Læknablaðið - 15.03.1985, Page 42
64
LÆKNABLAÐID
ishjálp utan sjúkrahúsa, þannig að tryggt
verði að samningur þessi gildi fyrir alla
sérfræðinga hvar sem þeir eru búsettir á
Iandinu. Ennfremur ályktar fundurinn að
koma þurfi nýju skipulagi á atkvæðagreiðslur
um samninga þannig að tryggt verði að öllum
læknum gefist kostur á að greiða atkvæði um
samninga sem þeir eiga að starfa eftir.
Starfshópurinn lagði til að tillagan yrði
samþykkt óbreytt, eftir nokkra umræðu kom
frá starfshópnum fram dagskrártillaga um að
vísa tillögunni til stjórnar og var það sam-
þykkt samhljóða.
Stefán Matthíasson kynnti tillögur starfs-
hóps D, sem fjallaði um tillögur 16-12-13 og 8.
Tillaga 16 frá Ólafi Z. Ólafssyni:
Aðalfundur Lækanafélags íslands ályktar
að leitað verði leiða til að efla tekjur orlofs-
heimilasjóðs L.í. og L.R.
Starfshópurinn lagði til að samþykkt yrði
óbreytt tillaga og var hún samþykkt sam-
hljóða.
Tillaga nr. 12 frá stjórn Læknafélags
Reykjavíkur:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. og 25. ágúst 1984 felur stjórn L.í.
að beita sér fyrir myndun starfshóps, sem geri
tillögur um samræmingu á vottorðagerð og
greiðslum vegna vottorða.
Starfshópurinn lagði til að tillagan yrði
felld en tillaga nr. 13 aukin í staðinn. Halldór
Steinsen lagði til eftirfarandi viðbót: Stefnt
skal að því að vottorð séu staðgreidd af
tryggingataka. Lagði hann einnig til að tillaga
13 yrði felld niður. Breytingartillaga Halldórs
Steinsen var felld með 6 atkvæðum gegn 10 og
síðan var tillaga nr. 12 samþykkt óbreytt
samhljóða.
Tillaga nr. 13 frá stjórn Lœknafélags
Reykjavíkur:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. og 25. ágúst 1984 felur stjórn L.f.
að hlutast til um, að vottorð fyrir Trygginga-
stofnun ríkisins verði greidd að minnsta kosti
á 6 mánaða fresti í stað 12 mánaða eins og
tíðkast nú.
Starfshópurinn lagði til að tillagan yrði
svohljóðandi:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn í
ísafirði 24. og 25. ágúst 1984 felur stjórn L.í.
að hlutast til um, að vottorð fyrir Trygginga-
stofnun ríkisins verði greidd að minnsta kosti
á 3 mánaða fresti í stað 12 mánaða eins og
tíðkast nú. Sundurliðað uppgjör fylgi.
Breytingartillaga stafshópsins var
samþykkt samhljóða.
Tillaga nr. 8 frá Lœknafélagi Vesturlands:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. og 25. ágúst 1984 felur stjórn L.í.
að lýsa yfir án tafar við samtök vinnuveitenda
og Iaunþega, að læknisvottorð vegna veikinda
skemmri en 4 daga verði að jafnaði ekki veitt
eftir næstu aðalkjarasamninga þessara sam-
taka.
Starfshópurinn lagði til eftirfarandi breyt-
ingartillögu:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. og 25. ágúst 1984 beinir því til
stjórnar L.í. að hún ítreki það við aðila
vinnumarkaðarins að Iæknar séu bundnir af
samningsákvæðum um atvinnurekendavott-
orð, sem gerð eru án þeirra samþykkis. Stjórn
L.í. skipi vinnuhóp til gera leiðbeinandi
ráðleggingar um vinnutilhögun vegna vott-
orðanna.
Breytingartillaga starfshópsins féll á jöfn-
um atkvæðum 7 gegn 7 og síðan var tillaga
Læknafélags Vesturlands samþykkt með 12
atkvæðum gegn 6.
Lúðvík Ólafsson kynnti álit starfshóps E
sem fjallað hafði um tillögur nr. 7-9 og 18.
Tillaga nr. 7 frá Lœknafélagi Vesturlands:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. og 25. ágúst 1984 skorar á
heilbrigðisy firvöld að gera nú þegar ráðstafan-
ir til að hægt verði að hefja kransæða-
skurðaðgerðir á fsandi eigi síðar en árið 1986.
Starfshópurinn lagði til eftirfarandi breyt-
ingu:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á
ísafirði 24. og 25.ágúst 1984 skorar á heil-
brigðisyfirvöld að gera nú þegar ráðstafanir
til að hægt verði að hefja kransæðaskurðað-
gerðir á íslandi sem fyrst.
f umræðu skýrði Þórður Harðarson frá
ýmsum tölum varðandi kostnað og ábending-
ar fyrir aðgerð, kostnaður var um 250 þús. ísl.
krónur að senda sjúkling til Bretlands en 500-
750 þús. til USA. Páll Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri greindi frá nýlegri skýrslu nefndar, sem
fjallað hefur um þessi mál.
Tillaga starfshópsins var síðan samþykkt
samhljóða.
Tillaga nr. 9 frá Lœknafélagi Vesturlands:
Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn á