Læknablaðið - 15.03.1985, Síða 41
LÆKNABLADIÐ
63
menntamálaráðherra að gangast fyrir því, að
reglum um nám við læknadeild Háskóla
íslands verði breytt þannig, að ekki útskrifist
fleiri læknakandídatar árlega en áætluð þörf
er fyrir (nú 22, sbr. meðfylgjandi greinar-
gerð).
Nokkur umræða varð um þá tölu (22) sem
nefnd er í tillögunni og komu fram tvær
breytingartillögur.
Breytingati/laga Þorvaldar V. Guðmunds-
sonar var að fella niður svigann ásamt inni-
haldi en sú tillaga var felld með 12 atkvæðum
gegn 6.
Starfshópurinn lagði til, að í sviganum
stæði 16-22 en ekki einungis 22 og var sú
tillaga samþykkt með 19 gegn engu.
Tillaga nr. 3 frá stjórn L.Í.:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði dagana 24. og 25 ágúst 1984 beinir þvi
til utanríkisráðherra, að athugað verði, hvort
framlag íslands til þróunarhjálpar gæti að
einhverju leyti orðið í formi læknisfræði-
legrar þjónustu eða ráðgjafar.
Starfshópurinn lagði til að tillögunni væri
breytt á eftirfarandi hátt:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
í safirði dagana 24. og 25. ágúst 1984 beinir þvi
til utanríkisráðherra, að athugað verði i
samvinnu við Þróunarsamvinnustofnun
íslands, hvort framlag íslands til þróunar-
hjálpar gæti að einhverju leyti orðið í formi
læknisfræðilegrar þjónustu eða ráðgjafar.
Tillaga starfshópsins var samþykkt með 14
atkvæðum gegn 1.
Tillaga nr. 10 frá stjórn Lœknafélags
Reykjavíkur:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
fsafirði 24. og 25. ágúst 1984 felur stjórn
Læknafélags íslands að sjá til þess, að allir
læknar séu ávallt tryggðir í starfi.
Starfshópurinn lagði fram eftirfarandi
breytingartillögu:
Aóalfundur Læknafélags Islands haldinn á
ísafirði 24. og 25. 1984 felur stjórn Lækna-
félags íslands að gera allsherjar úttekt á
tryggingamálum lækna og tryggja eins fljótt
og hægt er að læknar séu ávallt tryggðir fyrir
viðunandi upphæð í bráðum útköllum og
hliðstæðum áhættustörfum.
Umræða um tillöguna leiddi í ljós að víða
væri pottur brotinn í tryggingamálum lækna.
Þorvaldur V. Guðmundsson óskaði eftir
skýrari fyrimælum til stjórnar, hvernig bæri
að taka á málum, t.d. sjálfstætt starfandi
Iækna. Gunnar Ingi Gunnarsson taldi þessi
mál verða óhjákvæmilega að tengjast kjara-
samningum lækna á hverjum tíma.
Breytingartillaga starfshópsins var
samþykkt samhljóða.
Tillaga nr. 11 frá stjórn Læknafélags
Reykjavíkur:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. og 25. ágúst 1984 felur L.í. að
gangast fyrir því, að kjör einstakra lækna-
hópa verði metin og borin saman innbyrðis og
einnig við aðrar stéttir.
Starfshópur lagði til að tillagan yrði
samþykkt óbreytt og var hún samþykkt
samhljóða.
Starfshópur C, í fyrirsvari Sigursteinn
Guðmundsson, fjallaði um tillögur nr. 6-15
og 14.
Tillaganr. 6frá Þorvaldi V. Guðmundssyni
form. L.Í.:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. og 25. ágúst ályktar að hlutur
svæðafélaganna utan Reykjavíkur í árgjöld-
um skuli renna í einn sjóð. Úr sjóðnum skal
greiða ferðakostnað fulltrúa læknafélaganna
á aðalfund L.Í., formannaráðstefnur og
kjaramálafundi. Afgangi sjóðsins skal skipt
árlega milli félaganna í hlutfalli við félaga-
fjölda.
Tillaganr. 15 varfráLæknafélagiAkureyr-
ar:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. til 25. ágúst 1984 ályktar, að
Læknafélag íslands skuli greiða fargjöld
fulltrúa svæðafélaganna á aðalfund L.í. og
formannaráðstefnur.
Starfshópurinn lagði til að tillaga 15 yrði
samþykkt en fram kom breytingartillaga við
tilögu nr. 15 svohljóðandi:
Aðalfundur Læknafélags fslands haldinn á
ísafirði 24. til 25. ágúst 1984 ályktar, að
Læknafélag íslands skuli greiða fargjöld
fulltrúa svæðafélaganna innanlands á aðal-
fund L.í. og formannaráðstefnur.
Breytingartillagan var samþykkt með 13
atkvæðum gegn 9. Tillaga nr. 6 var því ekki
borin undir atkvæði.
Tillaga nr. 14 frá Læknafélagi Akureyrar:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. til 25. ágúst ályktar, að nauðsyn-
legt sé, að Læknafélag íslands verði í
framtíðinni aðili samningi um sérfræðilækn-