Læknablaðið - 15.01.1983, Page 46
32
LÆKNABLAÐID
færði fram þakkir til stjórnar Læknafélags
íslands og Læknafélags Vesturlands fyrir á-
gæta stjórnun og framkvæmd þessa aðalfund-
ar Læknafélags íslands. Fyrir hönd Lækna-
félags Reykjavíkur bauð hann velkomna full-
trúa á næsta aðalfund Læknafélags íslands. Sá
fundur mun fara fram í Reykjavík haustið
1983. Porvaldur Veigar Guðmundsson, for-
maður Læknafélags Islands, þakkaði boð Krist-
jáns Baldvinssonar, og þakkaði jafnframt
stjórn Læknafélags Vesturlands fyrir gestrisni.
Jafnframt þakkaði hann fráfarandi samstarfs-
mönnum í stjórn fyrir ágæta samvinnu og
störf fyrir læknafélagið, ennfremur Páli Pórð-
arsyni, framkvæmdastjóra, og öðru starfsliði
skrifstofunnar fyrir góðan undirbúning þessa
fundar.
Formadur sleit sídan fundi.
Fundargerðin barst ritstjórn 12/10/1982.