Læknablaðið - 15.08.1988, Side 25
LÆKNABLAÐIÐ
239
heilaskemmdum. Hægðir verða dökkar og
stundum tregar og tennur geta einnig litast.
Varðandi þægindi fyrir sjúklinginn hefur
kvöldskammtur af H2-hemli vinninginn. Til
skamms tíma var súkralfat gefið fjórum sinnum á
dag, hálfri til einni klukkustund fyrir mat og
undir svefn og er það verulegt óhagræði fyrir
sjúklinginn. Nýjustu rannsóknir sýna þó, að tvö
grömm á fastandi maga að morgni og undir svefn
gefur jafngóðan eða betri árangur (9). Bismút er
gefið fjórum sinnum á dag ýmist í vökvaformi
eða töflum og hefur vont bragð verið vandamál.
Nýjustu lyfjagerðir hafa þó leyst þetta. Nothæfar
lyfjagerðir af bismúti eru ekki skráðar hér á landi
þegar þetta er ritað.
Tafla II. Verðsamanburður nokkurra lyfja 1. apríl
1988 miðað við skilgreindan dagsskammt.
Lyf Styrk- leiki Pakkning Lyfja- skammtur Verð á dagskammti
Alúmíníum blanda Gelat mixtúra (600 ml) 15 ml x 5 55,55 kr.
Símetidín Símetidin töflur Tagamet töflur 400 mg 400 mg 800 mg (100 stk.) (100 stk.) (100 stk.) 400 mg x 2 400 mg x 2 800 mg x 1 68,96 kr. 73,01 kr. 68,31 kr.
Acinil töflur 400 mg 800 mg (100 stk.) (60 stk.) 400 mg x 2 800 mg X 1 80,26 kr. 75,93 kr.
Súkralafat Antepsin töflur 1 g (100 stk.) 1 gx4 90,72 kr.
Ranitidín Asýran töfíur 150 mg 300 mg (120 stk.) (100 stk.) 150 mgx2 300 mg x 1 113,41 kr. 101,79 kr.
Gastran töflur 150 mg 300 mg (100 stk.) (60 stk.) 150 mgx2 300 mg x 1 113,59 kr. 103,93 kr.
Zantac tö'flur 150 mg 300 mg (60 stk.) (30 stk.) 150 mgx2 300 mg x 1 181,75 kr. 163,57 kr.
Famótidín Pepcidin töÁur 20 mg 40 mg (100 stk.) (30 stk.) 20 mg x 2 40 mg x 1 154,33 kr. 141,17 kr.
Pírenzepín Gastrozepín töflur 50 mg (100 stk.) 50 mg X 3 169,16 kr.
Þegar allt er tekið saman má segja, að
kvöldskammtur af H2-hemli og súkralfat 2 g x 2
séu sambærilegir kostir við val á fyrsta lyfi við
græðslu á sárum í maga og skeifugörn. Verð á
hverjum tíma getur ráðið valinu, en einnig þarf að
taka tillit til einstaklingsbundinna þátta eins og
reykinga og annarra lyfja, sem sjúklingur notar.
Hjá þeim, sem ekki gróa innan átta vikna, hefur
bismút gefið góða raun (10) en algengasta orsök
fyrir því, að sár eru ógróin eftir 8 vikur er sú, að
sjúklingur hefur ekki tekið lyfin. í
viðhaldslyfjameðferð stendur valið á milli
kvöldskammts af H2-hemli og tveggja gramma
kvöldskammts af súkralfati.
Lyfjakostnaður og ávísanavenjur lækna
Mjög athyglisverð þróun hefur orðið hér á landi í
notkun lyfja við sársjúkdómum í maga og
skeifugörn á seinustu árum. Á tímabilinu 1983-86
jókst heildsöluverð þessara lyfja úr 28 í 62
milljónir króna á verðgildi hvers árs (11). Ef litið
er á skilgreinda dagskammta fyrir íbúa á þessu
tímabili kemur í ljós, að aukningin er fyrst og
fremst vegna tilkomu ranitidíns (12), en lítil sem
engin minnkun hefur orðið á notkun símetidíns
og sýrubindandi lyfja.
Þessi þróun vekur ýmsar spurningar:
Hver er þjóðhagslegur ávinningur af þessari
lyfjanotkun og hefur hann þrefaldast á árunum
1983-86?
Eru ávísanavenjur íslenskra lækna að breytast?
Engar rannsóknir hafa verið gerðar á íslandi um
þjóðhagslegan ávinning af notkun H2-hemla, en
góðar rannsóknir eru til frá öðrum löndum.
Sýrulækkandi aðgerðum vegna sársjúkdóma
fækkaði snarlega eftir 1976 þegar símetidín kom á
markað. Hefur sú þróun haldið áfram fram á
þennan dag (13) og eru aðgerðir við
sársjúkdómum víða nær aflagðar. Fylgikvillum
sársjúkdóma, eins og holsárum og blæðingum,
hefur einnig fækkað mikið sérstaklega upp úr
1976, en þessi þróun var þó byrjuð áður (13).
Greiðslur sjúkradagpeninga vegna sársjúkdóma
lækkuðu verulega eftir 1976 í Sviþjóð, Þýskalandi
og Bretlandi (13) og dánartíðni hefur einnig
lækkað. Gera má ráð fyrir, að svipuð þróun hafi
átt sér stað hér landi á öllum þessum sviðum. Það
er lítill vafi á því, að þjóðhagslegur ávinningur af
notkun þessara lyfja er langt umfram kostnað, en
stærsti hluti ávinningsins virðist hafa náðst fyrstu
sjö árin eftir framkomu símetidíns, þ.e. frá 1976.
Þetta þarfnast þó frekari rannsókna og
sérstaklega hér á landi.