Læknablaðið - 15.03.1988, Síða 25
LÆKNABLAÐIÐ
89
Svo vikið sé aftur að könnun undirritaðs hlutu
14% af þessum 216 sjúklingum lélegan bata og
30% dóu. Séu hægfara innanbastsblæðingar
dregnar frá er talan 16% og 33% (tafla XIII). Sé
sjúklingum skipt eftir því hvort um var að ræða
fyrirferðaraukningu í höfði eða útbreitt heilamar
er dánarhlutfallið 26% eftir hið fyrra og 53%
eftir hið síðara. Að frádregnum hægfara
innanbastsblæðingum eru þessar tölur 30% og
53% (tafla XIV).
Dánarhlutfall sjúklinga með útbreitt heilamar er
áberandi hátt og hærra en sést í sumum tölum
erlendis en það gæti skýrst af því hvernig
könnunin er gerð. Dánarhlutfallið 30-33% hjá
umræddum 216 sjúklingum er mjög sambærilegt
við það sem gerist erlendis (21).
Yfirlit yfir erlendar greinar leiðir eftirfarandi í
Ijós:
Tíðni utanbastsblæðingar er talin 1-3% af
alvarlegum höfuðáverkum (7, 9, 22, 23). Hún er
algengust á aldrinum 10-40 ára (24) og næstum
aldrei yfir 65 ára eða undir tveggja ára aldri (7, 9).
Hlutfall karla/kvenna er allt að 4/1 (17). Það er
alkunna að sakleysisleg slys liggja oft að baki
utanbastsblæðinga. Erlendis er hins vegar talið að
algengustu orsakirnar séu umferðarslys og því
næst högg og fall (7, 23). Þetta kann þó að vera
breytilegt eftir löndum og stöðum. Frá 70 og upp
í 95% sjúklinga hafa hlotið höfuðkúpubrot og þá
langoftast í gagnaugasvæðið eða þar upp af. Ekki
sjást þessi brot alltaf á röntgenmyndum, en þau
koma þá í ljós við aðgerð (5-9, 13, 15, 16, 22, 23,
25, 26).
Þá sjaldan það kemur fyrir að einhver hefur ekki
brotnað er hann oftast undir 30 ára aldri (22). í
meira en tveim þriðju tilfella (allt að 70%) er
blæðingin staðsett í öðru gagnaugasvæðinu eða
þar upp af. í þriðjungi tilfella af þeim sem eftir
eru (10%) er blæðingin staðsett í enni og jafnhátt
Table XIV. Mass lesions, diffuse cerebral injury and
mortality in intracranial bleeding and cerebral
contusion. Admissions to the ICU, City Hospital,
Reykjavik, Iceland, 1973-1980.
Intracranial lcsions N Died (V.)
Mass lesions 184 48 (26)
Mass lesions less 25 chronic subdural hematomas 159 47 (30)
Diffuse cerebral injury 32 17 (53)
All intracranial lesions 216 65 (30)
All intracranial lesions less 25 chronic subdural hematomas 191 64 (33)
hlutfall blæðinga er í hnakka og í hnakkagróf
(fossa posterior) (5, 7, 8, 23, 27).
Nú orðið virðist lægra hlutfall sjúklinga deyja af
þessum áverka en áður var þegar dánarhlutfall
fór allt upp í 50% (5, 7, 8, 10, 21, 23, 25, 28).
Dánarhlutfall eftir aðgerð fór jafnvel upp í 76%
en hefur hin síðari árin farið lækkandi og er nú
komið niður í 5% (8). Sennilega er það samt
ennþá algengast milli 20 og 30%. Því hefur verið
haldið fram að almennt séð eigi dánarhlutfall ekki
að fara yfir 10% (8). í einni af framangreindum
könnunum tókst að lækka dánarhlutfall úr 29%
niður í 12% eftir að tölvusneiðmyndir komu til
sögunnar (23).
Eins og áður segir, halda menn sér við það að
skipta innanbastsblæðingum i þrjá hópa, en ekki
ber þeim saman um hvernig það beri að gera sé
miðað við tímann frá slysi til komu á spítala.
Bráðar blæðingar miðast við 1-7 daga,
hægbráðar blæðingar miðaðst við 11 daga og
jafnvel mánuð (5-11). Svo eru þeir sem halda því
fram, að hægbráð innanbastsblæðing sé aðeins
eitt afbrigðið af bráðum blæðingum.
Bráð innanbastsblæðing er alltaf mun algengari
en utanbastsblæðing (9, 22). Þessi áverki er mun
algengari hjá körlum en konum og hlutfallið frá
30/9 til 91/9 (9, 29, 30). Meðalaldur er 42-54 ár
(29, 30). Algengustu orsakir virðast vera árásir og
fall en umferðarslys virðast tiltölulega sjaldgæf
orsök (11, 29, 30). Höfuðkúpubrot eru í um
helmingu tilfella (7, 29) og blæðingin er beggja
vegna í höfðinu i um 15-20% tilfella (7). Hversu
margir deyja af þessum áverka fer mjög eftir því
hversu brátt hann ber að og hversu alvarlegur
hann er. Þegar blæðingar, sem koma undir
læknishendur nokkrum mínútum eða
klukkustundum eftir slysið, þremur dögum og allt
að sjö dögum eftir slysið, flokkast allar undir
bráðar innanbastsblæðingar í mismunandi
könnunum, gefur auga leið að árangur af
meðferð hlýtur að vera mjög misjafn. Er skemmst
frá því að segja að 25-90% þessara sjúklinga
deyja. Sé miðað við fyrstu 24 klukkustundirnar er
dánarhlutfallið oft 70-90% en miðað við þrjá
daga 50-60% (5, 7, 8, 10, 11, 21, 25, 28, 30, 31).
Tíðni hægfara innanbastsblæðinga er um það bil
ein til tvær á hverja 100 þúsund íbúa. Áverkinn
kemur fyrir á öllum aldri. Meirihlutinn eru
miðaldra menn (9). í sumum könnunum getur
hlutfall karla/kvenna verið allt að 4/1. Með
aldrinum er talið að þessi kynjamismunur fari
minnkandi (12). í þriðjungi tilfella er ekki um að