Læknablaðið - 15.03.1985, Qupperneq 40
62
LÆKNABLAÐID
Þorkell Bjarnason var mótfallinn því, að
sérnám yrði flutt inn í landið, en taldi frekar,
að L.í. atti að styrkja menn til náms erlendis.
Finnbogi Jakobsson taldi, að nægilega
margar stöður kandídata og superkandídata
væru fyrir hendi, til þess að unnt væri að hefja
framhaldsnám hérlendis, og að læknadeild og
L.í. ættu í sameiningu að vinna að málinu.
Pétur Lúðvigsson lagði áherzlu á, að ekki
mætti minnka gæðakröfur á sérfræðinámi, ef
það flyttist til íslands.
Þórður Harðarson taldi framhaldsnám
hérlendis í lyflæknisfræði í 1-2 ár vera þann
kost, sem stefna bæri að.
Að loknum umræðum var fundarmönnum
skipt í starfshópa til að fjalla um framkomnar
tillögur til ályktunar. Fundi var að öðru leyti
frestað til næsta dags.
Laugardaginn 25. ágúst kl. 09.00 var fundi
framhaldið og skipaði Þorvaldur Veigar
Guðmundsson Sigurbjörn Sveinsson fundar-
stjóra og Svein Magnússon fundarritara.
Gengið var til dagskrár og greint frá með-
höndlun starfshópa á ályktunartillögum.
Stefán Þórarinsson greindi frá áliti starfs-
hóps A, sem fjallaði um fjórar tillögur (nr. 1-
4-5-17).
Tillaga nr. 1 frá stjórn L.í.
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði dagana 24. og 25. ágúst 1984 heimilar
stjórn félagsins að gerast fullgildur aðili að
vinnudeilusjóði Iæknafélaga Norðurland-
anna eins og hann var undirritaður á sameigin-
legum fundi stjórna læknafélaganna í Reykja-
vík þann 20. júní s.l. Læknafélag íslands
ábyrgist fjárframlög í hlutfalli við framlög
hinna læknafélaganna miðað við fjölda með-
lima.
Starfshópur lagði ekki til breytingar og var
tillagan samþykkt samhljóða.
Tillaga nr. 4 frá stjórn L.f.
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
fsafirði dagana 24. og 25 ágúst 1984 skorar á
heilbrigðisráðherra að gangast fyrir breytingu
á læknalögum á þann hátt, að öðrum en
læknum verði bannað að auglýsa starfsemi
þeirra eða á annan hátt stuðla að því, að
sjúklingar leiti til ákveðins eða ákveðinna
lækna. Heilsugæslustöðvum og öðrum heil-
brigðisstofnunum verði gert að sæta sömu
reglum og læknum um auglýsingar og kynn-
ingu.
Starfshópurinn Iagði ekki til breytingu og
var tillagan samþykkt samhljóða.
Tillaga nr. 5. frá stjórn L.í.
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði dagana 24. og 25. ágúst 1984 skorar á
heilbrigðisráðherra að láta endurskoða reglu-
gerð nr. 246/1982 um greiðslur almannatrygg-
inga á Iyfjakostnaði, þannig að rýmkaðar
verði heimildir um greiðslur lyfja að fullu.
Starfshópur lagði til eftirfarandi breytingu:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði dagana 24. og 25. ágúst 1984 skorar á
heilbrigðisráðherra að láta endurskoða reglu-
gerð nr. 246/1982 umgreiðslur almannatrygg-
inga á Iyfjakostnaði, þannig að sjúklingum
með langvinna sjúkdóma veitist ekki erfitt að
standa undir lyfjakostnaði.
Nokkur umræða varð um málið, fram kom
að gallar væru á núverandi greiðslufyrir-
komulagi lyfja, nýlegar reglugerðarbreyting-
ar hafa aukið á mismunun á milli sjúkdóma-
flokka. í máli ráðuneytisstjóra, Páls Sigurðs-
sonar kom fram, að hann taldi að allir sjúk-
lingar ættu að bera vissan hluta af lyfjakostn-
aði sinum. Ólafur Ólafsson landlæknir taldi
nauðsyn að breyta núgildandi greiðslukerfi.
Breytingatillaga starfshópsins var síðan
samþykkt samhljóða.
Tillaga nr. 17 frá Sveini Magnússyni o.fl.:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. til 25. ágúst 1984 ályktar að
reykingar skulu ekki Ieyfðar á fundum félags-
ins. Á þetta við fundi stjórna, nefnda, ráða
svo og stærri fundi eins og aðalfundi og
fræðslufundi. Stjórn L.í. er falið að kynna
félagsmönnum ályktun þessa.
Starfshópurinn lagði fram óbreytta tillögu
en Lúðvík Ólafsson bar fram eftirfarandi
breytingartillögu:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. og 25. ágúst 1984 beinir því til
félaga sinna að forðast reykinar á fundum
félagsins. Stjórn L.í. er falið að kynna
félagsmönnum ályktun þessa.
Breytingartillagan var felld með 14 at-
kvæðum gegn 4 og síðan var samþykkt
tillagan óbreytt með 14 atkvæðum gegn 2.
Næst skýrði Guðmundur Ingi Eyjólfsson
frá áliti starfshóps B sem fjallað hafði um
tillögur nr. 2-3-10 og 11.
Tillaga nr. 2 frá stjórn L.Í.:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði dagana 24. og 25. ágúst 1984 skorar á