Læknablaðið - 15.08.1988, Side 5
LÆKNABLAÐIÐ 1988; 74: 223-32
223
Ólöf A. Steingrímsdóttir, Vilhjálmur Rafnsson,
Þórunn Sveinsdóttir, Magnús H. Ólafsson
EINKENNIFRÁ HREYFI- OG STOÐKERFI
Hóprannsókn á úrtaki íslendinga I
INNGANGUR
Einkenni frá hreyfi- og stoðkerfi eru talin algeng
meðal íslendinga. Hingað til hafa þó ekki verið
birtar niðurstöður margra athugana sem sýna
tíðni þessara einkenna hérlendis, né hversu mikil
áhrif þau hafa á fjarvistir úr vinnu.
Á vegum Vinnueftirlits ríkisins hefur farið fram
athugun á einkennum frá hreyfi- og stoðkerfi
meðal úrtaks íslendinga á aldrinum 16-65 ára.
Notaður var spurningalisti, unninn af
samstarfshópi á vegum Norrænu
embættismannanefndarinnar um
vinnuverndarmálefni (1, 2) (viðauki I). Listinn
var þýddur á íslensku og jafnframt bætt við
spurningum um einkenni frá höfði, fingrum og
húð. Okkur er ekki kunnugt um að
spurningalistinn hafi áður verið notaður við
athuganir, sem byggja á úrtaki þjóðar.
Niðurstöður rannsóknarinnar verða birtar í þrem
greinum. í þessari grein er sagt frá niðurstöðum
sem fram koma í yfirliti og viðbótarhluta listans.
í hinum greinunum verður fjallað nánar um
einkenni frá hálsi eða hnakka, herðum eða öxlum
og neðri hluta baks.
Meginmarkmiðið var að fá vitneskju um algengi
(prevalence) einkenna frá hreyfi- og stoðkerfi
meðal íslendinga. Upplýsingarnar verður hægt að
nota síðar til samanburðar við niðurstöður, sem
fást þegar spurningalistinn verður lagður fyrir
ýmsa starfshópa.
AÐFERÐIR
Við rannsóknina var notað slembiúrtak íslensku
þjóðarinnar á aldrinum 16-65 ára. Úrtakið var
valið á þann hátt að fundnir voru allir
einstaklingar í þjóðskránni, sem fæddir eru 7. og
12. júlí á árabilinu 1921 til 1970. Þessu fólki var
sent bréf þann 11. apríl 1986, þar sem rannsóknin
var kynnt. Tíu dögum síðar voru
spurningalistarnir sendir til fólksins og fylgdi
þeim bréf með nánari upplýsingum. Óskað var
Frá Vinnueftirliti rikisins, Reykjavík. Barst 10/03/1988.
Samþykkt og sent í prentsmiðju 25/03/1988.
eftir að svör bærust Vinnueftirliti ríkisins fyrir 28.
■apríl 1986. Þrisvar voru send ítrekunarbréf til
þeirra sem ekki svöruðu fyrir tilsettan tíma og að
lokum var ákveðið að útiloka svör sem bærust
eftir 20. september 1986.
Leyfi Tölvunefndar var fengið til að vinna efnivið
rannsóknarinnar í tölvu. Vinnslan fór fram með
»d base 111« gagnagrunni á einkatölvu
Vinnueftirlits ríkisins.
í töflu I er sýndur fjöldi karla og kvenna, búseta,
hjúskaparstaða og aldursdreifing í úrtakinu
annars vegar og þátttakenda í rannsókninni hins
vegar. í úrtakinu voru 421 karl og 434 konur eða
alls 855 af báðum kynjum. Þátttakendur voru 627
og skiptust í 301 karl og 326 konur. Þar sem
munurinn milli úrtaksins og þátttakenda er eins
lítill og hlutfallstölurnar í töflu I gefa til kynna og
Table 1. Sex, marital, geographical and age distribution
of the totai sample (855) and of the participants (627) in
the study.
Sample Participants
Men Women Men Women
n n Vo n % n "lo
Total 421 49 434 51 301 48 326 52
Living in Reykjavik 165 19 173 20 105 17 121 19
Living outside Reykjavik 256 30 261 31 196 31 205 33
Married 217 25 232 27 155 25 186 30
Unmarried 175 21 158 19 124 20 113 18
Other marital status 29 3 44 5 22 3 27 4
Age
16-19 47 5 39 5 42 7 29 5
20-24 57 7 66 8 33 5 51 8
25-29 56 7 62 7 33 5 47 8
30-34 42 5 53 6 28 5 43 7
35-39 45 5 52 6 35 6 40 6
40-44 45 5 37 4 33 5 32 5
4549 34 4 21 3 21 3 14 2
50-54 27 3 34 4 21 3 22 4
55-59 33 4 37 4 30 5 26 4
60-64 28 3 31 4 20 3 21 3
65 7 1 2 " 5 1 I