Læknablaðið - 15.08.1988, Page 30
242
LÆKNABLAÐIÐ
Location or extent of
myocardial infarction could
not be determined: 34
cases (9.9%).
Fig. 2. ECG changes in the myocardial infarctions.
65.6% had transmural changes and 24.5% had
subendocardial changes. In 9.9% location or extent
could not be determined by the ECG.
Fig. 3. Mortality rate of patients with myocardial
infarction. The light columns show the total number,
the dark columns those who died.
Complications
A: Arrhythmia
S: Shock
O: None of these complications
Fig. 4. Correlation of complications with mortality.
var undir hjartaþeli í 84 tilvikum (24,5%). í 34
tilvikum (9,9%) var ekki unnt að greina
hjartadrepsbreytingar í hjartalínuriti, m.a. vegna
vinstra greinrofs eða merkja um fyrra drep. Þrátt
fyrir að dánartíðni samkvæmt þessari rannsókn
væri lægri (16%) heldur en í fyrri rannsókn
(20,3%) þá reyndist þessi munur ekki marktækur
(kí kvarat= 1.478, NS).
Alls dóu 55 sjúklingar úr kransæðastíflu á
Landakotsspítala á árunum 1981-1985.
Dánarhlutfall karla var 12,4% (29/233) og
kvenna 23,6% (26/110). Þessi munur á dánartíðni
karla og kvenna er marktækur (kí-kvarat = 6.946,
p<0,01). Ef sjúklingum sem lágu inni vegna
annars sjúkdóms og fengu kransæðastíflu í legu
er sleppt reyndist dánartíðni 12,7% en í fyrri
rannsókn 16,9%. Voru 44 (80%) þeirra sjúklinga
sem dóu krufðir og höfðu allir kransæðastíflu.
Meðalaldur þeirra sem dóu var 77 ár, karla 73 ár
og kvenna 81 ár. Meðalaldur þeirra sem lifðu af
kransæðastíflu var 66 ár (sjá mynd 3).
Tafla I sýnir tíðni fylgikvilla karla og kvenna.
Fengu 148 sjúklingar hjartsláttartruflanir.
Algengastar voru gáttatif 59, aukaslög í sleglum
52, sleglatif 24 og hægar hjartsláttartruflanir 20.
Fylgst var með sjúklingum í hjartarafsjá að
jafnaði í 3 til 4 sólarhringa, eftir að þeir fengu
kransæðastíflu.
Mynd 4 sýnir samband dánartíðni og skráðra
fylgikvilla. Engir fylgikvillar voru skráðir hjá 155
sjúklingum (45,2%), en 8 þeirra létust. Þeir voru
allir krufðir og kransæðastífla staðfest. Einn var
með hjartarifu.
Hjartabilun eingöngu fengu 33 og létust 6 þeirra.
Lost eingöngu fengu 2 sjúklingar og lést annar
þeirra. Hjartsláttartruflun og lost fengu 8 og
létust 6 þeirra. Hjartsláttartruflun eingöngu fékk
71 og létust 6. Hjartabilun og lost fengu 5 og
létust 3 þeirra. Hjartabilun og hjartsláttartruflun
Fengu 48 og létust 8 þeirra. Hjartabilun,
hjartsláttartruflun og lost fékk 21 og létust 17
þeirra.
Table I. Complications according to sex after
myocardial infarction at St. Joseph ’s Hospital,
Landakot Reykjavik.
Complication Women Men All
CHF 40 67 107
Arrhythmia 46 98 144
Shock 12 24 36
No complication 47 108 155
Total 110 233 343