirfóru starfs-
menn ASÍ svo könnunina og sendu
frá sér leiðréttingu.
„Þegar ég skoða könnunina hnýt
ég sérstaklega um flokkinn sykur,
sælgæti og súkkulaði,“ segir Guðjón
Karl. „Mínustala sem hljóðar upp á
8,9% lækkun verður að 8,9% hækk-
un. Í stað þess að við lækkum virð-
isaukann úr 24,5 prósentum í 7 pró-
sent sem er fjórtán prósenta lækkun,
fá þau út að við höfum hækkað all-
að vörur um 9 prósent. Engum ætti
að detta í hug að þetta sé rétt,“ segir
Guðjón Karl afar ósáttur.
Guðjón fékk KPMG í gærmorgun
til að kanna hvernig skattalækkunin
1. mars hefði skilað sér. Niðurstaða
fyrirtækisins var að söluverð vara
hefði í öllum tilfellum lækkað í sam-
ræmi við skattalækkanir.
Bakari hengdur
fyrir smið „við erum
að sjálfsögðu hlynnt
því að það sé fylgst
með okkur eins og
öðrum í landinu.“
Sendinefnd á vegum Alþingis er í Kaliforníu til að hitta bandaríska stjórnmálamenn
og einstaklinga úr bandarísku atvinnulífi. Eitt af meginmarkmiðum fulltrúanna er að
koma á pólitískum tengslum. Enginn þingmaður sendinefndarinnar óskar hins vegar
eftir endurkjöri í komandi alþingiskosningum.
STARFSLOK ÞINGMANNA
VERÐA Í KALIFORNÍU
TrausTi HafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Varðveita torf
Forverðir leggja nú lokahönd
á forvörslu skálarústarinnar í Að-
alstræti 16, á Landnámssýning-
unni 871+/-2. Þetta er gert til að
koma í veg fyrir að rústin molni
og eyðileggist.
Forverðirnir sem nú eru að
störfum eru að forverja torf. Er
það í fyrsta skipti sem slíkt er
gert. Vökva sem harðnar og fyllir
upp í öll holrými í torfinu er dælt
yfir rústina til að tryggja að hún
varðveitist.
Guðmundur
skrifar í DV
Guðmundur Magnússon,
sagnfræðingur og blaðamað-
ur, mun framvegis
skrifa kjallaragrein-
ar í DV. Kjallarar
Guðmundar verða
vikulega í DV. Það
er mikið fagnaðar-
efni að fá Guðmund
til liðs við DV, en á
sínum tíma var hann einn af
fréttastjórum DV. Skrif Guð-
mundar hafa birst í hinum
ýmsu miðlum, bæði blöðum
og á netinu að undanförnu og
fengið ágætar viðtökur.
Auk Guðmundar eru fast-
ir kjallarahöfundar DV þeir
Guðbergur Bergsson, Erpur
Eyvindarson, Valgeir Guð-
jónsson og Jóhann Hauksson.
Fjölgað verður í hópi fastra
höfunda á komandi vikum.
65 milljónir
í styrk í Írak
Íslensk stjórnvöld hyggjast
styrkja hjálparstarf í Írak með 65
milljóna króna framlagi. Fram-
lagið á að nota til að aðstoða
íraska flóttamenn. Talið er að
meira en fjórar milljónir Íraka
hafa flúið heimili sín á undan-
förnum árum.
Tilkynnt var um ákvörðun
Valgerðar Sverrisdóttur utanrík-
isráðherra á alþjóðlegri ráð-
stefnu um flóttamenn í Írak og
nærliggjandi löndum. Ráð-
stefnan er haldin að frumkvæði
Flóttamannastofnunar Samein-
uðu þjóðanna.
Margrét frí-
mannsdóttir Er að
hætta en er í
kaliforníu.
sigríður anna
Þórðardóttir Er að
hætta en er í
kaliforníu.
Hjálmar Árnason
Er að hætta en er í
kaliforníu.
sólveig Péturs-
dóttir Er að hætta
en er í kaliforníu.
Kristinn Björns-
son Eiginmaður
Sólveigar fékk að
fara með.
steingrímur J.
sigfússon
Óheppileg
tímasetning.
Halda áfram
athugunum
Hagkvæmnisathugunum
vegna hugsanlegs álvers á
Bakka við Húsavík verð-
ur haldið áfram samkvæmt
fréttatilkynningu frá Alcoa
og Norðurþingi. Athugunum
verður því haldið áfram og
verðu vinna að þriðja áfanga
í samstarfi við Landsvirkjun
og Landsnet brátt hafin.
Framtíðarsýn Norður-
þings og Alcoa er að byggja
álver sem nýtir endurnýtan-
lega orku frá jarðvarma og
með því komi örugg störf til
lengri tíma á Norðurlandi.
Er það hvatinn að framhald-
inu.