Læknablaðið - 15.03.1988, Side 44
106
LÆKNABLAÐIÐ
öðru ástandi þar sem vöðvafrumuhimnan er
óstöðug og í vöðvaherpingssjúkdómum. Hin
aukna ístunguvirkni kemur fram sem
áframhaldandi jákvæðar hvassar bylgjur eða
tíðar einfasa bylgjur eftir að nálin stöðvast.
Hvíldarvöðvarafrít. Eðlilegur þverrákóttur vöðvi
hefur enga rafvirkni í hvíld. Undantekning frá
þessu er ef nálin er við hreyfiþynnuna. Þá sjást á
skjánum hreyfiþynnubrak og hreyfiþynnubylgjur
(mynd 6-A).
Hreyfiþynnubrak eru neikvæðar einfasa
hátíðnibylgjur með óreglulegu skotmynstri, minni
en 100 míkróvolt á hæð og mjórri en þrjár
millisekúndur á breidd. Þær gefa frá sér
kuðungslíkt hljóð. Þessi virkni er vegna sjálfkrafa
losunar á litlu magni af asetýlkólíns úr
taugaendunum.
Hreyfiþynnubylgjur eru vegna meiri losunar
asetýlkólíns vegna ertingar frá nálinni með
afskautun á vöðvafrumu. Þessi virkni hefur sömu
stærð og vöðvakipringur, en með neikvæðan
fyrsta fasa. Hafi nálin skemmt
vöðvafrumuhimnuna og rafvirknin skráð þar frá,
koma fram jákvæðar hvassar bylgjur með
óreglulegri hátíðni. Mikilvægt er að rugla ekki
þessari eðlilegu hvíldarvirkni saman við aðra
sjálfkrafa virkni í hvíld, sem er óeðlileg. Til að
minnka líkurnar á því, skal hver rannsakaður
Mynd 6. Hvíldarvirkni. A: Eðlileg hvíldarvirkni.
Hreyfiþynnubrak og hreyfiþynnubylgjur. B.
Vöðvakipríngur breytist íjákvœða hvassa bylgju. C:
Margfasa hátíðnibylgjur. D: Vöðvaknippiskipríngur. E:
Rafvöðvaherpingur. Sjá texta til nánari skýringar.
vöðvi stunginn minnst á þrem stöðum. Síðan er
skoðað í hring út frá hverjum stungustað á minnst
sex til átta stöðum og óeðlileg hvíldarvirkni ekki
skráð nema hún sjáist á minnst tveim
stungustöðum. Rafvirkni í hvíld með nálina í
kyrrstöðu er óeðlileg ef um annað er að ræða en
hreyfiþynnubrak og hreyfiþynnubylgjur.
Það helsta, sem sést hér eru:
1. Vöðvakipringur.
2. Jákvæðar hvassar bylgjur.
3. Margfasa hátíðnibylgjur.
4. Vöðvaknippiskipringur.
5. Vöðvaherpingur.
6. Annað ótalið, til dæmis fjörfiskafár.
Ekkert eitt af þessu er sérkennandi fyrir einn
sjúkdóm, heldur er það heildarniðurstaða
vöðvarafritsins ásamt taugarafritum, sem gefa
sjúkdómsgreiningu.
Vöðvakipríngur og jákvæðar hvassar bylgjur eru
rafvirkni einstakra vöðvafrumna, sem afskautast
sjálfkrafa (mynd 6-B). Lengi vel var talið, að
vöðvakipringur væri einkennandi fyrir
aftaugunarsjúkdóma. Nú er vitað að undirrótin
er óstöðug frumuhimna. Vöðvakipringur og
jákvæðar hvassar bylgjur sjást í
aftaugunarsjúkdómum, ýmsum
vöðvasjúkdómum (tafla III) og hafa sést við
truflun á kalíumstyrkleika í sermi. Hvort
vöðvakipringur eða jákvæðar hvassar bylgjur eru
skráðar, fer eftir staðsetningu nálar gagnvart
frumunni (mynd 6-B). Sé nálin fyrir utan
frumuna sést vöðvakipringur, en hafi nálin
skemmt himnuna sjást jákvæðar hvassar bylgjur.
Eftir aftaugun á vöðva kemur þessi virkni í Ijós
eftir eina til fimm vikur. Tíminn fer eftir fjarlægð
taugaskemmdar frá vöðvanum. Vöðvakipring og
jákvæðar hvassar bylgjur er hentugt að skrá sem
1 + upp í 4 +, þar sem 1 + er einstakar, 2 +
margar, 3+ sjást stöðugt og 4+ fyllir skjáinn.
Vöðvakipringur er tví- eða þrífasabylgja með
jákvæðan fyrsta fasa, sem hefur reglulegt
skotmynstur 0,5-15 á sekúndu, 1-5 millisekúndur
á breidd og 20-200 míkróvolt á hæð.
Vöðvakipringur gefur frá sér hljóð, sem líkja má
við hljóðið þegar regndropar falla á harðan flöt.
Jákvæðar hvassar bylgjur eru einfasa með öllum
eiginleikum vöðvakiprings, nema miklu breiðari,
10-30 millisekúndur.
Margfasa hátíðnibylgjur eru rafvirkni margra
vöðvafrumna, sem afskautast nánast samtímis
með hárri tíðni (mynd 6-C). Einkennandi er hve
hún byrjar og hættir skyndilega. Meðan á henni