Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Qupperneq 30
miðvikudagur 18. apríl 200730 Síðast en ekki síst DV
veðrið ritstjorn@dv.is
fimmtudagurmiðvikudagur
Sandkorn
Frábær plata sem eftir heilmikla
hlustun gefur plötunni Funeral
ekkert eftir. Arcade Fire er frábær
indí hljómsveit, sem hefur hlotið
einróma lof tónlistarspekúlanta
hvarvetna. Hljómurinn á Neon
Bible er dökkur og þungur á köfl-
um, en eitursvalur í leiðinni. Lagið
My Body is a Cage er frábært lag til
þess að ljúka með. Og þá er bara að
hlusta á diskinn aftur.
Nagladekkin eru orðin óþörf á
flestum stöðum á landinu, vorið
er komið. Þó svo lögreglan byrji
ekki að sekta ökumenn strax er
kjörið að skipta yfir á sumardekkin
og aka svo brosandi um göturnar,
vitandi að þú stuðlir að minni svif-
ryksmengun. Íbúar á höfuðborg-
arsvæðinu sem fara lítið út fyrir
bæjarmörkin á veturna hafa held-
ur enga sérstaka ástæðu til þess
að setja nagladekkin aftur undir í
haust.
X-ið 977 keyrði sprenghlægilega
auglýsingaherferð í tengslum við
kosninguna um stækkun álversins í
Straumsvík. Nú hafa þeir kumpánar
á X-inu boðið skoðanir sínar til sölu
fyrir hálfa milljón króna, sem síðan
mun renna til góðgerðarmála. Ef
einhver stjórnmálaflokkur skyldi
kaupa skoðanir X-ins, má búast við
kostulegum auglýsingum frá Mána
og félögum. Miðað við hvað kosn-
ingabarátta getur orðið brengluð er
framtak X-ins ekki svo fjarstæðu-
kennt.
Þessi heimildarmynd um ærsla-
belginn og rappskáldið Tupac er
beinskeitt og fræðandi. Myndin er
sú eina sem fjölskylda rapparans
skrifaði undir enda koma nokk-
urn veginn allir vinir og vanda-
menn drengsins fram og segja frá
því hvernig var að alast upp og
djamma með hetjunni. Sjálfur er
Tupac sögumaðurinn og til að gefa
væntanlegum áhorfendur innsýn í
stemningu myndarinnar, þá hefst
hún með orðum rapparans: „I got
shot,“ og hún endar með orðunum:
„I got shot.“
Við mælum með...
...að taka nagladekkin
undan
...neon BiBle með
arcade fire
...að stjórnmálaflokk-
ar kaupi skoðanir X-ins
syngjandi glaðir kr-ingar
KR-ingar sigruðu Njarðvíkinga
með frækilegum hætti í æsi-
spennandi
úrslitaleik á
mánudaginn
var. Vestur-
bæingar fjöl-
menntu í mið-
bæ Reykjavíkur
til þess að fagna
sigrinum og
enduðu þeir
flestir á Ólíver, sem var fullur út
að dyrum til lokunar. Segja gestir
og gangandi að stanslaust hefði
verið sungið í teitinni frá upphafi
til enda. Heyrðist meðal annars
textinn, „Einar er legend“ þegar
hinn gamalgróni Einar Bollason
lét sjá sig. Þá höfðu slökkviliðs-
menn Reykjavíkurborgar miklar
áhyggjur þegar þeir sáu mann-
mergðina í KR-heimilinu á leikn-
um, en þar er bara einn útgangur.
raunir upprennandi
blaðamanna
Um 100 manns mættu í blaða-
og fréttamannapróf hjá 365 um
síðustu helgi. Það er ný stefna hjá
fyrirtækinu að halda slík próf. Var
prófað klukkan 10:00 á laugar-
dagsmorgni mörgum til mikill-
ar armæðu. Síðar kom í ljós að
tölvukerfið hafði hrunið og allar
úrlausnir prófsins ónýtar. Prófið
misheppnaðist því og þessi hóp-
ur þarf að mæta aftur með stír-
urnar í augunum. Það er aldrei
auðvelt í blaðamannabransan-
um.
ástarsaga á myspace
Það er með ólíkindum hvað er
hægt að finna á netinu. Þeir sem
stunda heima-
síðuna Youtube
hafa eflaust rek-
ist þar á merki-
legt myndband.
Myndbandið
heitir Myspace
Love, Heidi‘s
story og rekur
það ástarsam-
band milli manns og konu, í
máli og myndum, frá upphafi til
enda. Parið kynntist á netinu og
blómstraði samband þeirra þar.
En eftir millilandaheimsókn og
annað slokknaði ástarloginn. Er
það maðurinn sjálfur sem gerir
myndbandið og er honum greini-
lega stúlkan enn hugleikin. Það
kom því mörgum netverjanum á
óvart þegar stelpan reyndist vera
hin íslenska Heiðveig Þráins-
dóttir.
Bakhjarl frjálslynda
flokksins?
Stjórnmálaflokkarnir berjast
um hylli fjölmiðlamanna þessa
dagana, enda
styttist ört í
kosningar. Einn
er sá flokkur
sem virðist eiga
tryggan bak-
hjarl og telur
hann nægja
sér í barátt-
unni. Útvarp
Saga þykir draga taum Frjáls-
lynda flokksins svo ötullega að
þeir hlustendur, sem hugnast
ekki sá flokkur eru farnir að verða
sífellt meira áberandi í símatíma
stöðvarinnar. Skammtímaminn-
ið er ekki meira en svo að glöggir
hlustendur muna eftir því þegar
Jón Magnússon leysti útvarps-
stjórann af þegar hún fór í frí.
...tupacs resurrection
Svarthvítar auglýsingar hafa vakið athygli í miðborg Reykjavík-
ur. Þar er fólk hvatt til að fagna hversdagsleikanum í lífi sínu. Eft-
ir rúma viku verður blásið til skrúðgöngu í anda Gay Pride undir
nafninu Straight Pride Parade. Gangan verður ekki eins litrík og
Gay Pride gangan þenda er minnt á hinn gráa hversdagsleika.
Hugmyndin að Straight Pride
Parade göngunni kemur frá Anne
Marte Overaa, 26 ára gamalli norskri
stúlku sem er fyrsta árs nemi við
myndlistardeild Listaháskóla Íslands
- og henni er full alvara með uppá-
tækið.
„Einhverjir hafa haldið að um grín
sé að ræða eða jafnvel mótmæli gegn
samkynhneigð en það er alls ekki
raunin. Ég er alls ekki á móti sam-
kynhneigðum,“ segir Anne Marte en
játar að hugmyndin af Straight Pride
Parade sé þó að nokkru leyti stæl-
ing á Gay Pride. Gengið verður niður
Laugaveg með tónlist og bílalest sem
inniheldur afar venjulega fjölskyldu
-bíla á borð við Ford Mondeo, en
gangan verður þó á engan hátt eins
litrík og Gay Pride. „Ég vona að sem
flestir mæti í gönguna og hvet fólk
til þess að mæta í hversdagslegum
fatnaði. Vonandi fáum við líka grá-
myglulegt veður,“ segir Anne Marte
létt í bragði. Hún býst þó ekki við því
að gangan verði eins stór í sniðum og
Gay Pride gangan, að minnsta kosti
ekki í ár.
mikilvægt að njóta
hversdagsleikans
Hún segir að tilgangur göngunn-
ar sé að minna fólk á húmorískan
hátt á mikilvægi þess að njóta hvers-
dagsleikans sem sé ómumdeilanlega
stór hluti af lífi flestra. Gangan sé því
hrein og klár hylling á hversdagsleik-
anum. Til að undirstrika þetta enn
frekar hefur Anne Marte látið búa til
gráa fána sem hún segir að sýni mis-
munandi gráa tóna sem tákn um það
hversu fjölbreytilegur hversdagsleik-
inn geti verið. Hún segist hafa feng-
ið mikla hjálp frá samnemendum
sínum í Listaháskólanum við undir-
búning göngunnar og munu þeir ef
að líkum lætur fjölmenna í uppák-
omuna.
„Það sem mér finnst sérlega
skemmtilegt við þetta uppátæki er
það að auglýsingarnar hafa vakið
mikla athygli og fæstir hafa gengið
fram hjá þeim án þess að lesa þær
og velta boðskapnum fyrir sér,“ seg-
ir Anne Marte og bendir á að aug-
lýsingarnar séu prentaðar á ódýr-
an pappír og séu hafðar svarthvítar
til að undirstrika að það sé hægt að
skapa eitthvað áhugavert án þess að
það þurfi að kosta svo mikið.
Sjálf hefur Anne Marte búið á Ís-
landi síðan í ágúst og þegar talið
berst að lífinu í Reykjavík þá segir
hún að menningar- og skemmtana-
lífið sé afar líflegt og alls ekki grá-
myglulegt. Gangan mun svo vonandi
hressa enn meira upp á lífið í Reykja-
vík. Þess má að lokum geta að gang-
an hefst við Hlemm kl. 14 þarnæsta
laugardag, þann 28. apríl sem er sá
dagur sem flestir Íslendingar eiga af-
mæli á. Gengið verður við róman-
tískan teknótakt og lúðrasveitaþyt.
Hylling Hins gráa
Hversdagsleika
fögnum hversdagsleikanum anne
marte hvetjur fólk til þess að mæta í
gönguna, Straight pride parade,
laugardaginn 28. apríl en það er sá
dagur sem flestir íslendingar eru fæddir
á. gráir fánar og hversdagslegur
fatnaður mun setja svip sinn á gönguna.
vekja athygli Hinar grámyglulegu auglýsingar hafa vakið athygli.
7
47
-1
2 4
2 12
4
45
7
44
2
4
5
7
3 7
7
43
12
3
11
7
7
3 4
4
7
-2
2
7
4
3
1
2