Læknablaðið - 15.01.1983, Page 32
22
69, 22-32, 1983 LÆKNABLAÐID
AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS
HALDINN í STYKKISHÓLMI
25. og 26. JÚNÍ1982
FUNDARGERÐ
Fundarsetning
Formaöur Læknafélags Vesturlands, Sigur-
björn Sveinsson, bauð fundarmenn velkomna.
Formaöur Læknafélags íslands, Þorvaldur
Veigar Guðmundsson, setti fundinn og bauð
fulltrúa og gesti velkomna.
Gestir fundarins voru: Páll Sigurðsson, ráðu-
neytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
uneytinu, Arinbjörn Kolbeinsson, formaður
Sérfræðingafélags ísl. lækna, Guðjón Magnús-
son, aðstoðarlandlæknir og Þóroddur Jónas-
son, læknir á Akureyri.
Eftirtaldir fulltrúar voru mættir til fundar-
ins:
Frá Læknafélagi Reykjavíkur: Kristján Bald-
vinsson, Stefán B. Matthíasson, Eiríkur Þor-
geirsson, Matthías Kjeld, Flaukur Þórðarson,
Tryggvi Ásmundsson, Örn Smári Arnaldsson,
Lúðvík Ólafsson, Leifur N. Dungal, Atli Árna-
son, Sigurður Ö. Hektorsson og Atli Dag-
bjartsson. Frá Læknafélagi Vesturlands: Sigur-
björn Sveinsson og Kristófer Þorleifsson. Frá
Læknafélagi Vestfjarda: Páll Þorsteinsson. Frá
Læknafélagi Nord-Vesturlands: Matthías
Halldórsson. Frá Læknafélagi Akureyrar:
Brynjólfur Ingvarsson, Halldór Halldórsson
og Loftur Magnússon. Frá Læknafélagi Nord-
Austurlands: Guðmunður Óskarsson. Frá
LæknafélagiAusturlands:Pengill Oddsson. Frá
Læknafélagi Sudurlands: Brynleifur H. Stein-
grímsson. Frá Félagi ísl. lækna í Svípjód: Torfi
Magnússon. Frá Félagi ísl. lækna I Bretlandi:
Katrín Fjeldsted. Frá stjórn Læknafélags ís-
lands: Þorvaldur Veigar Guðmundsson, Sig-
urður B. Þorsteinsson, Jón Bjarni Þorsteinsson,
Viðar Hjartarson, Ólafur Örn Arnarson, svo
og Páll Þórðarson, framkvæmdastjóri læknafé-
laganna. Einnig sat fundinn Bjarni Agnarsson
sem áheyrnarfulltrúi Félags ungra lækna.
Formaður skipaði fundarstjóra, Sigurbjörn
Sveinsson, og fundarritara, Stefán B. Matthías-
son.
Næst minntist formaður félaga, sem látist
höfðu frá síðasta aðalfundi, þeirra Ragnheiðar,
Skúladóttur, Guðmundar Jóhannessonar,
Bergsveins Ólafssonar, Kristjáns K. Víkings-
sonar og Halldórs Arinbjarnar.
Formaður flutti skýrslu stjórnar, en hún
hafði áður verið send fulltrúum. Formaður gat
pess, að í skýrsluna vantaði skýrslu starfsmats-
nefndar, sem unnið hefði mikið og gott starf.
Hann benti á, að undir lið 6 í skýrslunni, undir
heitinu »ýmis mál«, hafi bréf til Félags yfir-
lækna og Sérfræðingafélags ísl. lækna, senni-
lega borizt seint eða ekki vegna mistaka.
Töluverðar umræður urðu um skýrslu stjórn-
ar. Brynleifur H. Steingrímsson tók fyrstur til
máls og ræddi afskipti stjórnar af deilu lækna
á Selfossi. Hann taldi skylt að skýra málavöxtu
frekar, og gerði pá athugasemd, að stjórn L.í.
hefði tekið jákvæða afstöðu til pess, að
yfirlæknir Sjúkrahúss Selfoss flyttist yfir á
Sjúkrahús Suðarlands, pó að lög mæltu gegn
pví, að hans áliti. Brynleifur spurði síðan, hvort
stjórn L.í. teldi sig ábyrga gagnvart pví, að pað
samkomulag, sem náðist, verði haldið.
Formaður svaraði Brynleifi pví, að stjórnin
hefði leitað eftir samkomulagi milli deiluaðila,
og hefði samkomulag náðst. Hann benti á, að
stjórn L.í. hefði komið fram í pessu máli sem
sáttasemjari með þeim skyldum, sem pví
fylgdi.
Örn Smári Arnaldsson pakkaði stjórninni
skýrsluna. Hann hvatti til pess, að stjórnin
héldi vakandi ályktun frá síðasta aðalfundi um,
að lögum um heilbrigðispjónustu yrði breytt
þannig, að læknaráðum við sjúkrahús og
heilsugæzlustöðvar yrði tryggður fulltrúi í
stjórn viðkomandi stofnunar, en núverandi
heilbrigðisráðherra hafði neitað að flytja slíka
lagabreytingartillögu á Alpingi.
Halldór Halldórsson ræddi um fjármögnun
orlofsíbúða og gerði fyrirspurn um, hvernig
pví máli væri háttað. Páll Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri, skýrði frá fjármögnun orlofs-
húsa.