Læknablaðið - 15.01.1983, Page 43
LÆKNABLADID
29
að það myndi erfiður róður fyrir Læknafélag
íslands að koma á samræmdum auglýsingum
um stöður á norrænum vinnumarkaði lækna.
Tillagan með breytingartillögu Eiríks Þorgeirs-
sonar var nú borin undir atkvæði. Hún er svo-
hljóðandi:
»Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn í
Stykkishólmi 25. og 26. júní 1982, beinir
peim tilmælum til stjórnar Læknafélags
íslands, að hún hlutist til um við viðkomandi
yfirvöld, að allar auglýsingar um lækna-
stöður, sem veita á til eins árs eða lengri
tíma, verði auglýstar með minnst tveggja
mánaða fyrirvara. Jafnframt verði gerðar
ráðstafanir til að tilkynningum um lausar
læknistöður verði dreift til íslenzkra lækna
erlendis nægilega fljótt til að þeir hafi
möguleika á að sækja um stöður þessar.
Jafnframt beinir fundurinn þeim tilmælum
til stjórnar Læknafélags íslands, að hún beiti
sér fyrir því, að samræmdar reglur náist um
stöðuauglýsingar á norrænum vinnumark-
aði lækna«.
Tillaga þessi var samþykkt mcd 9 atkvædum
gegn 7.
Ályktunartillaga frá Læknafélagi Reykjavíkur
um athugun á greidslum íslenzkra lækna í
lífeyrissjóði erlendis. Starfshópur D fjallaði
um tillöguna. Halldór Halldórsson mælti fyrir
áliti starfshópsins, sem bætti einni setningu við
tillöguna, og lagði hana síðan fram svohljóð-
andi:
»Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn í
Stykkishólmi 25. og 26. júní 1982, felur
stjórn og framkvæmdastjóra Læknafélags
íslands að kanna, hvað verði um greiðslur
íslenzkra lækna í lífeyrissjóði erlendis, og pá
einkanlega í Svípjóð. Niðurstöður peirrar
könnunar verði kynntar félagsmönnum
Læknafélags íslands«.
Pessi tillaga var samþykkt samhljóða.
Tillaga 6
Ályktunartillaga frá Læknafélagi Reykjavíkur
um ritun fjarvistarvottorða skólanemenda
vegna skammtímaveikinda. Starfshópur D
fjallaði um tillöguna. Halldór Halldórsson
mælti fyrir áliti starfshópsins. Starfshópurinn
lagði tillöguna fram óbreytta, en til gamans
hafði starfshópurinn dundað sér við að semja
bréf til skólastjóra, þar sem ákvörðun um að
hætta að skrifa fjarvistarvottorð var kynnt
fyrir forráðamönnum skólanna. Nokkrar um-
ræður urðu um vottorðaskriftir, og komu fram
ýmis sjónarmið varðandi vottorðaskriftir al-
mennt. Allir virtust sammála um, að ekki væri
eðlilegt að læknar yrðu áfram skyldaðir til
þess að skrifa vottorð fyrir skólanemendur
vegna skammtímaveikinda. Tillaga þessi var
því borin upp óbreytt, og hljóðar hún svo:
»Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn í
Stykkishólmi 25. og 26. júní 1982, ályktar, að
ítreka það við stjórn Læknafélags íslands,
að hún vinni að því að losa lækna undan
þeirri kvöð, að skrifa fjarvistarvottorð fyrir
skólanemendur vegna skammtímaveikinda,
þriggja daga eða skemur«.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Ályktunartillaga frá Læknafélagi Reykjavíkur
um athuganir á rekstrarfyrirkomulagi heilsu-
gæzlustöðva á Reykja víkursvæðinu. Starfshóp-
ur E fjallaði um tillöguna. Haukur Þórðarson
mælti fyrir tillögu starfshópsins. Starfshóp-
urinn hafði gert allítarlegar breytingar á þess-
ari tillögu og mælti með að reynt yrði að
greina á milli læknastöðva, þar sem nokkrir
læknar tækju sig saman við rekstur heilsu-
gæzlu og hins vegar heilsugæzlustöðva, sem al-
farið væru reknar af hinu opinbera. Ennfremur
varaði starfshópurinn við því, að minnast á
einkarekstur í þessu sambandi, þar eð slíkt
orðalag gæti haft neikvæð áhrif á fjárveitinga-
valdið. Eftir umfjöllun starfshóps E hljóðaði
ályktunartillagan svo:
»AðaIfundur Læknafélags íslands, haldinn í
Stykkishólmi 25. og 26. júní 1982, felur
stjórn Læknafélags íslands að athuga mögu-
leika þess, að læknar reki á eigin vegum
læknastöðvar, sem veiti sömu/svipaða þjón-
ustu og heilsugæzlustöðvar. Verði fengnir
rekstrarráðgjafar, er kanni, hvaða skilyrði
þurfi að vera fyrir hendi, til þess að læknar
geti sjálfir rekið slíka stöð á þéttbýlissvæð-
um. Niðurstaða verði tilbúin fyrir 1. nóv.
1982«.
í umræðu um þetta mál kom það helzt fram,
að þessi hugmynd um einkarekstur heilsu-
gæzlu, er alls ekki ný af nálinni, heldur hefur
hún verið rædd á vegum læknafélagsins í
allmörg undanfarin ár. Áður hefur komið fram
á fundi þessum, að fjárhagsgrundvöllur fyrir