Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2007, Blaðsíða 8
miðvikudagur 18. apríl 20078 Fréttir DV
SORG Í
VIRGINÍU
Mannskæðasta fjöldamorð í
skóla í Bandaríkjunum átti sér
stað á mánudag þegar suður-
kóreskur enskunemi við Virgin-
ia Tech háskólann myrti 32 og
skaut loks sjálfan sig. Fjölda-
morð í bandarískum skólum eru
síður en svo einsdæmi og
skemmst er að minnast morða á
fimm ungum Amish-stúlkum í
október síðastliðnum.
Þúsundir komu saman á minning-
arathöfn um þá sem létu lífið í skot-
árásinni á Virginia Tech háskólann
í Bandaríkjunum í fyrradag. Georg-
eBush bandaríkjaforseti hélt minn-
ingarræðu þar sem hann sagði dag-
inn sorgardag fyrir alla þjóðina.
Alls létu 33 lífið í skotárásinni,
og fjöldi særðist, sem er hin mann-
skæðasta í sögu Bandaríkjanna.
Enn liggja fjórtán særðir á sjúkra-
húsi. Lögreglan gerði það opin-
bert í gær að morðinginn hafi ver-
ið 23 ára enskunemi í háskólanum,
Cho Seung-hui, frá Suður-Kóreu
sem búið hafði í Bandaríkjunum
frá unga aldri. Forseti Suður-Kóreu
vottaði ættingjum fórnarlambanna
samúð sína og allra Bandaríkja-
manna að því er fram kemur á
fréttavef BBC.
Morðingjanum er lýst sem ein-
fara en Chicago Tribune hefur eftir
heimildarmanni að Cho hafi und-
arfarið haft uppi tilburði í átt til of-
beldis. Hann hafi kveikt í heimavist-
arherbergi og gerst sekur um að elta
nokkrar konur í háskólanum. Sjálfur
bjó hann á heimavist á háskólasvæð-
inu.
Lögreglan skýrði frá því í gær að
miði, sem talið er að Cho hafi skrifað,
hafi fundist í herbergi hans þar sem
hann hafði ljót orð um „ríka krakka“,
„spillingu“og „svikula loddara“ inn-
an háskólans.
Harmleikurinn átti sér þannig
stað að klukkan korter gengin í átta
á mánudagsmorgun réðst Cho inn í
herbergi fyrrverandi kærustu sinnar
í einni af heimavist skólans og myrti
hana ásamt karlmanni. Lögreglan er
kölluð til, hefur leit að morðingjun-
um og innsiglar bygginguna. Rúmri
klukkustund síðar komskólanefnd
saman til að ræða hvernig eigi að láta
nemendur skólans vita af morðun-
um. Á meðan gekk morðinginn laus
á háskólalóðinni.
Tveimur og hálfri klukkustund
eftir fyrstu tvö morðin fékk lögregl-
an tilkynningu um skotárás í annarri
skólabyggingu. Þegar lögreglan kom
á staðinn var búið að loka hurðinni
innanfrá með keðjum. Þegar lögregl-
unni tókst að brjóta sér leið inni í
skólann og elt uppi skothljóðin á aðra
hæð stöðvaðist skothríðin. Morðing-
inn fannst meðal fórnarlambanna og
hafði skotið sjálfan sig.
Skaut ömmu og afa fyrst
Þrettán ára nemandi myrti fimm nem-
endur, kennara og öryggisvörð í skóla sín-
um í Red Lake í Minnesota í Bandaríkjunum,
sem er á verndarsvæði indjána. Áður en hann
réðst inn í skólann sinn myrti hann ömmu
sína og afa og stal lögreglubyssu afa síns og
skotheldu vesti, sem hann klæddi sig í. Auk
þess særði hann sjö í skotárásinni. Að lokinni
árásinni skaut hann sjálfan sig.
Vitni lýsti því að skotmaðurinn hafi sést
veifandi og hlæjandi í aðdraganda árásarinn-
ar. Hann hafi spurt eitt fórnarlambið hvort
hann tryði á Guð áður en hann skaut það.
Fram kom eftir árásina að nemandinn
hefði verið vísað úr skóla vegna agabrots og
fengið kennara heim til sín. Ekki var skýrt frá
því hvað hann hefði brotið af sér. Hann var
sagður hafa átt fáa vini og oftast hafa klæðst
svörtu.
Skutu skólafélaga sína
Tveir frændur, 11 og 13 ára, myrtu fjórar
stúlkur og kennara í barnaskóla í Arkansas
í Bandaríkjunum í mars 1998. Þeir ruddust
inn í skólann vopnaðir skambyssum og riffl-
um, klæddir hermannafötum, settu eldvarn-
arkerfið í gang og hófu skothríð á skólafélaga
sína. Alls létust fjórar stúlkur á sama aldri og
skotmennirnir og einn kennari. Kennarinn
lést við að reyna að skýla nemendum sínum.
Auk þeirra særðust 11.
Skólafélagi hinna látnu skýrði frá því að
kærasta annars skotmannanna hefði nýver-
ið sagt honum upp. Hún var meðal þeirra
sem særðust. Annar drengjanna á að hafa
sagt við vini sína skömmu fyrir árásina að
„hann ætti eftir að drepa svo mikið“, eftir að
kærastan hætti með honum, og við skóla-
félaga að „allir þeir sem hættu með honum
yrðu drepnir“.
Í Arkansas mega börn eiga riffla og hagla-
byssur en ekki skammbyssur. Eldri drengur-
inn var vanur skotveiðimaður.
Skólabörn syrgja Nemandi myrti sjö í
skólanum sínum eftir að hafa myrt ömmu sína og
afa fyrst.
Frá minningarathöfn alls létust fimm í
skotárás tveggja frænda í barnaskóla í Jonesboro
í arkansas í Bandaríkjunum í mars 1998.
Sigríður dögg auðunSdóttir
aðstoðarritstjóri skrifar: sigridur@dv.is